Mál til umsagnar - Áform um frumvörp varðandi byggðatengdar veiðiheimildir, mál nr. S-2232026

Málsnúmer 2610092

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1297. fundur - 02.11.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni frá innviðaráðuneytinu um mál nr. S-223/2026, Áform um frumvörp varðandi byggðatengdar veiðiheimildir.
Byggðarráð Húnaþings vestra hefur yfirfarið áformaskjal innviðaráðuneytis vegna fyrirhugaðrar endurskoðunar byggðatengdra veiðiheimilda. Ráðið leggur ríka áherslu á að við frumvarpssmíðina verði tryggt að byggðakvóti þjóni upphaflegum markmiðum sínum um að efla atvinnu, treysta búsetu og styðja við staðbundna útgerð og vinnslu í sjávarbyggðum landsins. Af þessu tilefni ítrekar byggðarráð sjónarmið sín sem fram komu í ítarlegri umsögn frá því í sumar vegna fyrirhugaðrar endurskoðunar byggðakvótakerfisins. Fylgir sú umsögn hér með í heild sinni sem óaðskiljanlegur hluti athugasemda Húnaþings vestra við hið kynnta mál, með ósk um að áherslur hennar verði lagðar til grundvallar við áframhaldandi vinnu ráðuneytisins.
Var efnið á síðunni hjálplegt?