Staða fjarskipta í dreifbýli í kjölfar lokunar 2G og 3G senda

Málsnúmer 2602084

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð - 223. fundur - 04.03.2026

Landbúnaðarráð lýsir áhyggjum sínum af stöðu fjarskipta í dreifbýli í kjölfar lokunar á 2G sendum og fyrirhugaðrar lokunar á 3G sendum. Fjölmargar ábendingar hafa borist ráðinu um að staða fjarskipta í sveitarfélaginu hafi versnað mikið við breytinguna. Í drögum að þingsályktun um samgönguáætlun kemur fram að til standi að bæta farnetssamband á þjóðvegum. Ráðið fagnar því en bendir á að víðtækari úrbóta er þörf í kjölfar aflagningar á 2G og 3G sendum. Um gríðarlegt öryggismál er að ræða fyrir íbúa í dreifbýli og óásættanlegt annað en að ráðist verði í úrbætur strax.
Var efnið á síðunni hjálplegt?