Gjaldskrá fyrir félagsþjónustu

Málsnúmer 2503047

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 261. fundur - 26.03.2025

Félagsmálaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 390. fundur - 10.04.2025

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir Gjaldskrá félagsþjónustu.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Félagsmálaráð - 265. fundur - 26.11.2025

Félagsmálaráð samþykkir gjaldskrá félagsþjónustu 2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 397. fundur - 11.12.2025

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir Gjaldskrá fyrir félagsþjónustu 2026.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Félagsmálaráð - 267. fundur - 25.03.2026

Sólveig Hulda Benjamínsdóttir, Kolfinna Rún Gunnarsdóttir og Júlíus Guðni Antonsson boðuðu forföll. Viktor Ingi Jónsson var einn varamanna sem gat mætt.
Lögð fram tillaga um breytingu á gjaldskrá dagþjónustu. Aðskildir gjaldaliðir verða dagdvöl og fæði.
Félagsmálaráð samþykkir tillögu að breyttri gjaldskrá fyrir dagdvöl þar sem þjónustuþegar munu greiða sérstaklega fyrir fæði annars vegar og fyrir úthlutaða daga í dagdvöl hins vegar.

Sveitarstjórn - 402. fundur - 09.04.2026

Á 267. fundi félagsmálaráðs þann 25. mars 2026 samþykkti ráðið breytingar á gjaldskrá fyrir dagdvöl.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir Gjaldskrá fyrir félagsþjónustu 2026.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?