Sveitarstjórn

399. fundur 08. janúar 2026 kl. 15:00 - 15:50 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Þorleifur Karl Eggertsson oddviti
  • Magnús Magnússon varaoddviti
  • Sigríður Ólafsdóttir aðalmaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Ingimar Sigurðsson aðalmaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Oddviti setti fund.

Fundargerð 1265. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 399. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

1.Byggðarráð - 1265

Málsnúmer 2512004FVakta málsnúmer

Magnús Magnússon formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 1266. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 399. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

2.Byggðarráð - 1266

Málsnúmer 2512010FVakta málsnúmer

Magnús Magnússon formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1266 Byggðarráð þakkar þeim starfsmönnum sem tóku þátt í könnuninni fyrir að láta sig málið varða. Helstu ábendingar lutu að mælikvörðum aðgerða. Byggðarráð sér ekki ástæðu til að gera breytingar á mælikvörðunum að svo komnu en beinir því til komandi sveitarstjórnar að taka tillit til ábendinga við gerð nýrrar áætlunar að loknum gildistíma núverandi áætlunar. Byggðarráð samþykkir framlagða uppfærða jafnréttisáætlun ásamt stöðumati og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
  • Byggðarráð - 1266 Byggðarráð samþykkir framlagða Húsnæðisáætlun Húnaþings vestra og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
  • Byggðarráð - 1266 Samkvæmt tilkynningu innviðaráðuneytis er Húnaþingi vestra úthlutað 100 tonnum af byggðakvóta fiskveiðiárið 2025/2026 í stað 130 tonnum fiskveiðiárið 2024/2025. Í tilkynningunni er sveitarfélaginu gefinn frestur til 19. janúar til að gera tillögur að sérreglum um úthlutun kvótans.
    Ákvæði reglugerðar nr. 1335/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Húnaþings vestra með eftirfarandi viðauka/breytingum:
    I.1.málsl. 1.mgr. 4.gr. reglugerðarinnar: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1.gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum og ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3.gr., eftir því sem við á þannig að:
    a. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 818/2024 vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 819/2024, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025. Við skiptingu þessa 50% byggðakvóta Húnaþings vestra, til framangreindra skipa, skal miða við meðaltal landaðs botnfiskafla í þorskígildum talið, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn fiskveiðiárið 2024/2025.
    b. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 1334/2024, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026. Skiptingunni verður háttað með þeim hætti að hvert fiskiskip sem uppfyllir framangreind ákvæði hlýtur að lágmarki 40 tonn og eftirstöðvum úthlutað miðað við meðaltal landaðs botnfiskafla, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn fiskveiðiárið 2024/2025.
    c. Skip eiga rétt til úthlutunar úr báðum pottum samkvæmt a- og b-lið, að uppfylltum skilyrðum.
    Rökstuðningur: Af þeim bátum sem gera út frá Hvammstanga er aðeins hluti þeirra sem varð fyrir áhrifum aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa. Fyrir þá báta sem ekki hljóta kvóta vegna rækjubrests er mjög erfitt að safna upp löndunarreynslu og því er lagt til að sá hluti byggðakvótans sem b. liður nær yfir verði að lágmarki veitt 40 tonnum á hvern bát og því sem eftir stendur úthlutað út frá löndunarreynslu.
    II. 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:
    Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
    Rökstuðningur: Í byggðarlaginu er engin fiskvinnsla.


  • Byggðarráð - 1266 Svör við verðfyrirspurn bárust frá KPMG, HLH ráðgjöf og Strategíu. Að undangegnu mati á nálgun verkefnisins, reynslu af sambærilegum verkefnum og verði samþykkir byggðarráð að fela KPMG vinnslu úttektarinnar. Áætlaður kostnaður er 3,4-4,2 milljónir. Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 2.5 2310068 Gott að eldast
    Byggðarráð - 1266 Í minnisblaðinu kemur fram að verkefnið hafi almennt gengið vel og ánægja sé með þjónustuna. Byggðarráð þakkar greinargóðar upplýsingar.
Fundargerð 399. fundar skipulags- og umhverfisráðs lögð fram til afgreiðslu á 399. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

3.Skipulags- og umhverfisráð - 382

Málsnúmer 2512011FVakta málsnúmer

Ingimar Sigurðsson formaður skipulags- og umhverfisráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 382 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna, sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og telur að um sé að ræða frávik frá skilmálum/byggingarreit áður en afgreiðsla málsins fer fram.

    Grenndarkynna skal fyrir eigendum aðliggjandi fasteigna:

    Lindarvegur 1a
    Lindarvegur 8
    Lindarvegur 22
    Bókun fundar Magnús Magnússon vék af fundi kl. 15:13.
    Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
    Magnús Magnússon kom aftur til fundar kl. 15:15.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 382 Skipulags- og umhverfisráð leggur til að skipulagsfulltrúi afli viðeigandi gagna og leggi þau fram á næsta fundi ráðsins vegna fyrirspurnar dags. 18. desember 2025.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 382 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu Reykjatanga í samræmi við meðfylgjandi gögn og felur skipulagsfulltrúa að annast áframhaldandi frágang og senda til viðeigandi skráningar. Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 382 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu Búlands og Höfðabrautar í samræmi við meðfylgjandi gögn og felur skipulagsfulltrúa að annast áframhaldandi frágang og senda til viðeigandi skráningar. Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 382 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu fyrir Kirkjuhvammur-vatnstankur í samræmi við meðfylgjandi gögn og felur skipulagsfulltrúa að annast áframhaldandi frágang og senda til viðeigandi skráningar. Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 258. fundar fræðsluráðs lögð fram til afgreiðslu á 399. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

4.Fræðsluráð - 258

Málsnúmer 2512007FVakta málsnúmer

Elín Lilja Gunnarsdóttir formaður fræðsluráðs kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Fræðsluráð - 258 Foreldrakönnun Tónlistarskóla Húnaþings vestra sýnir að mjög almenn ánægja ríkir með starfsemi skólans og líðan nemenda. Skólastjóra tónlistarskóla er falið að vinna úr þeim ábendingum sem komu fram í könnuninni.
  • Fræðsluráð - 258 Lögð fram drög að handbók stoðþjónustu sem tilgreinir skráningu á grunnfærni nemenda í leik- og grunnskóla í Húnaþingi vestra í kjölfar úttektar Ásgarðs skólaþjónustu. Fræðsluráð fagnar gerð handbókarinnar og óskar eftir að fá hana til yfirferðar og samþykktar þegar hún verður fullgerð.
  • 4.3 2510057 Matsferill
    Fræðsluráð - 258 Skólastjórnendur Grunnskóla Húnaþings vestra taka undir tillögu fræðsluráðs um að Matsferill verði lagður fyrir í 4. - 10. bekk. Fræðsluráð samþykkir að Matsferill verði hluti af námsmati þessara bekkja.
  • Fræðsluráð - 258 Lögð fram tillaga að samráðsferli um mönnunarlíkan fyrir grunnskóla og leikskóla í samræmi við tillögur sem komu fram í úttekt Ásgarðs skólaþjónustu. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að vinna málið áfram.
  • Fræðsluráð - 258 Lögð fram fyrstu drög að fræðsluáætlun fyrir vorönn 2026.
  • Fræðsluráð - 258 Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir helstu verkefni sviðsins í desember 2025.
  • 4.7 2512009F Farsældarteymi - 43
    Fræðsluráð - 258
Fundargerð 43. fundar farsældarteymis lögð fram til afgreiðslu á 399. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

5.Farsældarteymi - 43

Málsnúmer 2512009FVakta málsnúmer

Þorleifur Karl Eggertsson oddviti kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Farsældarteymi - 43 Staða innleiðingar á farsæld barna.

    Sólveig Rósa og Berglind fóru yfir stöðu sveitarfélagsins út frá matslistum BOFS. Staða sveitarfélagsins í innleiðingu farsældar barna er til fyrirmyndar.

6.Jafnréttisáætlun 2023-2026

Málsnúmer 2308018Vakta málsnúmer

Uppfærð jafnréttisáætlun Húnaþings vestra lögð fram til staðfestingar.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir endurskoðaða jafnréttisáætlun Húnaþings vestra fyrir árin 2023-2026.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Húsnæðisáætlun 2026

Málsnúmer 2512015Vakta málsnúmer

Húsnæðisáætlun 2026-2035 lögð fram til staðfestingar.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir Húsnæðisáætlun Húnaþings vestra fyrir árin 2026-2035.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025-2026

Málsnúmer 2512068Vakta málsnúmer

Sérreglur Húnaþings vestra vegna úthlutunar byggðakvóta fiskveiðiárið 2025/2026 lagðar fram til staðfestingar.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Ákvæði reglugerðar nr. 1335/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Húnaþings vestra með
eftirfarandi viðauka/breytingum:
I.1.málsl. 1.mgr. 4.gr. reglugerðarinnar: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut
byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra
fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1.gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum og ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3.gr., eftir því sem við á þannig að:
a. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 818/2024 vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 819/2024, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025. Við skiptingu þessa 50% byggðakvóta Húnaþings vestra, til framangreindra skipa, skal miða við meðaltal landaðs botnfiskafla í þorskígildum talið, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn fiskveiðiárið 2024/2025.
b. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 1334/2024, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026. Skiptingunni verður háttað með þeim hætti að hvert fiskiskip sem uppfyllir framangreind ákvæði hlýtur að lágmarki 40 tonn og eftirstöðvum úthlutað miðað við meðaltal landaðs botnfiskafla, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn fiskveiðiárið 2024/2025.
c. Skip eiga rétt til úthlutunar úr báðum pottum samkvæmt a- og b-lið, að uppfylltum skilyrðum.
Rökstuðningur: Af þeim bátum sem gera út frá Hvammstanga er aðeins hluti þeirra sem varð fyrir áhrifum aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa. Fyrir þá báta sem ekki hljóta kvóta vegna rækjubrests er mjög erfitt að safna upp löndunarreynslu og því er lagt til að sá hluti byggðakvótans sem b.liður nær yfir verði að lágmarki veitt 40 tonnum á hvern bát og því sem eftir stendur úthlutað út frá löndunarreynslu.
II. 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:
Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
Rökstuðningur: Í byggðarlaginu er engin fiskvinnsla.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Skýrsla sveitarstjóra

Málsnúmer 2311018Vakta málsnúmer

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri fór yfir helstu verkefni sín frá síðasta reglulega sveitarstjórnarfundi. Skýrslan var flutt munnlega og til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:50.

Var efnið á síðunni hjálplegt?