Byggðarráð

1271. fundur 23. febrúar 2026 kl. 14:00 - 15:28 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá

1.Beiðni um tilnefningu í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1

Málsnúmer 2602032Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni félags- og húsnæðismálaráðuneytis um tilnefningu fulltrúa Húnaþings vestra í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1.
Húnaþing vestra á einn fulltrúa í nefndinni. Í 28. gr laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, er kveðið á um að þegar tilnefnt er í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli tilnefna bæði karl og konu. Ráðherra velur úr tilnefningum svo kynjaskipting sé sem jöfnust.
Byggðarráð samþykkir að tilnefna Magnús Magnússon og Elínu Lilju Gunnarsdóttur til setu í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 fyrir hönd Húnaþings vestra. Húnaþing vestra áskilur sér rétt til að skipa nýja fulltrúa að afloknum sveitarstjórnarkosningum.

2.Tilkynning um styrk til fráveituframkvæmda

Málsnúmer 2601089Vakta málsnúmer

Lögð fram tilkynning frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti um styrkveitingu til hönnunar og framkvæmda við fráveitur sveitarfélagsins á árunum 2025 og 2026.
Byggðarráð fagnar styrkveitingunni og felur sveitarstjóra að vinna verkefnið áfram.

3.Styrkumsókn

Málsnúmer 2602048Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkumsókn frá félaginu Sterkari út í lífið.
Ekki er hægt að verða við styrkbeiðninni.

4.Framboð til stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 2602033Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga þar sem auglýst er eftir framboðum til stjórnar sjóðsins.

5.Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2026

Málsnúmer 2601028Vakta málsnúmer

Fundargerð 135. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lögð fram til kynningar.
Bætt á dagskrá:

6.Tryggingaútboð - 2026

Málsnúmer 2602034Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða útboðs á tryggingum Húnaþings vestra.
Vátryggingavernd Húnaþings vestra var boðin út á TED (EES) og útboðsvefnum með skilafresti til kl. 12:00 þann 20. febrúar. Útboðið var unnið af Consello vátryggingamiðlun.
4 tilboð bárust:
Sjóvá, kr. 15.334.607.
TM, kr. 16.336.576.
VÍS, kr. 14.421.905.
Vörður, kr. 15.182.914.
Lægsta tilboð frá VÍS uppfyllir öll skilyrði útboðsins.
Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði VÍS og felur sveitarstjóra undirritun samnings þar um í samræmi við skilmála útboðsins.

Fundi slitið - kl. 15:28.

Var efnið á síðunni hjálplegt?