Bókun vegna minnisblaðs starfshóps um hringveg um Vestfirði mars 2026

Málsnúmer 2603043

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 401. fundur - 12.03.2026

Lögð fram eftirfarandi bókun:

Sveitarstjórn Húnaþings vestra fagnar þeirri tillögu starfshóps innviðaráðherra að Hringvegurinn nái inn á Vestfirði. Hins vegar gerir sveitarstjórn alvarlega athugasemd við þá niðurstöðu starfshópsins að einungis Vestfjarðavegur og Djúpvegur verði teknir inn í mengið þannig að tvístefnuleggur þessa hluta hringvegarins verði frá Dalsmynni í Norðurárdal og norður fyrir Gilsfjarðarbrú og þar byrji hinn eiginlegi hringur. Sveitarstjórn Húnaþings vestra leggur til að upphaf hringvegar um Vestfirði verði við Dalsmynni í Norðurárdal en endirinn verði við Staðarskála í Hrútafirði þannig að Innstrandavegur verði hluti af hringvegarheild enda er Innstrandavegur varaleið til Vestfjarða þegar Þröskuldar, Klettsháls eða Dynjandisheiði lokast.
Var efnið á síðunni hjálplegt?