Sveitarstjórn

401. fundur 12. mars 2026 kl. 15:00 - 15:40 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Þorleifur Karl Eggertsson oddviti
  • Magnús Magnússon varaoddviti
  • Sigríður Ólafsdóttir aðalmaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Ingimar Sigurðsson aðalmaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Elín Lilja Gunnarsdóttir sat fundinn með fjarfundabúnaði.

Oddviti setti fund og óskaði eftir að taka á dagskrá sem 8. dagskrárlið bókun vegna minnisblaðs starfshóps um hringveg um Vestfirði. Samþykkt samhljóða.

Fundargerð 1271. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 401. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

1.Byggðarráð - 1271

Málsnúmer 2602006FVakta málsnúmer

Magnús Magnússon formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1271 Húnaþing vestra á einn fulltrúa í nefndinni. Í 28. gr laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, er kveðið á um að þegar tilnefnt er í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli tilnefna bæði karl og konu. Ráðherra velur úr tilnefningum svo kynjaskipting sé sem jöfnust.
    Byggðarráð samþykkir að tilnefna Magnús Magnússon og Elínu Lilju Gunnarsdóttur til setu í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 fyrir hönd Húnaþings vestra. Húnaþing vestra áskilur sér rétt til að skipa nýja fulltrúa að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1271 Byggðarráð fagnar styrkveitingunni og felur sveitarstjóra að vinna verkefnið áfram.
  • 1.3 2602048 Styrkumsókn
    Byggðarráð - 1271 Ekki er hægt að verða við styrkbeiðninni.
  • Byggðarráð - 1271
  • Byggðarráð - 1271
  • Byggðarráð - 1271 Vátryggingavernd Húnaþings vestra var boðin út á TED (EES) og útboðsvefnum með skilafresti til kl. 12:00 þann 20. febrúar. Útboðið var unnið af Consello vátryggingamiðlun.
    4 tilboð bárust:
    Sjóvá, kr. 15.334.607.
    TM, kr. 16.336.576.
    VÍS, kr. 14.421.905.
    Vörður, kr. 15.182.914.
    Lægsta tilboð frá VÍS uppfyllir öll skilyrði útboðsins.
    Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði VÍS og felur sveitarstjóra undirritun samnings þar um í samræmi við skilmála útboðsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 1272. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 401. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

2.Byggðarráð - 1272

Málsnúmer 2602009FVakta málsnúmer

Magnús Magnússon formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 384. fundar skipulags- og umhverfisráðs lögð fram til afgreiðslu á 401. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

3.Skipulags- og umhverfisráð - 384

Málsnúmer 2603001FVakta málsnúmer

Ingimar Sigurðsson formaður skipulags- og umhverfisráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 384 Ráðið telur að tillagan hafi ekki í för með sér beinar skipulagslegar skuldbindingar né skerði hagsmuni Húnaþings vestra. Ráðið tekur þó fram að ytri mörk skipulagssvæðisins liggi að Hrútafirði (við Stikuháls) og að fyrirliggjandi umfjöllun um samgöngur/ferðaleiðir geti haft óbein tengsl við aðkomusvæði á mótum þjóðvega nr. 60 og 68 við hringveg nr. 1
    Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemdir við tillöguna.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 384 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á notkun Hamarsbúðar. Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 384
    Málið lagt fram til kynningar, þ.e. álit Skipulagsstofnunar og fylgigögn/svör framkvæmdaraðila.
Fundargerð 260. fundar fræðsluráðs lögð fram til afgreiðslu á 401. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

4.Fræðsluráð - 260

Málsnúmer 2602008FVakta málsnúmer

Elín Lilja Gunnarsdóttir formaður fræðsluráðs kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 223. fundar landbúnaðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 401. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

5.Landbúnaðarráð - 223

Málsnúmer 2602001FVakta málsnúmer

Sigríður Ólafsdóttir formaður landbúnaðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 223 Landbúnaðarráð samþykkir eftirfarandi úthlutun til viðhalds og endurnýjunar heiðagirðinga árið 2026:
    Fjallskiladeild Hrútafirði kr. 850.000.
    Fjallskiladeild Miðfirðinga kr. 1.200.000 og 250.000 vegna safngirðingar.
    Fjallskiladeild Víðdælinga kr. 1.200.000.

    Landbúnaðarráð leggur til að taxti við vinnu við heiðagirðingar á árinu 2026 verði eftirfarandi:
    Verktakagreiðsla kr. 4.065 pr. klukkustund, taxti fyrir fjórhjól verði kr. 4.065 pr. klukkustund og taxti fyrir sexhjól verði kr. 4.285 pr. klukkustund. Ofan á þessa taxta leggst 24% virðisaukaskattur. Akstur verður greiddur samkvæmt taxta ríkisins.

    Landbúnaðarráð minnir á mikilvægi þess að fjallskilastjórnir haldi kostnaði vegna heiðagirðinga innan fjárhagsheimilda. Jafnframt er minnt á að samkvæmt reglum vegna styrkja til fjallskiladeilda skal öllum reikningum skilað fyrir 31. október nk.
    Bókun fundar Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 5.2 2602083 Minkaveiði 2026
    Landbúnaðarráð - 223 Ekki hefur gengið vel að fá veiðimenn til að sinna minkaveiðum í sveitarfélaginu síðastliðin ár. Formanni landbúnaðarráðs og sveitarstjóra er falið að boða formenn veiðifélaga til fundar til að ræða sameiginlega aðkomu að veiðunum.
  • Landbúnaðarráð - 223 Landbúnaðarráð lýsir áhyggjum sínum af stöðu fjarskipta í dreifbýli í kjölfar lokunar á 2G sendum og fyrirhugaðrar lokunar á 3G sendum. Fjölmargar ábendingar hafa borist ráðinu um að staða fjarskipta í sveitarfélaginu hafi versnað mikið við breytinguna. Í drögum að þingsályktun um samgönguáætlun kemur fram að til standi að bæta farnetssamband á þjóðvegum. Ráðið fagnar því en bendir á að víðtækari úrbóta er þörf í kjölfar aflagningar á 2G og 3G sendum. Um gríðarlegt öryggismál er að ræða fyrir íbúa í dreifbýli og óásættanlegt annað en að ráðist verði í úrbætur strax. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir áhyggjur landbúnaðarráðs af stöðu fjarskipta í dreifbýli í kjölfar lokunar á 2G sendum og fyrirhugaðrar lokunar á 3G sendum.
  • 5.4 2602085 Styrkvegir 2026
    Landbúnaðarráð - 223 Landbúnaðarráð samþykkir greinargerð með umsókn um framlag Vegagerðarinnar til styrkvegaframkvæmda nk. sumar og þakkar góða vinnu sveitarstjóra og fjallskilastjórna við gerð hennar.
  • Landbúnaðarráð - 223 Landbúnaðarráð lýsir yfir vonbrigðum með framgöngu MAST við áhættuflokkun bæja vegna riðu í sveitarfélaginu. Ráðið gerir athugasemd við að sveitarfélagið hafi ekki verið upplýst um vinnuna þar sem flokkun bæja getur tengst fjallskilum. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir með landbúnaðarráði vegna framgöngu MAST við áhættuflokkun bæja vegna riðu í sveitarfélaginu og skort á upplýsingaflæði vegna þessarar vinnu enda tengist vinnan fjallskilum.

6.Kosning varamanns í kjörstjórn

Málsnúmer 2503051Vakta málsnúmer

Björn Líndal Traustason er ekki lengur kjörgengur sem varamaður í kjörstjórn og því verður að kjósa nýjan varamann í hans stað, sbr. 2. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir að tilnefna Jóhann Albertsson sem varamann í kjörstjórn.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Breyting á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 - Víðihlíð

Málsnúmer 2506015Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Skipulagsstofnun, vegna breytingar á aðalskipulagi Húnaþings vestra fyrir Víðihlíð í Víðigerði.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 5. febrúar 2026, vegna breytingar á aðalskipulagi Húnaþings vestra fyrir Víðihlíð í Víðigerði. Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun telur að breytingin geti ekki talist óveruleg, meðal annars með hliðsjón af umfangi fyrirhugaðrar gistiþjónustu, umferðaráhrifum og framkomnum athugasemdum umsagnaraðila, og að því beri að fara með málið sem verulega breytingu samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga. Jafnframt kemur fram að ekki sé þörf á að kynna lýsingu á nýjan leik, heldur geti sveitarstjórn samþykkt tillögu til auglýsingar, að undangengnum lagfæringum, og lagt hana fram til athugunar fyrir auglýsingu í Skipulagsgátt.

Sveitarstjórn samþykkir að hefja vinnu við verulega breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra vegna Víðihlíðar í samræmi við framangreint bréf Skipulagsstofnunar. Skipulagsfulltrúa er falið að vinna málið áfram og leggja fyrir sveitarstjórn tillögu til auglýsingar þegar brugðist hefur verið við þeim atriðum sem stofnunin bendir á í bréfi sínu.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Bókun vegna minnisblaðs starfshóps um hringveg um Vestfirði mars 2026

Málsnúmer 2603043Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi bókun:

Sveitarstjórn Húnaþings vestra fagnar þeirri tillögu starfshóps innviðaráðherra að Hringvegurinn nái inn á Vestfirði. Hins vegar gerir sveitarstjórn alvarlega athugasemd við þá niðurstöðu starfshópsins að einungis Vestfjarðavegur og Djúpvegur verði teknir inn í mengið þannig að tvístefnuleggur þessa hluta hringvegarins verði frá Dalsmynni í Norðurárdal og norður fyrir Gilsfjarðarbrú og þar byrji hinn eiginlegi hringur. Sveitarstjórn Húnaþings vestra leggur til að upphaf hringvegar um Vestfirði verði við Dalsmynni í Norðurárdal en endirinn verði við Staðarskála í Hrútafirði þannig að Innstrandavegur verði hluti af hringvegarheild enda er Innstrandavegur varaleið til Vestfjarða þegar Þröskuldar, Klettsháls eða Dynjandisheiði lokast.

Fundi slitið - kl. 15:40.

Var efnið á síðunni hjálplegt?