Byggðarráð

1272. fundur 09. mars 2026 kl. 14:00 - 15:20 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá

1.Niðurstaða rafmagnsútboðs 2026

Málsnúmer 2602020Vakta málsnúmer

Lögð fram til staðfestingar opnunarskýrsla örútboðs rafmagnsútboðs frá 6. mars 2026.
Í gegnum Fjársýslu ríkisins var sent út örútboð vegna raforkusölu til þeirra sem eru aðilar að rammasamningi við Fjársýsluna, en sex aðilar eru aðilar að samningnum.

Þrír aðilar sendu inn tilboð, Orka náttúrunnar ohf. (8,31 kr. á kWh), HS orka (7,92 kr. á kWh) og Straumlind (7,89 kr. á kWh). Allar fjárhæðir eru með virðisaukaskatti.

Byggðarráð samþykkir að taka tilboði Straumlindar sem gildir frá júní 2026, til þriggja ára mögulegri framlengingu til eins árs.

2.Forkaupsréttur að skipi - Austfirðingur HU-205

Málsnúmer 2603008Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Stígvélinu ehf., varðandi það hvort Húnaþing vestra hyggist nýta sér forkaupsrétt að bátnum Austfirðingi HU-205.
Samkvæmt 3. mgr. 12. gr. laga um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 hefur sveitarstjórn sveitarfélags seljanda forkaupsrétt að skipi sé heimilisfesti kaupanda í öðru sveitarfélagi.

Byggðarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að vélbátnum Austfirðingi HU-205.

3.Víkingurinn 2026

Málsnúmer 2602075Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkbeiðni frá félagi kraftamanna vegna Víkingsins - keppni sterkustu manna landsins, sem fram fer í júlí 2026.
Ekki er unnt að verða við styrkbeiðninni.

4.Mál til umsagnar - varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón - 499. mál - Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis

Málsnúmer 2603017Vakta málsnúmer

Lagt fram mál til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

5.Fundargerð 1. fundar kjörstjórnar vegna sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026

Málsnúmer 2603003Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar kjörstjórnar vegna sveitarstjórnarkosninga 2026.
Í fundargerðinni kemur m.a. fram að kjörstjórnin hafi samþykkt að nýta rafrænt meðmælakerfi vegna sveitarstjórnarkosninganna 2026. Jafnframt kemur fram að kjörstjórn óski eftir sjónarmiðum umboðsmanna framboðanna og núverandi sveitarstjórnar til þess að kjörfundi verði slitið kl. 20:00. Byggðarráð samþykkir að vísa þeirri hugmynd til afgreiðslu sveitarstjórnar.

6.Farsældarteymi - 44

Málsnúmer 2601004FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 44. fundar farsældarteymis.
  • Farsældarteymi - 44 Settar voru helstu áherslur ársins 2026:

    1. Endurskoðun verklags

    Verklag um tilvísanir, hlutverk og teymisvinnu yfirfarið og skýrt snemma árs.

    Áhersla á einfaldleika, samræmi og skýra ábyrgð þjónustuaðila.

    Tenging við handbók um stoðþjónustu.

    Gátlistar leikskóla og grunnskóla.

    2. Rödd barna, barnaþing

    Barna-/ungmennaþing haldið, stefnt að mars.

    Sjónarmið barna nýtt til að móta verklag og áherslur farsældarteymis.

    Samstarf við ungmennaráð - virkja ungmennaráð.

    3. Undirbúningur krakkasveiflu 2026

    Dagskrá og skipulag.

    Drög lögð fyrir í mars.

    4. Kynning og fræðsla, unnin af nemendum

    Allt kynningar- og fræðsluefni unnið af nemendum.

    Stutt myndbönd og einfalt efni sem sýnir fjölbreytta upplifun barna.

    Efni birt á heimasíðu og samfélagsmiðlum og nýtist áfram allt árið.

    5. Skýr upplýsingagjöf til foreldra

    Einföld skilaboð um hlutverk foreldra og sveitarfélags.

    6. Forvarnaáætlun

    Samvinna við ungmennaráð.

    Ákveðið að setja í forgang að virkja ungmennaráð, undirbúa barnaþing og krakkasveiflu fyrir næsta fund farsældarteymis. Sviðsstjóra falið að kalla saman undirbúningshópa vegna þessarar vinnu.

7.Farsældarteymi - 45

Málsnúmer 2512008FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 45. fundar farsældarteymis.
  • Farsældarteymi - 45 1. Ungmennaráð. Skipun nýs ungmennaráðs er á dagskrá sveitarstjórnar. Rætt um hvernig hægt er að auka virkni ráðsins. M.a. aldursbil, fundartíðni, tenging við stjórnsýslu, kjörna fulltrúa og fastanefndir, upplýsingagjöf, fjarfundamöguleika, tenging við nemendaráð o.fl.
    2. Barnaþing. Verður 23. - 27. mars. Drög að uppsetningu þingsins verður send í næstu viku.
    3. Krakkasveifla. Undirbúningur kominn vel á veg. Stefnt er að aðskildri dagskrá yngsta stigs og miðstigs og samvinnu við íþróttafélag um reglulegar æfingar innan dagskrár. Ákveðið að elsti árgangur leikskóla taki þátt í dagskrá krakkasveiflunnar sem hluti af aðlögun að skólagöngu í grunnskóla frá og 22. júní 2026.
    4. Endurskoðun verklags farsældar. Frestað til næsta fundar.

8.Starfshópur um húsnæðisþörf og þróun útisvæðis Leikskólans Ásgarðs - 3

Málsnúmer 2601003FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 3. fundar starfshóps um húsnæðisþörf og þróun útisvæðis Leikskólans Ásgarðs.

9.Starfshópur um húsnæðisþörf og þróun útisvæðis Leikskólans Ásgarðs - 4

Málsnúmer 2601007FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 4. fundar starfshóps um húsnæðisþörf og þróun útisvæðis Leikskólans Ásgarðs.
  • Starfshópur um húsnæðisþörf og þróun útisvæðis Leikskólans Ásgarðs - 4 Farið yfir athugasemdir og tillögur starfsfólks og þær settar í vinnuskjal. Ákveðið að kalla eftir hugmyndum og athugasemdum frá íbúum og foreldrum um framtíðarþarfir leikskóla. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að draga saman helstu atriði úr vinnuskjali og birta til samráðs á heimasíðu.

10.Starfshópur um húsnæðisþörf og þróun útisvæðis Leikskólans Ásgarðs - 5

Málsnúmer 2602005FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 5. fundar starfshóps um húsnæðisþörf og þróun útisvæðis Leikskólans Ásgarðs.
  • Starfshópur um húsnæðisþörf og þróun útisvæðis Leikskólans Ásgarðs - 5 Farið var yfir innsendar athugasemdir úr opnu samráði. Þær eru í samræmi við atriðin í vinnuskjali starfshópsins. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs er falið að taka saman vinnuskjalið og undirbúa minnisblað til afgreiðslu byggðarráðs.

11.Starfshópur um gerð umferðaröryggisáætlunar - 2

Málsnúmer 2601006FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar starfshóps um gerð umferðaröryggisáætlunar.

12.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2602001Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 993. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

13.Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2026

Málsnúmer 2601028Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 136. og 137. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Fundi slitið - kl. 15:20.

Var efnið á síðunni hjálplegt?