Mál til umsagnar: Tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga

Málsnúmer 2610045

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1297. fundur - 02.11.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni frá innviðaráðuneytinu um tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga.

Byggðarráð Húnaþings vestra fagnar þeirri vinnu sem fram fer við mótun viðmiða um sjálfbæra þróun sveitarfélaga og telur mikilvægt að fyrir liggi góðar, áreiðanlegar og samanburðarhæfar upplýsingar sem geti stutt við stefnumótun og ákvarðanatöku til lengri tíma. Ráðið leggur hins vegar ríka áherslu á að við mótun og beitingu viðmiðanna verði tekið fullt tillit til þess hversu ólíkar aðstæður sveitarfélaga eru um allt land. Landfræðileg stærð, dreifing byggðar, vegalengdir, fjöldi byggðarkjarna og mismunandi framkvæmd við veitingu grunnþjónustu hafa veruleg áhrif á rekstur og þróun sveitarfélaga. Mikilvægt er að sameiginleg viðmið nái utan um þennan fjölbreytileika en leiði ekki til einfaldaðs eða villandi samanburðar milli sveitarfélaga sem búa við ólíkar rekstrarforsendur. Sveitarfélagið tekur heilshugar undir þau sjónarmið sem fram koma í umsögnum Skagafjarðar og Múlaþings. Sérstaklega er mikilvægt að mat á fjárhagslegri sjálfbærni taki mið af umfangi lögbundinnar þjónustu, kostnaði við rekstur innviða og getu sveitarfélaga til að veita íbúum örugga og góða þjónustu til lengri tíma, en eins og fram kemur í umræðuskjalinu liggur ekki fyrir sameiginleg niðurstaða um hvaða kennitölur lýsi fjárhagslegri sjálfbærni best. Jafnframt leggur sveitarfélagið áherslu á að viðmiðin verði fyrst og fremst hagnýtt stjórntæki sem byggi á fyrirliggjandi gögnum, en leiði alls ekki til aukinnar stjórnsýslubyrði eða nýrra skýrslugjafarkvaða fyrir sveitarfélögin. Þá er nauðsynlegt að niðurstöður mælinganna nýtist ríkisvaldinu við eigin áætlanagerð og forgangsröðun í innviðafjármögnun, enda ráðast forsendur sjálfbærrar byggðaþróunar ekki eingöngu af ákvörðunum sveitarfélaganna sjálfra. Að síðustu leggur ráðið ríka áherslu á að mótun og innleiðing viðmiða sem þessara auki ekki beinan eða óbeinan kostnað sveitarfélaga. Skal þess sérstaklega gætt að nýjar kröfur, kerfi eða vöktun leiði ekki til útgjaldaauka sveitarstjórnarstigsins, heldur verði slíkur kostnaður að fullu borinn af ríkissjóði í samræmi við meginreglur um fjárhagslegt forræði sveitarfélaga. Sveitarfélagið styður áframhaldandi samstarf um mótun viðmiðanna með þeirri skýru áherslu að þau verði einföld, gagnleg og sveigjanleg, endurspegli raunverulegan aðstöðumun og án viðbótarkostnaðar fyrir sveitarfélög.
Var efnið á síðunni hjálplegt?