Reglugerð vegna barna með fjölþættan vanda

Málsnúmer 2606076

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1281. fundur - 29.06.2026

Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 24. júní 2026, þar sem athygli sveitarfélaga er vakin á breytingu á ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda.
Byggðarráð Húnaþings vestra lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.

Byggðarráð telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og að það taki þá ábyrgð og skuldbindingu á málaflokknum sem samið var um.
Var efnið á síðunni hjálplegt?