Landbúnaðarráð - 223

Málsnúmer 2602001F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 401. fundur - 12.03.2026

Fundargerð 223. fundar landbúnaðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 401. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Sigríður Ólafsdóttir formaður landbúnaðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 223 Landbúnaðarráð samþykkir eftirfarandi úthlutun til viðhalds og endurnýjunar heiðagirðinga árið 2026:
    Fjallskiladeild Hrútafirði kr. 850.000.
    Fjallskiladeild Miðfirðinga kr. 1.200.000 og 250.000 vegna safngirðingar.
    Fjallskiladeild Víðdælinga kr. 1.200.000.

    Landbúnaðarráð leggur til að taxti við vinnu við heiðagirðingar á árinu 2026 verði eftirfarandi:
    Verktakagreiðsla kr. 4.065 pr. klukkustund, taxti fyrir fjórhjól verði kr. 4.065 pr. klukkustund og taxti fyrir sexhjól verði kr. 4.285 pr. klukkustund. Ofan á þessa taxta leggst 24% virðisaukaskattur. Akstur verður greiddur samkvæmt taxta ríkisins.

    Landbúnaðarráð minnir á mikilvægi þess að fjallskilastjórnir haldi kostnaði vegna heiðagirðinga innan fjárhagsheimilda. Jafnframt er minnt á að samkvæmt reglum vegna styrkja til fjallskiladeilda skal öllum reikningum skilað fyrir 31. október nk.
    Bókun fundar Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • .2 2602083 Minkaveiði 2026
    Landbúnaðarráð - 223 Ekki hefur gengið vel að fá veiðimenn til að sinna minkaveiðum í sveitarfélaginu síðastliðin ár. Formanni landbúnaðarráðs og sveitarstjóra er falið að boða formenn veiðifélaga til fundar til að ræða sameiginlega aðkomu að veiðunum.
  • Landbúnaðarráð - 223 Landbúnaðarráð lýsir áhyggjum sínum af stöðu fjarskipta í dreifbýli í kjölfar lokunar á 2G sendum og fyrirhugaðrar lokunar á 3G sendum. Fjölmargar ábendingar hafa borist ráðinu um að staða fjarskipta í sveitarfélaginu hafi versnað mikið við breytinguna. Í drögum að þingsályktun um samgönguáætlun kemur fram að til standi að bæta farnetssamband á þjóðvegum. Ráðið fagnar því en bendir á að víðtækari úrbóta er þörf í kjölfar aflagningar á 2G og 3G sendum. Um gríðarlegt öryggismál er að ræða fyrir íbúa í dreifbýli og óásættanlegt annað en að ráðist verði í úrbætur strax. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir áhyggjur landbúnaðarráðs af stöðu fjarskipta í dreifbýli í kjölfar lokunar á 2G sendum og fyrirhugaðrar lokunar á 3G sendum.
  • .4 2602085 Styrkvegir 2026
    Landbúnaðarráð - 223 Landbúnaðarráð samþykkir greinargerð með umsókn um framlag Vegagerðarinnar til styrkvegaframkvæmda nk. sumar og þakkar góða vinnu sveitarstjóra og fjallskilastjórna við gerð hennar.
  • Landbúnaðarráð - 223 Landbúnaðarráð lýsir yfir vonbrigðum með framgöngu MAST við áhættuflokkun bæja vegna riðu í sveitarfélaginu. Ráðið gerir athugasemd við að sveitarfélagið hafi ekki verið upplýst um vinnuna þar sem flokkun bæja getur tengst fjallskilum. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir með landbúnaðarráði vegna framgöngu MAST við áhættuflokkun bæja vegna riðu í sveitarfélaginu og skort á upplýsingaflæði vegna þessarar vinnu enda tengist vinnan fjallskilum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?