Byggðarráð

1262. fundur 24. nóvember 2025 kl. 14:00 - 15:45 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá

1.Beiðni um afslátt af leigu á Félagsheimilinu Hvammstanga vegna jólamarkaðar

Málsnúmer 2511027Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Kristínar Guðmundsdóttur um afslátt af leigu á Félagsheimilinu Hvammstanga vegna jólamarkaðar sem haldinn verður 29. nóvember.
Byggðarráð samþykkir veitingu afsláttar vegna viðburða í samfélagsþágu.

2.Gróðurhús (bambahús) - Leikskólinn Ásgarður - erindi frá nemendum

Málsnúmer 2511034Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá nemendum í elsta árgangi Leikskólans Ásgarðs með ósk um stuðning við að koma upp gróðurhúsi (bambahúsi).
Í erindinu kemur fram að nemendur hyggjast safna sér fyrir gróðurhúsinu og hafi útbúið myndband til að kynna söfnunina sem sent verður á valda aðila. Ekki er óskað eftir fjárstuðningi frá sveitarfélaginu. Nemendur komu til fundar við sveitarstjóra og kynntu verkefnið og færðu henni myndir sem þeir teiknuðu af húsinu, grænmeti o.fl. Myndirnar voru lagðar fram á fundinum.

Byggðarráð fagnar framtaki nemenda í elsta árgangi Leikskólans Ásgarðs og óskar þeim góðs gengis með söfnunina. Stuðningur sveitarfélagsins verður í formi kynningar á verkefninu ásamt því að koma húsinu fyrir á leikskólalóðinni þegar þar að kemur.

3.Styrkumsókn - verndun Gunnfaxa

Málsnúmer 2511036Vakta málsnúmer

Lögð fram styrksumsókn frá félagasamtökunum Vinir Gunnfaxa vegna varðveislu flugvélarinnar Gunnfaxa TF-ISB.
Því miður er ekki unnt að verða við styrkbeiðninni.

4.Viðauki við samning um rekstur Náttúrustofu Norðurlands vestra 2026

Málsnúmer 2511037Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki við samning milli umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, Húnaþings vestra, Skagafjarðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar um rekstur Náttúrustofu Norðurlands vestra.
Í viðaukanum felst framlenging á samningi um rekstur Náttúrustofu Norðurlands vestra um eitt ár, út árið 2026.
Byggðarráð samþykkir framlagðan samning og felur sveitarstjóra undirritun hans. Ráðið skorar á ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála að ganga sem fyrst frá framtíðarsamningi um rekstur stofunnar til að tryggja rekstrargrundvöll og starfsemi til langs tíma.

5.Bréf til byggðarráðs, sveitarstjóra og sveitarstjórnar Húnaþings vestra

Málsnúmer 2511039Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Borghildi Heiðrúnu Haraldsdóttur.
Í bréfinu gerir bréfritari athugasemdir við afgreiðslu umsóknar sinnar um námsstyrk vegna náms í kennarafræðum við Háskólann á Akureyri og próftökugjald í fjarnámsstofu.

Umsókn bréfritara um námsstyrk var tekin fyrir á 1250. fundi byggðarráðs og svohljóðandi bókað:

„Fyrir liggur umsögn skólastjóra um beiðnina. Þar kemur fram að kennarahópur grunnskólans sé nær eingöngu skipaður einstaklingum með leyfisbréf eða í viðeigandi námi. Með tilliti til framtíðarskipulags og óvissu um þörf eftir fjögurra ára námstíma er erfitt að meta fyrirliggjandi þörf stofnunarinnar.
Í ljósi framangreinds og með vísan í 6. gr. reglna um námsstyrki til starfsmanna Húnaþings vestra samþykkir byggðarráð að hafna umsókninni. Umsækjanda er bent á að hámarksstyrkur skv. framangreindum reglum er til tveggja ára og því gætu gefist tækifæri til að sækja um styrk síðar á námstímanum, einkum ef breyting verður á þörf stofnunarinnar.“

Byggðarráð staðfestir fyrri afgreiðslu sína á beiðni um námsstyrk enda er hún í samræmi við gildandi reglur um veitingu námsstyrkja og mat skólastjóra á þörf. Við lok yfirstandandi skólaárs verða um 90% kennara við Grunnskóla Húnaþings vestra með kennsluréttindi auk eins réttindakennara sem er í námsleyfi. Er það hlutfall hátt samanborið við skóla af sambærilegri stærð.

Hvað próftökugjald í fjarnámsstofu varðar urðu þau leiðu mistök að tilkynningu þar um var ekki komið á framfæri við notendur þjónustunnar þegar gjaldskrá tók gildi í upphafi árs 2025. Hlutaðeigendur eru beðnir innilegrar afsökunar á því. Vegna þeirra mistaka verður ekki innheimt próftökugjald vegna ársins 2025.

Fylgiskjöl:

6.Umsókn um styrk í C-1 lið byggðaáætlunar 2025

Málsnúmer 2511033Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað sveitarstjóra vegna umsóknar um styrk í C-1 lið byggðaáætlunar.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá umsókn fyrir hönd sveitarfélagsins.

7.Þóknun kjörstjórnar

Málsnúmer 2511041Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá formanni sameiginlegrar kjörstjórnar Dalabyggðar og Húnaþings vestra.
Í minnisblaðinu er lögð fram tillaga um að þóknun fulltrúa í sameiginlegri kjörstjórn Dalabyggðar og Húnaþings vestra verði í samræmi við þóknun fulltrúa í kjörstjórn Húnaþings vestra. Formaður fái greiddar kr. 8.664 pr. klst. Aðrir stjórnarmenn kr. 7.076 pr. klst.
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu. Vert er að taka fram að þóknun kjörstjórnar greiðst af sérstökum styrk jöfnunarsjóðs til sameiningarviðræðna.

8.Verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög - Mál til umsagnar - Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis

Málsnúmer 2511025Vakta málsnúmer

Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

9.Breyting á þingsályktun nr. 24152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða - Mál til umsagnar - Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis

Málsnúmer 2511026Vakta málsnúmer

Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

10.Innleiðing landsbyggðarmats í stefnumótun og lagasetningu stjórnvalda - Mál til umsagnar - Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis

Málsnúmer 2511032Vakta málsnúmer

Lagt fram til umsagnar mál frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis varðandi umsögn um þingsályktunartillögu um innleiðingu landsbyggðarmats í stefnumótun og lagasetningu stjórnvalda, 175. mál.
Húnaþing vestra vill leggja áherslu á mikilvægi þess að stefnumótun og lagasetning stjórnvalda taki fullt tillit til þeirra aðstæðna sem einkenna sveitarfélög á landsbyggðinni. Reynslan sýnir að ákvarðanir hins opinbera leiða oft til ófyrirséðra áhrifa á rekstur og þjónustu sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta á sérstaklega við um fjárhagsleg áhrif, en einnig flækjur í regluverki, skerðingu á þjónustu eða aukna stjórnsýslubyrði.

Húnaþing vestra tekur því undir það mat sem fram kemur í greinargerð tillögunnar, að innleiðing landsbyggðarmats geti:
-
komið í veg fyrir óvæntar byrðar,
-
aukið gagnsæi og samhæfingu í stjórnsýslu ríkisins,
-
og bundið í upphafi vinnslu mála þá hagsmuni sem annars kæmu fram alltof seint þegar mótvægisaðgerðir yrðu kostnaðarsamar eða of seint fram komnar.

Sveitarfélagið tekur sérstaklega undir þá áherslu sem fram kemur í tillögunni, að með slíku mati sé „dregið úr líkum á því að síðar þurfi að grípa til kostnaðarsamra mótvægisaðgerða til að leiðrétta óvæntar byrðar eða ósanngjörn áhrif stefnumótunar eða lagasetningar stjórnvalda“. Þetta er grundvallarsjónarmið, ekki aðeins í þágu tiltekinna svæða heldur alls samfélagsins, þar sem vandað ferli frá upphafi tryggir bæði réttláta og hagkvæma ákvörðunartöku fyrir ríkið í heild.

Húnaþing vestra vill jafnframt undirstrika að landsbyggðarmat þarf að byggjast á raunhæfum gögnum og staðbundinni greiningu, í samráði við sveitarfélög sem þekkja aðstæður best. Slíkt samstarf eykur gæði matsins og tryggir að niðurstöður þess verði bæði markvissar og framkvæmanlegar.

Að öllu framangreindu virtu styður Húnaþing vestra heilshugar framlagða þingsályktunartillögu og telur hana mikilvægt skref í átt að sanngjarnari og ábyrgari stjórnsýslu gagnvart íbúum landsbyggðarinnar og sveitarfélögum þeirra.

11.Beiðni um skipan raflínunefndar vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 (2025)

Málsnúmer 2507018Vakta málsnúmer

Lagt fram svarbréf félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá 13. nóvember 2025 við beiðni Landsnets um að skipuð verði sérstök raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1.
Í bréfinu kemur fram að ráðuneytið samþykkir skipun raflínunefndar vegna Holtavörðuheiðarlínu 1.

Byggðarráð ítrekar fyrri afstöðu sína til skipan raflínunefnda þess efnis að með því sé gengið á skipulagsvald sveitarfélaga.

12.Tilkynningu um fyrirhugaða niðurfellingu af vegaskrá - Brúarholtsvegur nr. 7053-01

Málsnúmer 2511035Vakta málsnúmer

Lögð fram tilkynning frá Vegargerðinni um fyrirhugaða niðurfellingu Brúarholtsvegar nr. 7053-01 af vegaskrá.

13.Kortlagning á aðgerðum sveitarfélaga í umhverfis- og loftslagsmálum - skýrsla

Málsnúmer 2511038Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla innviðaráðuneytis um kortlagningu á aðgerðum sveitarfélaga í umhverfis- og loftslagsmálum.

14.Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2025

Málsnúmer 2501012Vakta málsnúmer

Fundargerð 132. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lögð fram til kynningar.

15.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

Málsnúmer 2501002Vakta málsnúmer

Fundargerð 988. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
Bætt á dagskrá:

16.Úthlutun leiguíbúðar

Málsnúmer 2511042Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Antoni Scheel Birgissyni og Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttur um framlengingu á leigusamingi að Garðavegi 18, efri hæð.
Byggðarráð samþykkir framlengingu leigusamnings til 30. nóvember 2026.

Fundi slitið - kl. 15:45.

Var efnið á síðunni hjálplegt?