Byggðarráð

1281. fundur 29. júní 2026 kl. 14:00 - 14:42 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá

1.Boð á aðalfund Ámundakinnar 2026

Málsnúmer 2606072Vakta málsnúmer

Lagt fram fundarboð á aðalfund Ámundakinnar ehf., dags. 23. júní 2026, vegna ársins 2025.
Fundurinn fer fram 2. júlí nk. Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri, verður fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.

2.Kauptilboð í fasteignina Reykjatangi lóð, F2132834

Málsnúmer 2606080Vakta málsnúmer

Lagt fram kauptilboð frá Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttur, dags. 25. júní 2026, í fasteignina Reykjatangi lóð, F2132834.
Viktor Ingi Jónsson vék af fundi kl. 14:12 vegna vanhæfis.

Á 1273. fundi byggðarráðs sem haldinn var þann 23. mars sl. var samþykkt að selja húseignina Reykjatanga lóð, F2132834 í því ástandi sem húsið er en þar hafði orðið umtalsvert vatnstjón sem bætt var af tryggingafélagi. Eignin var auglýst til sölu hjá Nes fasteignasölu 28. maí 2026.

Lagt fram kauptilboð frá Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttur dags. 25. júní 2026, í eignina. Hljóðar tilboðið upp á 9 millj. króna.

Byggðarráð samþykkir með 2 atkvæðum að taka tilboði Guðrúnar Gróu Þorsteinsdóttur í húseignina Reykjatangi lóð, F2132834. Byggðarráð veitir jafnframt Unni Valborgu Hilmarsdóttur sveitarstjóra, kt. 160673-3119, fullt og ótakmarkað umboð til að ganga frá sölu á eigninni. Umboðið nær til þess að undirrita kauptilboð, kaupsamning, uppgjör, afsal, skuldabréf og öll önnur nauðsynleg skjöl vegna sölu framangreindrar eignar.

Viktor Ingi kom aftur til fundar kl. 14:17.

3.Reglugerð vegna barna með fjölþættan vanda

Málsnúmer 2606076Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 24. júní 2026, þar sem athygli sveitarfélaga er vakin á breytingu á ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda.
Byggðarráð Húnaþings vestra lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.

Byggðarráð telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og að það taki þá ábyrgð og skuldbindingu á málaflokknum sem samið var um.

4.Áherslur Landssambands eldri borgara vegna sveitarstjórnarkosninga 2026

Málsnúmer 2606071Vakta málsnúmer

Erindi frá Landssambandi eldri borgara, dags. í júní 2026, með áhersluatriðum sambandsins vegna sveitarstjórnarkosninga 2026 lagt fram til kynningar

5.Niðurfellingar vega af vegaskrá 2026

Málsnúmer 2601016Vakta málsnúmer

Afrit tilkynningar frá Vegagerðinni, dags. 16. júní 2026, vegna fyrirhugaðar niðurfellingar Fosshólsvegar af vegaskrá lagt fram til kynningar.

6.Ungmennaráð - 80

Málsnúmer 2606002FVakta málsnúmer

Fundargerð 80. fundar ungmennaráðs frá 16. júní 2026 lögð fram til afgreiðslu á 1281. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Ungmennaráð - 80 Farið var yfir erindisbréf ráðsins. Að því loknu kaus ráðið Heiðu Báru Pétursdóttur sem formann og Birtu Ögn Alferðsdóttur sem varaformann. Fundartímar skulu að jafnaði vera á þriðjudögum kl. 15:00, fjórum sinnum á ári.
  • Ungmennaráð - 80 Samþykkt að svara lykilspurningum UNESCO í tengslum við barnaþing næsta haust.
  • Ungmennaráð - 80 Samþykkt að fela Jóhanni Erni að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að sækja ráðsetfnuna Ungt fólk og lýðheilsa í skólabúðunum á Reykjum í september 2026. Ungmennaráð mun velja úr umsóknum.
  • 6.4 2606046 Barnaþing
    Ungmennaráð - 80 Unnin frumdrög að skipulagi barnaþings. Lagt til að barnaþing verðu haldið 8. september 2026 með fyrirvara um samþykki grunnskóla.

7.Félagsmálaráð - 269

Málsnúmer 2606006FVakta málsnúmer

Fundargerð 269. fundar félagsmálaráðs frá 24. júní 2026 lögð fram til afgreiðslu á 1281. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Félagsmálaráð - 269 Erindisbréf félagsmálaráðs og siðareglur kjörinna fulltrúa í Húnaþingi vestra lagðar fram til kynningar. Samþykkt að reglulegir fundir félagsmálaráðs verði síðasta miðvikudag í mánuði kl. 13:00
  • Félagsmálaráð - 269 Lögð fram drög að reglum um samfélagsviðurkenningar. Ein ábending barst úr opnu samráði. Félagsmálaráð samþykkir drög að reglum um samfélagsviðurkenningar með breytingum í samræmi við ábendingu úr opnu samráði.
  • Félagsmálaráð - 269 Fundargerðir fagráðs í málefnum fatlaðra lagðar fram til kynningar.
  • Félagsmálaráð - 269 Fríða Ósmann og Sindri Þórhallsson kynntu hugmyndateikningu af Félagsheimilinu Hvammstanga. Félagsmálaráð felur sviðsstjóra að halda kynningarfund fyrir íbúa og setja hugmyndateikningu í opið samráð.
  • Félagsmálaráð - 269
  • Félagsmálaráð - 269 Félagsmálaráð felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að leggja til úrbætur á umsjón og eftirliti í félagsheimilinu fyrir næsta fund.

8.Fræðsluráð - 263

Málsnúmer 2606005FVakta málsnúmer

Fundargerð 263. fundar fræðsluráðs frá 25. júní 2026 lögð fram til afgreiðslu á 1281. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

9.Fundargerð fjallskiladeildar Miðfirðinga 12. júní 2026

Málsnúmer 2606057Vakta málsnúmer

Fundargerð fundar fjallskiladeildar Miðfirðinga frá 12. júní 2026 lögð fram til kynningar.

10.Fundargerð fjallskilastjórnar Víðdælinga 19. júní 2026

Málsnúmer 2606058Vakta málsnúmer

Fundargerð fundar fjallskilastjórnar Víðdælinga frá 19. júní 2026 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:42.

Var efnið á síðunni hjálplegt?