Byggðarráð - 1271

Málsnúmer 2602006F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 401. fundur - 12.03.2026

Elín Lilja Gunnarsdóttir sat fundinn með fjarfundabúnaði.

Oddviti setti fund og óskaði eftir að taka á dagskrá sem 8. dagskrárlið bókun vegna minnisblaðs starfshóps um hringveg um Vestfirði. Samþykkt samhljóða.

Fundargerð 1271. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 401. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Magnús Magnússon formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1271 Húnaþing vestra á einn fulltrúa í nefndinni. Í 28. gr laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, er kveðið á um að þegar tilnefnt er í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli tilnefna bæði karl og konu. Ráðherra velur úr tilnefningum svo kynjaskipting sé sem jöfnust.
    Byggðarráð samþykkir að tilnefna Magnús Magnússon og Elínu Lilju Gunnarsdóttur til setu í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 fyrir hönd Húnaþings vestra. Húnaþing vestra áskilur sér rétt til að skipa nýja fulltrúa að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1271 Byggðarráð fagnar styrkveitingunni og felur sveitarstjóra að vinna verkefnið áfram.
  • .3 2602048 Styrkumsókn
    Byggðarráð - 1271 Ekki er hægt að verða við styrkbeiðninni.
  • Byggðarráð - 1271
  • Byggðarráð - 1271
  • Byggðarráð - 1271 Vátryggingavernd Húnaþings vestra var boðin út á TED (EES) og útboðsvefnum með skilafresti til kl. 12:00 þann 20. febrúar. Útboðið var unnið af Consello vátryggingamiðlun.
    4 tilboð bárust:
    Sjóvá, kr. 15.334.607.
    TM, kr. 16.336.576.
    VÍS, kr. 14.421.905.
    Vörður, kr. 15.182.914.
    Lægsta tilboð frá VÍS uppfyllir öll skilyrði útboðsins.
    Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði VÍS og felur sveitarstjóra undirritun samnings þar um í samræmi við skilmála útboðsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?