Fræðsluráð

263. fundur 25. júní 2026 kl. 15:00 - 17:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Dagrún Kristinsdóttir formaður
  • Jóhanna Maj Júlíusdóttir varaformaður
  • Ragnar Bragi Ægisson aðalmaður
  • Kolfinna Rún Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Andri Steinn Guðjónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá

1.Erindisbréf nefnda og ráða

Málsnúmer 2605065Vakta málsnúmer

Erindisbréf fræðsluráðs og siðareglur kjörinna fulltrúa Húnaþings vestra lagðar fram til kynningar. Reglulegir fundir fræðsluráðs ákveðnir kl. 10:00 síðasta fimmtudag í mánuði.
Guðný Kristín Guðnadóttir og Anna Berner mættu til fundar kl.15:15

2.Samstarf leikskóla og grunnskóla

Málsnúmer 2508054Vakta málsnúmer

Skólastjóri leikskóla kynnti yfirfarið verklag um samstarfs leikskóla og grunnskóla.

3.Rekstrarúttekt leikskóla og grunnskóla

Málsnúmer 2411036Vakta málsnúmer

Skólastjóri leikskóla kynnti stöðu á gerð mönnunarlíkans fyrir leikskóla. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti stöðu á samþættu stuðningsmati barna og reiknilíkani fyrir grunnskóla.
Guðný Kristin Guðnadóttir og Anna Berner véku af fundi kl.16:12

4.Eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra vegna leikskóla

Málsnúmer 2605005Vakta málsnúmer

Skýrsla Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra lögð fram til kynningar.

5.Eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra vegna grunnskóla.

Málsnúmer 2503029Vakta málsnúmer

Skýrsla Heilbrigðiseftirlits Noðurlands vestra lögð fram til kynningar.

6.Menntastefna Húnaþings vestra

Málsnúmer 2409061Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti menntastefnu Húnaþings vestra og fyrirhugaða endurskoðun hennar.

7.Drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla

Málsnúmer 2606044Vakta málsnúmer

Drög í samráðsgátt stjórnvalda.
Fræðsluráð telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við drög að reglugerðinni.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?