Núpdalstunga, umsókn um framkvæmdarleyfi vegna skógræktar.

Málsnúmer 2604058

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisráð - 386. fundur - 28.04.2026

Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna fyrirhugaðrar skógræktar í landi Núpsdalstungu í Miðfirði. Umsóknin er lögð fram fyrir hönd landeiganda og tekur til skógræktarsvæðis sem er um 100 hektarar að stærð. Með umsókn fylgja gögn um afmörkun skógræktarsvæðis, áætlaða nýtingu lands, skógræktaráætlun, útlitshönnun og tímaáætlun framkvæmdar.
Skipulags- og umhverfisráð hefur tekið fyrir umsókn Flaums ehf., eiganda jarðarinnar Núpsdalstungu, landnúmer L144090, um framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðrar skógræktar í landi Núpsdalstungu í Miðfirði. Samkvæmt umsókn er áformað að planta í um það bil 100 hektara skógræktarsvæði og er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist sumarið 2027 og standi yfir í allt að fimm ár. Með umsókn fylgir afmörkun svæðis og greinargerð um fyrirhugaða framkvæmd.

Ráðið telur að fyrirhuguð framkvæmd sé á landbúnaðarsvæði og samræmist gildandi Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026. Fyrir liggur að framkvæmdin er á þegar friðuðu beitarsvæði, að ekki sé um skráð verndarsvæði náttúruverndarlaga að ræða samkvæmt umsókn, að engar skráðar fornminjar séu á svæðinu samkvæmt minjaskrá og að votlendi verði ekki raskað, enda verði gróðursett í þurrt land sem hentar til skógræktar.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn Húnaþings vestra að samþykkja útgáfu framkvæmdaleyfis vegna fyrirhugaðrar skógræktar í landi Núpsdalstungu, með fyrirvara um að framkvæmdin verði í samræmi við framlögð gögn, afmörkun framkvæmdasvæðis og ákvæði skipulagslaga og reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.

Jafnframt er áréttað að ef áður óþekktar fornminjar koma í ljós við framkvæmdir skuli stöðva framkvæmdir án tafar og tilkynna Minjastofnun Íslands, í samræmi við lög um menningarminjar.
Var efnið á síðunni hjálplegt?