Kauptilboð í fasteignina Reykjatangi lóð, F2132834

Málsnúmer 2606080

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1281. fundur - 29.06.2026

Lagt fram kauptilboð frá Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttur, dags. 25. júní 2026, í fasteignina Reykjatangi lóð, F2132834.
Viktor Ingi Jónsson vék af fundi kl. 14:12 vegna vanhæfis.

Á 1273. fundi byggðarráðs sem haldinn var þann 23. mars sl. var samþykkt að selja húseignina Reykjatanga lóð, F2132834 í því ástandi sem húsið er en þar hafði orðið umtalsvert vatnstjón sem bætt var af tryggingafélagi. Eignin var auglýst til sölu hjá Nes fasteignasölu 28. maí 2026.

Lagt fram kauptilboð frá Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttur dags. 25. júní 2026, í eignina. Hljóðar tilboðið upp á 9 millj. króna.

Byggðarráð samþykkir með 2 atkvæðum að taka tilboði Guðrúnar Gróu Þorsteinsdóttur í húseignina Reykjatangi lóð, F2132834. Byggðarráð veitir jafnframt Unni Valborgu Hilmarsdóttur sveitarstjóra, kt. 160673-3119, fullt og ótakmarkað umboð til að ganga frá sölu á eigninni. Umboðið nær til þess að undirrita kauptilboð, kaupsamning, uppgjör, afsal, skuldabréf og öll önnur nauðsynleg skjöl vegna sölu framangreindrar eignar.

Viktor Ingi kom aftur til fundar kl. 14:17.
Var efnið á síðunni hjálplegt?