Skipulags- og umhverfisráð

386. fundur 28. apríl 2026 kl. 15:00 - 17:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Ingimar Sigurðsson formaður
  • Birkir Snær Gunnlaugsson varaformaður
  • Fríða Marý Halldórsdóttir aðalmaður
  • Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir aðalmaður
  • Guðmundur Brynjar Guðmundsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bogi Kristinsson Magnussen skipulags- og byggingafulltrúi
  • Linda Sóley Guðmundsdóttir Fulltrúi á skipulags- og byggingadeild
Fundargerð ritaði: Bogi Kristinsson Magnúsen
Dagskrá

1.Br.Aðalskipulag 2014-2026-Melstaður

Málsnúmer 2604018Vakta málsnúmer

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 vegna Melstaðar í Miðfirði, ásamt uppdrætti og greinargerð. Fyrirliggjandi gögn gera ráð fyrir að skilgreindu svæði, merkt VP9 í gildandi aðalskipulagi, verði hliðrað um 500 m til suðvesturs. Um er að ræða breytingu á afmörkun svæðis, en skilmálar þess og nýtingarheimildir haldast að öðru leyti óbreyttar.
Skipulags- og umhverfisráð tók til umfjöllunar tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 vegna Melstaðar í Miðfirði. Breytingin felur í sér tilfærslu á landnotkunarreit VÞ9, verslun og þjónusta, um u.þ.b. 500 m til suðvesturs. Skilmálar reitsins, umfang fyrirhugaðrar starfsemi og heimildir samkvæmt gildandi aðalskipulagi haldast óbreyttar.


Ráðið telur að framlagður rökstuðningur sýni með fullnægjandi hætti að fyrirhuguð tilfærsla landnotkunarreits VP9 feli ekki í sér stækkun svæðis heldur einungis hliðrun innan sama svæðis, án breytinga á umfangi eða meginforsendum nýtingar. Jafnframt liggur fyrir að svæðið hefur takmarkað gildi til landbúnaðarnota og að breytingin hafi ekki veruleg áhrif á aðliggjandi landbúnaðarsvæði. Að mati ráðsins samræmist breytingin því skilyrðum 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og telst óveruleg breyting á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026.

Það er mat ráðsins, með vísan til gátlistans, að breytingin víki ekki verulega frá meginstefnu aðalskipulagsins, feli ekki í sér nýja landnotkun annars eðlis en þegar er gert ráð fyrir á svæðinu, auki ekki umfang landnýtingar, byggingarmagn eða starfsemi og hafi ekki veruleg áhrif á aðliggjandi landnotkun eða einstaka aðila.

Þar sem breytingin felur í sér að land er tekið úr landbúnaðarnotum hefur skipulagsráð einnig tekið sérstaklega afstöðu til 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
A-liður 5. gr. jarðalaga: Ráðið telur að landið sé ekki stærra en þörf krefur. Breytingin felur ekki í sér stækkun landnotkunarreitsins heldur tilfærslu hans innan sama svæðis, með óbreyttu umfangi og skilmálum. Fyrirliggjandi gögn gera grein fyrir því að landið hafi takmarkað gildi til hefðbundinnar jarðræktar, m.a. vegna landforms, jarðvegsaðstæðna og þess að það flokkist í flokk III samkvæmt flokkun ræktunarlands. Staðsetningin við gatnamót Norðurlandsvegar nr. 1 og Miðfjarðarvegar nr. 704 er jafnframt talin henta fyrir fyrirhugaða þjónustu- og verslunarstarfsemi vegna aðgengi við samgöngur. Aðrir staðsetningarvalkostir eru taldir lakari, annaðhvort vegna meiri áhrifa á verðmætara landbúnaðarland eða lakari tengingar við samgöngukerfið.

B-liður 5. gr. jarðalaga: Ráðið telur að breytingin hafi ekki óásættanleg áhrif á aðlæg landbúnaðarsvæði. Fyrirliggjandi rökstuðningur gerir ráð fyrir að tilfærsla reitsins leiði til skýrari aðgreiningar milli þjónustustarfsemi og virkra eða mögulegra landbúnaðarsvæða, þar sem reiturinn færist fjær samfelldum ræktunarsvæðum. Breytingin er því ekki talin skerða raunhæfa möguleika til búrekstrar á aðliggjandi landi, enda verði afmörkun lóðar, aðkoma og vegtengingar útfærðar nánar í deiliskipulagi og í samráði við viðeigandi aðila.

Með vísan til framangreinds leggur Skipulags- og umhverfisráð til við sveitarstjórn að samþykkja að farið verði með breytinguna sem óverulega breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsráð leggur jafnframt til að sveitarstjórn samþykki framangreinda afstöðu og rökstuðning samkvæmt 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og feli skipulagsfulltrúa að senda rökstudda tillögu um breytinguna til Skipulagsstofnunar til meðferðar og staðfestingar, ásamt gögnum málsins.

2.Melstaður DSK br. tillaga

Málsnúmer 2604069Vakta málsnúmer

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi þjónustulóðar í landi Melstaðar í Miðfirði. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem staðfest var 26. júní 2013 og felur tillagan í sér tilfærslu skipulagsmarka, stækkun skipulagssvæðis og setningu nýrra og breyttra deiliskipulagsskilmála. Skipulagssvæðið er um 2,2 ha að stærð, staðsett um tveimur kílómetrum suðvestan við Laugarbakka og afmarkast af Norðurlandsvegi nr. 1 í norðri og Miðfjarðarvegi nr. 704 í austri. Markmið breytingarinnar er að skapa forsendur fyrir uppbyggingu verslunar- og þjónustustarfsemi, m.a. þjónustumiðstöðvar, eldsneytisafgreiðslu og hleðslustöðva.



Tillagan er unnin samhliða breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 þar sem gert er ráð fyrir að landnotkunarreitur VÞ9 verði færður um 500 metra til vesturs og skilgreindur sem verslunar- og þjónustusvæði. Núverandi landnotkun á eldri staðsetningu fellur niður og fer svæðið þar í fyrra horf sem landbúnaðarland.



Með tillögunni fylgir náttúrufars- og mengunarvarnaúttekt vegna skipulagssvæðisins. Þar kemur fram að svæðið er að hluta votlendi og að þar séu vistgerðir með hátt eða mjög hátt verndargildi, auk þess sem fjallað er um vatnafar, flóðahættu, grunnvatn og mengunarvarnir. Í úttektinni eru lagðar til mótvægisaðgerðir, m.a. vegna röskunar á votlendi, ásamt skilmálum um fráveitu, olíuskiljur, stýringu yfirborðsvatns, vöktun og samráð við viðeigandi stofnanir.
Skipulags- og umhverfisráð tekur fram að deiliskipulagstillagan er unnin samhliða breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 þar sem gert er ráð fyrir að landnotkunarreitur VÞ9 verði færður um 500 metra til vesturs og skilgreindur sem verslunar- og þjónustusvæði.

Skipulags- og umhverfisráð telur að fyrirliggjandi gögn og skilmálar tillögunnar taki með fullnægjandi hætti á þeim atriðum sem fram hafa komið við undirbúning málsins, meðal annars varðandi samræmingu við aðalskipulagsbreytingu, náttúrufar, vatnafar, mengunarvarnir, brunavarnir og mótvægisaðgerðir vegna röskunar á votlendi.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn Húnaþings vestra að tillaga að breytingu á deiliskipulagi þjónustulóðar í landi Melstaðar í Miðfirði verði samþykkt til auglýsingar samhliða tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026, í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Aðalskipulag-Breyting-Skrúðvangur

Málsnúmer 2604051Vakta málsnúmer

Tillaga á óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 fyrir svæðið við Skrúðvang á Laugarbakka. Breytingin snýr að því að skilgreina nýtt svæði fyrir verslun og þjónustu, VÞ-3 Skrúðvang, þar sem gert er ráð fyrir áframhaldandi starfsemi gróðrarstöðvar, auk mögulegrar uppbyggingar tengdrar veitinga- og ferðaþjónustu, meðal annars gistingu í smáhýsum. Samhliða breytist afmörkun nærliggjandi landnotkunar, meðal annars opinna svæða og aðliggjandi svæða í aðalskipulagi.
Skipulags- og umhverfisráð hefur tekið til umfjöllunar tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 vegna Skrúðvangs á Laugarbakka, þar sem gert er ráð fyrir breytingu á landnotkun til verslunar og þjónustu. Samkvæmt greinargerð tillögunnar er gert ráð fyrir að svæði fyrir verslun og þjónustu, VÞ-3 Skrúðvangur, verði um 0,6 ha, og að svæði fyrir gróðurstöð, SL-1, stækki úr 3,32 ha í 3,99 ha. Þá kemur fram að ferðaþjónusta hafi þróast á svæðinu á undanförnum árum og að breytingin taki til staðfestingar á þeirri starfsemi, auk þess að afmarka hana betur gagnvart aðliggjandi landnotkun.

Skipulags- og umhverfisráð telur að breytingin geti talist óveruleg breyting á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Við mat á því er einkum horft til þess að breytingin víkur ekki verulega frá meginstefnu gildandi aðalskipulags, enda er um að ræða afmörkun og staðfestingu á starfsemi sem þegar hefur þróast á svæðinu. Landnotkun breytist ekki með þeim hætti að hún teljist annars eðlis eða ósamrýmanleg núverandi aðstæðum, þar sem fyrirhuguð verslun og þjónusta tengist þeirri ferðaþjónustu og þjónustustarfsemi sem fyrir er eða hefur verið að þróast á svæðinu.

Ráðið vísar jafnframt til gátlista Skipulagsstofnunar um mat á því hvort breyting geti talist óveruleg. Þar kemur fram að tillagan víki ekki verulega frá meginstefnu aðalskipulags, að ný landnotkunarskilgreining samræmist ekki illa núverandi ástandi eða skilgreindri landnotkun á svæðinu, að umfang landnýtingar aukist ekki verulega og að svæðið njóti ekki sérstakrar verndar vegna náttúru- eða menningarminja. Þá kemur fram að stækkun landnotkunarreits nemi 2,2 ha, sem er undir almennu viðmiði Skipulagsstofnunar um að 3 ha geti almennt talist veruleg breyting, þó það sé háð mati hverju sinni.

Að mati ráðsins hefur breytingin ekki áhrif á stórt svæði og felur ekki í sér ákvæði um byggingarmagn eða starfsemi sem líkleg er til að hafa veruleg áhrif innan eða utan skipulagssvæðisins. Þá er ekki talið að breytingin hafi mikil áhrif á einstaka aðila, svo sem vegna hávaða, lyktar, titrings, ryks, ásýndar eða umferðar, né að hún skerði verðmæti eða hagnýtingu fasteigna umfram það sem vænta má miðað við óbreytta landnýtingu eða skipulag.

Með vísan til framangreinds, og þar sem breytingin felur fyrst og fremst í sér nánari afmörkun og staðfestingu á landnotkun sem er í samræmi við þróun og aðstæður á svæðinu, telur skipulags- og umhverfisráð að breytingin sé óveruleg í skilningi 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umhverfisráð leggur því til við sveitarstjórn Húnaþings vestra að samþykkja tillöguna sem óverulega breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 og að tillagan verði send Skipulagsstofnun til staðfestingar.

4.DSK-Skrúðvangur

Málsnúmer 2604050Vakta málsnúmer

Tillaga að deiliskipulagi fyrir Skrúðvang á Laugarbakka. Helstu forsendur skipulagsins eru lega svæðisins austan við Miðfjarðará, núverandi og fyrirhuguð nýting lóðarinnar, aðkoma að svæðinu, tengsl við nærliggjandi byggð og þörf á að skýra betur byggingarreiti, bílastæði, gönguleiðir og þjónustuinnviði. Samhliða er gerð óveruleg breyting á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026.
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Skrúðvang á Laugarbakka. Tillagan tekur til uppbyggingar og afmörkunar svæðis fyrir ferðaþjónustu, verslun og þjónustu, þar á meðal gistingu, þjónustuhús, bílastæði, aðkomu, gönguleiðir og tengda aðstöðu. Á uppdrætti og í greinargerð kemur fram að skipulagssvæðið sé um 15,1 ha, að gert sé ráð fyrir þjónustuhúsi, allt að 15 gestahúsum, tjaldsvæði og bílastæðum, auk þess sem lögð er áhersla á að uppbygging taki mið af landi, landslagi og núverandi aðstæðum á svæðinu.

Ráðið telur að tillagan sé í samræmi við fyrirhugaða landnotkun samkvæmt tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 fyrir svæðið, þar sem gert er ráð fyrir verslun og þjónustu á Skrúðvangi. Deiliskipulagstillagan felur í sér nánari útfærslu á fyrirhugaðri uppbyggingu, afmörkun byggingarreita, aðkomu, bílastæðum og innra skipulagi svæðisins.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn Húnaþings vestra að samþykkja að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Skrúðvang á Laugarbakka, í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og að tillagan verði auglýst samhliða óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 vegna Skrúðvangs.

5.Núpdalstunga, umsókn um framkvæmdarleyfi vegna skógræktar.

Málsnúmer 2604058Vakta málsnúmer

Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna fyrirhugaðrar skógræktar í landi Núpsdalstungu í Miðfirði. Umsóknin er lögð fram fyrir hönd landeiganda og tekur til skógræktarsvæðis sem er um 100 hektarar að stærð. Með umsókn fylgja gögn um afmörkun skógræktarsvæðis, áætlaða nýtingu lands, skógræktaráætlun, útlitshönnun og tímaáætlun framkvæmdar.
Skipulags- og umhverfisráð hefur tekið fyrir umsókn Flaums ehf., eiganda jarðarinnar Núpsdalstungu, landnúmer L144090, um framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðrar skógræktar í landi Núpsdalstungu í Miðfirði. Samkvæmt umsókn er áformað að planta í um það bil 100 hektara skógræktarsvæði og er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist sumarið 2027 og standi yfir í allt að fimm ár. Með umsókn fylgir afmörkun svæðis og greinargerð um fyrirhugaða framkvæmd.

Ráðið telur að fyrirhuguð framkvæmd sé á landbúnaðarsvæði og samræmist gildandi Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026. Fyrir liggur að framkvæmdin er á þegar friðuðu beitarsvæði, að ekki sé um skráð verndarsvæði náttúruverndarlaga að ræða samkvæmt umsókn, að engar skráðar fornminjar séu á svæðinu samkvæmt minjaskrá og að votlendi verði ekki raskað, enda verði gróðursett í þurrt land sem hentar til skógræktar.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn Húnaþings vestra að samþykkja útgáfu framkvæmdaleyfis vegna fyrirhugaðrar skógræktar í landi Núpsdalstungu, með fyrirvara um að framkvæmdin verði í samræmi við framlögð gögn, afmörkun framkvæmdasvæðis og ákvæði skipulagslaga og reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.

Jafnframt er áréttað að ef áður óþekktar fornminjar koma í ljós við framkvæmdir skuli stöðva framkvæmdir án tafar og tilkynna Minjastofnun Íslands, í samræmi við lög um menningarminjar.

6.Víðihlíð-umsagnarbeiðni um Kúluhús

Málsnúmer 2604073Vakta málsnúmer

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra óskar eftir umsögn sveitarfélagsins hvort kúluhús án salerna en með aðstöðu í kjallara félagsheimislisins Víðihlíðar og eru staðsett eru við Félagsheimilið Víðihlíð sé í samræmi við gildandi skipulag.
Breytingar á aðal- og deiliskipulagi við Víðihlíð bíða staðfestingar Skipulagsstofnunar. Að fenginni staðfestingu stofnunarinnar gerir skipulags- og umhverfisráð ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis Heilbrigðiseftilits. Ráðið bendir á að þegar seld er gisting þarf í öllum tilfellum að liggja fyrir rekstrarleyfi frá sýslumanni.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?