Byggðarráð

1246. fundur 02. júní 2025 kl. 14:00 - 15:46 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Sigurður Þór mætti til fundar við byggðarráð kl. 14:01.

1.Tillögur um starfsemi samfélagsmiðstöðvar

Málsnúmer 2503061Vakta málsnúmer

Sigurður Þór Ágússton sviðsstjóri fjölskyldusviðs kemur til fundar við byggðarráð og fer yfir tillögur um starfsemi samfélagsmiðstöðvar að samráði loknu og næstu skref verkefnisins.
Byggðarráð þakkar Sigurði greinargóða yfirferð. Sigurði er falinn áframhaldandi undirbúningur að rekstri samfélagsmiðstöðvarinnar í samræmi við tímalínu verkefnisins.

Sigurður Þór vék af fundi kl. 15:11.

2.Geðheilsustefna Húnaþings vestra

Málsnúmer 2505073Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að geðheilsustefnu Húnaþings vestra sem unnin var í samvinnu við Mental ráðgjöf.
Byggðarráð fagnar gerð geðheilsustefnu fyrir stofnanir sveitarfélagsins. Byggðarráð samþykkir að drögin verði sett í samráð meðal starfsmanna sveitarfélagsins.

3.Loftslagsstefna sveitarfélaga í Húnavatnssýslum 2024-2028

Málsnúmer 2505075Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að Loftslagsstefnu sveitarfélaga í Húnavatnssýslum sem unnin voru af KPMG með aðkomu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Byggðarráð samþykkir framlagða loftslagsstefnu og felur sveitarstjóra gerð aðgerðaáætlunar í samræmi við hana.

4.Reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

Málsnúmer 2505076Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að nýjum reglum Skagafjarðar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks.
Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks.
Magnús Magnússon vék af fundi kl. 15:23 og Elín Lilja Gunnarsdóttir, varaformaður tók við fundarstjórn.

5.Umsókn um byggingarlóð - Lindarvegur 6

Málsnúmer 2505072Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Guðrúnar Helgu Magnúsdóttur og Ingibjörns Pálmars Gunnarssonar um lóð við Lindarveg 6.
Byggðarráð samþykkir að úthluta Guðrúnu Helgu Magnúsdóttur og Ingibirni Pálmari Gunnarssyni lóðina Lindarveg 6, landnúmer 226130, með þeim skilmálum sem um lóðina gilda skv. deiliskipulagi og reglum um úthlutun lóða í Húnaþingi vestra frá 1. janúar 2023.
Magnús Magnússon kom aftur til fundar kl. 15:26 og tók við fundarstjórn að nýju.

6.Aðalfundur Farskólans 2025

Málsnúmer 2505079Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Farskólanum varðandi aðalfund skólans 2025.
Lagt fram til kynningar boð á aðalfund Farskólans sem haldinn verður þann 11. júní nk.

7.Ársfundur 2025 - Brák íbúðafélag

Málsnúmer 2505082Vakta málsnúmer

Lagt fram boð á ársfund Brákar íbúðafélags.
Lagt fram til kynningar boð á ársfund Brákar íbúðafélags hses. 11. júní nk.

8.Endurtilnefning í stjórn Reykjaeigna

Málsnúmer 2505084Vakta málsnúmer

Endurtilnefna þarf í stjórn Reykjaeigna. Byggðarráð hefur gegnt hlutverki stjórnar Reykjaeigna. Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að svo verði áfram.

9.Áform um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga

Málsnúmer 2505036Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Innviðaráðuneytinu varðandi áform um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, mál nr. S-89/2025 í samráðsgátt stjórnvalda.
Byggðarráð Húnaþings vestra fagnar áformum um að undanþága rafveitna (vatnsafls-, jarðvarma- og vindaflsvirkjana) frá fasteignamati verði felld úr gildi. Um er að ræða réttlætismál sem sveitarfélögin hafa barist fyrir um árabil. Ráðið vill jafnframt fagna því að áformað er að gjöldin sem innheimt verða geti dreifst á milli fleiri en eins sveitarfélags og að hluti af þeim tekjum sem við breytinguna myndast muni dreifast til sveitarfélaga í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Byggðarráð hvetur til þess að ráðist verði í lagabreytinguna eins fljótt og kostur er.
Bætt á dagskrá:

10.Reglur um niðurgreiðslur á garðslætti

Málsnúmer 2506004Vakta málsnúmer

Drög að reglum um niðurgreiðslur á garðslætti 2025.
Byggðarráð samþykkir Reglur um niðurgreiðslur á garðslætti 2025 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 15:46.

Var efnið á síðunni hjálplegt?