Niðurstaða rafmagnsútboðs 2026

Málsnúmer 2602020

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1272. fundur - 09.03.2026

Lögð fram til staðfestingar opnunarskýrsla örútboðs rafmagnsútboðs frá 6. mars 2026.
Í gegnum Fjársýslu ríkisins var sent út örútboð vegna raforkusölu til þeirra sem eru aðilar að rammasamningi við Fjársýsluna, en sex aðilar eru aðilar að samningnum.

Þrír aðilar sendu inn tilboð, Orka náttúrunnar ohf. (8,31 kr. á kWh), HS orka (7,92 kr. á kWh) og Straumlind (7,89 kr. á kWh). Allar fjárhæðir eru með virðisaukaskatti.

Byggðarráð samþykkir að taka tilboði Straumlindar sem gildir frá júní 2026, til þriggja ára mögulegri framlengingu til eins árs.
Var efnið á síðunni hjálplegt?