Félagsmálaráð

267. fundur 25. mars 2026 kl. 10:00 - 11:30 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Gerður Rósa Sigurðardóttir formaður
  • Sigurbjörg Jóhannesdóttir aðalmaður
  • Viktor Ingi Jónsson varamaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson embættismaður
  • Henrike Wappler embættismaður
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá
Sólveig Hulda Benjamínsdóttir, Kolfinna Rún Gunnarsdóttir og Júlíus Guðni Antonsson boðuðu forföll. Viktor Ingi Jónsson var einn varamanna sem gat mætt.

1.Gjaldskrá fyrir félagsþjónustu

Málsnúmer 2503047Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um breytingu á gjaldskrá dagþjónustu. Aðskildir gjaldaliðir verða dagdvöl og fæði.
Félagsmálaráð samþykkir tillögu að breyttri gjaldskrá fyrir dagdvöl þar sem þjónustuþegar munu greiða sérstaklega fyrir fæði annars vegar og fyrir úthlutaða daga í dagdvöl hins vegar.

2.Leiðbeiningar fyrir sveitarfélög um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings

Málsnúmer 2507031Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð samþykkir breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning í samræmi við leiðbeiningar frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti.

3.Úthlutun íbúðar 109 í Nestúni

Málsnúmer 2602059Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð samþykkir að úthuta Marinó Björnssyni og Kanda Prathai íbúð 109 í Nestúni.

4.Hlutverk SIS-mats við framkvæmd þjónustu skv. lögum nr. 382018

Málsnúmer 2603001Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

5.Samfélagsviðurkenningar

Málsnúmer 2505012Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

6.Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2026

Málsnúmer 2601078Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar

7.Farsældarteymi - 45

Málsnúmer 2512008FVakta málsnúmer

Frestað til næsta fudnar.
  • Farsældarteymi - 45 1. Ungmennaráð. Skipun nýs ungmennaráðs er á dagskrá sveitarstjórnar. Rætt um hvernig hægt er að auka virkni ráðsins. M.a. aldursbil, fundartíðni, tenging við stjórnsýslu, kjörna fulltrúa og fastanefndir, upplýsingagjöf, fjarfundamöguleika, tenging við nemendaráð o.fl.
    2. Barnaþing. Verður 23. - 27. mars. Drög að uppsetningu þingsins verður send í næstu viku.
    3. Krakkasveifla. Undirbúningur kominn vel á veg. Stefnt er að aðskildri dagskrá yngsta stigs og miðstigs og samvinnu við íþróttafélag um reglulegar æfingar innan dagskrár. Ákveðið að elsti árgangur leikskóla taki þátt í dagskrá krakkasveiflunnar sem hluti af aðlögun að skólagöngu í grunnskóla frá og 22. júní 2026.
    4. Endurskoðun verklags farsældar. Frestað til næsta fundar.

8.Farsældarteymi - 46

Málsnúmer 2603002FVakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.
  • Farsældarteymi - 46 1. Verklag farsældar í Húnaþingi vestra. Unnin drög að endurskoðuðu verklagi farsældar í Húnaþingi vestra.

Fundi slitið - kl. 11:30.

Var efnið á síðunni hjálplegt?