Byggðarráð

1263. fundur 01. desember 2025 kl. 14:00 - 15:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá

1.Holtavörðuheiðarlína 3 - Ákvörðun um línuleið

Málsnúmer 2511054Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Landsneti dags. 4. nóvember 2025 með ákvörðun um línuleið vegna Holtavörðuheiðarlínu 3.
Í póstinum kemur fram ákvörðun Landsnets um að farin verði svokölluð byggðaleið sem liggur að mestu samhliða núverandi byggðalínu en ekki heiðaleið sem var sú leið sem Húnaþing vestra hafði mælt með að farin yrði. Byggðarráð lýsir yfir áhyggjum vegna valsins og telur það til þess fallið að tefja framkvæmdir verulega enda er á leiðinni farið í gegnum verðmæt ræktarlönd og fjöldi landeigenda sem semja þarf við er yfir 120.

2.Niðurstöður könnunarinnar Sveitarfélag ársins

Málsnúmer 2511059Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður könnunarinnar Sveitarfélag ársins en Húnaþing vestra tók þátt í ár í fyrsta skipti.
Spurningakönnunin var lögð fyrir starfsfólk Húnaþings vestra á fyrri hluta ársins og innihélt spurningar sem könnuðu hug starfsmanna til stjórnunar, starfsanda, launakjara, vinnuskilyrða, sveigjanleika í vinnu, ímynd vinnustaðar, sjálfstæðis í starfi, ánægju og stolts og jafnréttis á vinnustaðnum. Heildareinkunn Húnaþings vestra í könnuninni var 4,2 sem var sjötta besta einkunn af þeim 22 sveitarfélögum sem tóku þátt í ár. Þeir þættir sem skoruðu hæst á meðal starfsmanna sveitarfélagsins lutu að jafnrétti en þeir sem skoruðu lægst lutu að launakjörum og vinnuskilyrðum.
Byggðarráð fagnar góðri niðurstöðu könnunarinnar og þakkar starfsfólki þátttöku.

3.Opnunartími leikskóla og grunnskóla í kjölfar kjarasamninga

Málsnúmer 2411049Vakta málsnúmer

Lagðar fram athugasemdir starfshóps um opnunartíma og gjaldskrá leikskóla eftir yfirferð á framkomnum nýjum tillögum.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að setja framkomnar tillögur í opið samráð líkt og lagt er til í athugasemdum starfshópsins.

4.Starfsáætlun byggðarráðs 2026

Málsnúmer 2511057Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að starfsáætlun byggðarráðs fyrir árið 2026.
Byggðarráð samþykkir framlagða starfsáætlun.

5.Umsókn um lögbýli Litla-Ból L217401

Málsnúmer 2511061Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Elínu Hrönn Jónasdóttur þar sem hún óskar umsagnar sveitarfélagsins vegna umsóknar um lögbýlisrétt á jörðinni Litla-Bóli, L217401.
Byggðarráð samþykkir að veita jákvæða umsögn um fyrirhugaða stofnun lögbýlis á jörðinni Litla-Bóli L217401.

6.Umsókn um styrk vegna fræðslu um ADHD

Málsnúmer 2511083Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkbeiðni frá ADHD samtökunum.
Styrkbeiðnir vegna ársins 2026 hafa verið afgreiddar. Því er ekki unnt að verða við styrkbeiðninni.

7.Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Húnaþings vestra, úthlutunarreglur og úthlutun 2026

Málsnúmer 2511060Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að uppfærðum úthlutunarreglum Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra vegna úthlutunar ársins 2026.
Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra og felur sveitarstjóra að auglýsa úthlutun ársins 2026 með umsóknarfresti til 10. janúar 2026.

8.Úttekt á starfsemi umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs

Málsnúmer 2511056Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um úttekt á starfsemi umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs Húnaþings vestra.
Lagt fram minnisblað vegna úttektar á rekstri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs Húnaþings vestra. Tilgangur úttektarinnar er m.a. að greina núverandi skipulag sviðsins, ferla og verkaskiptingu, leggja mat á mönnunar-, húsnæðis- og tækjaþörf og leggja fram tillögur að umbótum þar sem þess gerist þörf. Byggðarráð samþykkir að ráðist verði í úttekt í samræmi við framkomið minnisblað og felur sveitarstjóra að leita tilboða í úttektina hjá til þess bærum aðilum sem byggðarráð tekur afstöðu til í framhaldinu. Úttektin er liður í áherslu sveitarstjórnar á stöðugar umbætur, hátt þjónustustig og góða nýtingu fjármuna. Fjölskyldusvið fór í gegnum sambærilega úttekt fyrir nokkrum árum og var í framhaldinu ráðist í breytingar á sviðinu sem hafa leitt til markvissara og faglegra starfs.

9.Raforkukerfið á Norðurlandi vestra - Skýrsla fyrir SSNV

Málsnúmer 2511046Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla um raforkukerfið á Norðurlandi vestra sem verkfræði- og ráðgjafarfyrirtækið Lota hf. vann fyrir Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

10.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

Málsnúmer 2501002Vakta málsnúmer

Fundargerð 989. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?