Landbúnaðarráð

223. fundur 04. mars 2026 kl. 13:00 - 13:51 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólafsdóttir formaður
  • Dagný Ragnarsdóttir varaformaður
  • Dagbjört Diljá Einþórsdóttir aðalmaður
  • Halldór Pálsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Stella Dröfn Bjarnadóttir boðaði forföll.

1.Úthlutun fjármagns til viðhalds heiðagirðinga 2026

Málsnúmer 2602082Vakta málsnúmer

Fjármagn til úthlutunar til viðhalds og endurnýjunar heiðagirðinga samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2026 er kr. 3.500.000.
Landbúnaðarráð samþykkir eftirfarandi úthlutun til viðhalds og endurnýjunar heiðagirðinga árið 2026:
Fjallskiladeild Hrútafirði kr. 850.000.
Fjallskiladeild Miðfirðinga kr. 1.200.000 og 250.000 vegna safngirðingar.
Fjallskiladeild Víðdælinga kr. 1.200.000.

Landbúnaðarráð leggur til að taxti við vinnu við heiðagirðingar á árinu 2026 verði eftirfarandi:
Verktakagreiðsla kr. 4.065 pr. klukkustund, taxti fyrir fjórhjól verði kr. 4.065 pr. klukkustund og taxti fyrir sexhjól verði kr. 4.285 pr. klukkustund. Ofan á þessa taxta leggst 24% virðisaukaskattur. Akstur verður greiddur samkvæmt taxta ríkisins.

Landbúnaðarráð minnir á mikilvægi þess að fjallskilastjórnir haldi kostnaði vegna heiðagirðinga innan fjárhagsheimilda. Jafnframt er minnt á að samkvæmt reglum vegna styrkja til fjallskiladeilda skal öllum reikningum skilað fyrir 31. október nk.

2.Minkaveiði 2026

Málsnúmer 2602083Vakta málsnúmer

Ekki hefur gengið vel að fá veiðimenn til að sinna minkaveiðum í sveitarfélaginu síðastliðin ár. Formanni landbúnaðarráðs og sveitarstjóra er falið að boða formenn veiðifélaga til fundar til að ræða sameiginlega aðkomu að veiðunum.

3.Staða fjarskipta í dreifbýli í kjölfar lokunar 2G og 3G senda

Málsnúmer 2602084Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð lýsir áhyggjum sínum af stöðu fjarskipta í dreifbýli í kjölfar lokunar á 2G sendum og fyrirhugaðrar lokunar á 3G sendum. Fjölmargar ábendingar hafa borist ráðinu um að staða fjarskipta í sveitarfélaginu hafi versnað mikið við breytinguna. Í drögum að þingsályktun um samgönguáætlun kemur fram að til standi að bæta farnetssamband á þjóðvegum. Ráðið fagnar því en bendir á að víðtækari úrbóta er þörf í kjölfar aflagningar á 2G og 3G sendum. Um gríðarlegt öryggismál er að ræða fyrir íbúa í dreifbýli og óásættanlegt annað en að ráðist verði í úrbætur strax.

4.Styrkvegir 2026

Málsnúmer 2602085Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að greinargerð með umsókn um framlag Vegagerðarinnar til styrkvegaframkvæmda sumarið 2026.
Landbúnaðarráð samþykkir greinargerð með umsókn um framlag Vegagerðarinnar til styrkvegaframkvæmda nk. sumar og þakkar góða vinnu sveitarstjóra og fjallskilastjórna við gerð hennar.

5.Áhættuflokkun bæja vegna riðu

Málsnúmer 2602088Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð lýsir yfir vonbrigðum með framgöngu MAST við áhættuflokkun bæja vegna riðu í sveitarfélaginu. Ráðið gerir athugasemd við að sveitarfélagið hafi ekki verið upplýst um vinnuna þar sem flokkun bæja getur tengst fjallskilum.

Fundi slitið - kl. 13:51.

Var efnið á síðunni hjálplegt?