Byggðarráð

1252. fundur 20. ágúst 2025 kl. 14:00 - 15:55 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sigríður Ólafsdóttir
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2507019Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að minnisblaði um forsendur fjárhagsáætlunarvinnu 2026.
Byggðarráð samþykkir að gengið verði út frá þeim forsendum sem fram koma í minnisblaðinu.

2.Milliuppgjör sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja, annar ársfjórðungur 2025.

Málsnúmer 2408023Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggja fram milliuppgjör sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2025.
Rekstur er almennt samkvæmt áætlun.

3.Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2025

Málsnúmer 2508032Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggja fram tillögu að viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun ársins 2025.
Viðaukinn er lagður fram m.a. í kjölfar yfirferðar á áhrifum kjarasamninga við KÍ og aukinnar stuðningsþarfar í grunnskóla. Til að mæta kostnaðarauka er m.a. lagt til að draga úr áætluðum framkvæmdum bæði Vatns- og Fráveitu sem ekki reyndist þörf á að ráðast í í tengslum við malbikun gatna. Áætlaður söluhagnaður er hækkaður til samræmis við raunsöluhagnað og loks er gengið á ófyrirséðan kostnað.
Upphæð viðaukans er kr. 8.093.000 vegna eignfærslu.
Hækkun eignfærðar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.
Samhliða framlagningu viðauka er lagt fram málaflokkayfirlit sem sýnir áhrif viðaukans á einstaka málaflokka.

4.Beiðni um viðbótarfjármagn vegna stoðþjónustu

Málsnúmer 2506021Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá stjórnendum Grunnskóla Húnaþings vestra um viðbótarfjármagn vegna stoðþjónustu skólans.
Byggðarráð samþykkir framlagða beiðni skólastjórnenda í samræmi við viðauka sem samþykktur var í öðrum dagskrárlið.

5.Veiðieftirlit vegna gæsa- og rjúpnaveiða haustið 2025

Málsnúmer 2507058Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur milli sveitarfélagsins og veiðieftirlitsmanns vegna eftirlits með veiðum haustið 2025.
Byggðarráð samþykkir framlagðan samning.

6.Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Skólavegar, Reykjum 1, af vegaskrá

Málsnúmer 2508009Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Vegagerðinni með tilkynningu um fyrirhugaða niðurfellingu Skólavegar, Reykjum 1, nr. 7023-1, af vegaskrá.

7.Aðalskipulag Húnaþing vestra 2026-2038

Málsnúmer 2502063Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að skipan vinnuhóps vegna vinnu við gerð aðalskipulags Húnaþings vestra 2026-2038 ásamt tillögu að erindisbréfi hópsins.
Byggðarráð samþykkir að stofnaður verði vinnuhópur vegna vinnu við gerð aðalskipulags Húnaþings vestra 2026-2038 og erindisbréf hópsins.


8.Umferðaröryggisáætlun

Málsnúmer 2501035Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að skipan vinnuhóps vegna vinnu við gerð umferðaröryggisáætlunar ásamt tillögu að erindisbréfi hópsins.
Byggðarráð samþykkir að stofnaður verði vinnuhópur vegna vinnu við gerð umferðaröryggisáætlunar og erindisbréf hópsins.

9.Landbúnaðarráð - 220

Málsnúmer 2507002FVakta málsnúmer

  • Landbúnaðarráð - 220 Landbúnaðarráð samþykkir framlögð drög og felur sveitarstjóra birtingu þeirra.

    Bókun fundar Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 220 Landbúnaðarráð minnir fjallskiladeildir á að skila umsóknum um framlög árið 2026 eigi síðar en 15. september. Umsóknum er skilað á íbúagátt.
  • Landbúnaðarráð - 220 Landbúnaðarráð samþykkir að fyrirkomulag rjúpnaveiða verði óbreytt frá fyrra ári

    Rjúpnaveiði 2025 verður með eftirfarandi hætti:

    Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagins. Í boði verða tvenns konar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði, en þau eru;

    a) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði ásamt jörðunum Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og eignarhlut Húnaþings vestra í Öxnártungu (svæði 1).
    b) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru (svæði 2).
    Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið gefur út vegna ársins 2025 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.

    Veiðileyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 11.000 á dag.

    Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði 1 er takmarkaður við 4 byssur á dag, en 5 byssur á svæði 2. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

    Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Veiðileyfið veitir því ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.

    Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er ákveðið og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.
    Bókun fundar Sigríður Ólafsdóttir vék af fundi kl. 15:33.

    Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 2 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 220 Landbúnaðarráð samþykkir að fyrirkomulag gæsaveiða verði óbreytt frá fyrra ári.

    Gæsaveiðar 2025 verða með eftirfarandi hætti:

    Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til gæsaveiða í eignarlöndum sveitarfélagins.

    Í boði er að kaupa leyfi á þremur svæðum;
    a. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði austan Víðidalsár ásamt jörðinni Öxnártungu.
    b. Víðidalstunguheiði vestan Víðidalsár ásamt jörðunum Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Króki.
    c. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.

    Hvert veiðileyfi gildir þann dag sem tilgreindur er á viðkomandi leyfi og er útgefið innan þess gæsaveiðitíma sem umhverfisráðuneytið gefur út vegna ársins 2025. Leyfið veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.

    Leyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000 á dag.

    Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði er takmarkaður við 4 byssur á hverju svæði á dag. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

    Með vísan til 7. gr. Fjallskilasamþykktar Húnaþings vestra er óheimilt að nýta hunda og flygildi (dróna) til veiða fyrr en fyrstu göngum á viðkomandi afrétti er lokið.

    Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Veiðileyfið veitir því ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.

    Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.
    Bókun fundar Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 2 atkvæðum.

    Sigríður Ólafsdóttir kom aftur til fundar kl. 15:35.
  • Landbúnaðarráð - 220 Landbúnaðarráð samþykkir að veiðieftirlit verði með sama hætti og undanfarin ár. Lagður er fram samningur við eftirlitsmann, Júlíus Guðna Antonsson, um eftirlitið. Landbúnaðarráð samþykkir samninginn.
  • Landbúnaðarráð - 220 Úthlutun ársins er kr. 2.500.000. Fjallskiladeildir hafa þegar verið upplýstar um úhlutunina.

10.Skipulags- og umhverfisráð - 378

Málsnúmer 2507007FVakta málsnúmer

  • Skipulags- og umhverfisráð - 378 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsókn Fasteignafélagsins Ebbu ehf. um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki II. Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 378 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að heimila vinnslu á deiliskipulagstillögu á nýrri staðsetningu við afleggjarann á Norðurlandsvegi nr: 1 og Miðfjarðarvegar nr: 704.
    Við endanlega deiliskipulagstillögu skal liggja fyrir skriflegt samþykki landeiganda og kynna aðliggjandi jarðareigendum.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 378 Skipulag- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsókn ferðaþjónustunnar Mörk um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II C. Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 378 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja merkjalýsingu gerða af Káraborg ehf. dags. 10.07.2025. Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 378 Skipulags-og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja leiðréttingu stærðar og hnita í Víðigerði. Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

11.Fundargerð fjallskilastjórnar Hrútfirðinga frá 8. ágúst 2025 lögð fram til kynningar.

12.Fundargerð fjallskilastjórnar Miðfirðinga 7. ágúst 2025 lögð fram til kynningar.

Bætt á dagskrá:

13.Fundarboð - Almennur félagsfundur

Málsnúmer 2508041Vakta málsnúmer

Lagt fram fundarboð á almennan félagsfund í Veiðifélagi Víðidalsár sem fram fer 28. ágúst 2025.
Sigríður Ólafsdóttir formaður landbúnaðarráðs verður fulltrúi Húnaþings vestra á fundinum og fer með atkvæðisrétt.

Fundi slitið - kl. 15:55.

Var efnið á síðunni hjálplegt?