Ungmennaráð

80. fundur 16. júní 2026 kl. 15:00 - 16:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Jóhanna Maj Júlíusdóttir aðalmaður
  • Heiða Bára Pétursdóttir aðalmaður
  • Birta Ögn Alfreðsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson embættismaður
  • Jóhann Örn Finnsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá
Ari Karl Kárason og Bríet Anja Birgisdóttir boðuðu forföll á fundinn.

1.Erindisbréf nefnda og ráða

Málsnúmer 2605065Vakta málsnúmer

Farið var yfir erindisbréf ráðsins. Að því loknu kaus ráðið Heiðu Báru Pétursdóttur sem formann og Birtu Ögn Alferðsdóttur sem varaformann. Fundartímar skulu að jafnaði vera á þriðjudögum kl. 15:00, fjórum sinnum á ári.

2.Heimsmarkið sameinuðu þjóðanna um menntun

Málsnúmer 2605002Vakta málsnúmer

Samþykkt að svara lykilspurningum UNESCO í tengslum við barnaþing næsta haust.

3.Bréf til ungmennaráða

Málsnúmer 2603010Vakta málsnúmer

Samþykkt að fela Jóhanni Erni að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að sækja ráðsetfnuna Ungt fólk og lýðheilsa í skólabúðunum á Reykjum í september 2026. Ungmennaráð mun velja úr umsóknum.

4.Barnaþing

Málsnúmer 2606046Vakta málsnúmer

Unnin frumdrög að skipulagi barnaþings. Lagt til að barnaþing verðu haldið 8. september 2026 með fyrirvara um samþykki grunnskóla.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?