Byggðarráð

1253. fundur 08. september 2025 kl. 14:00 - 15:22 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá

1.Forgangsverkefni áfangastaðaáætlunar 2025

Málsnúmer 2506053Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að forgangsverkefnum áfangastaðaáætlunar 2025.
Auglýst var eftir tillögum að forgangsverkefnum með auglýsingu á heimasíðu sveitarfélagsins. Byggðarráð samþykkir óbreytt forgangsverkefni frá fyrra ári. Þau eru Vatnsnes, Borðeyri, Reykir í Hrútafirði, Kolugljúfur og stígakerfi milli Laugarbakka, Hvammstanga og Kirkjuhvamms.

2.Uppsögn á starfi

Málsnúmer 2508068Vakta málsnúmer

Lögð fram uppsögn Þorgilsar Magnússonar á starfi sínu sem sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs.
Byggðarráð þakkar Þorgils fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins. Sveitarstjóra er falið að auglýsa starfið og hafa umsjón með ráðningarferlinu í samstarfi við ráðningarstofu.

3.Slit Leigufélagsins Bústaðar hses.

Málsnúmer 2509001Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að slitum Leigufélagsins Bústaðar hses.
Á ársfundi fulltrúaráðs Leigufélagsins Bústaðar hses., kt. 620819-0420, sem haldinn var hinn 27. ágúst 2025, var samþykkt að slíta stofnuninni í samræmi við 16. gr. skipulagsskrár hennar og samkvæmt 9. gr. laga nr. 52/2016, um almennar íbúðir, sbr. jafnframt XIII. og XIV. kafla laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög. Tillagan var sett fram í ljósi þess að stofnunin hafði lokið markmiði sínu samkvæmt samþykktum hennar og rekstri hennar hefur verið hætt. Stofnandi stofnunarinnar, Húnaþing vestra, ásamt stjórn hennar höfðu lýst yfir vilja til þess að stofnuninni yrði slitið með formlegum hætti. Fulltrúaráð og stofnandi veittu stjórn félagsins umboð til að annast slitaferlið, þar á meðal að leita samþykkis ráðherra, kjósa skilanefnd og sinna nauðsynlegum frágangi og skjalagerð.
Lögð er fram sú tillaga að byggðarráð samþykki áframhaldandi slitaferli Leigufélagsins Bústaðar hses., í samræmi við ákvarðanir og niðurstöður ársfundar.
Tillagan samþykkt samhljóða.

4.Umferðaröryggisáætlun

Málsnúmer 2501035Vakta málsnúmer

Skipan í vinnuhóp um gerð umferðaröryggisáætlunar.
Byggðarráð samþykkir að skipa eftirfarandi í vinnuhópinn í samræmi við erindisbréf:
Magnús Magnússon, formaður byggðarráðs.
Viktor Ingi Jónsson, kjörinn fulltrúi.
Sigurður Þór Ágústsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs.

5.Aðalskipulag Húnaþing vestra 2026-2038

Málsnúmer 2502063Vakta málsnúmer

Skipan í vinnuhóp vegna vinnu við gerð aðalskipulags Húnaþings vestra 2026-2038.
Byggðarráð samþykkir að skipa eftirfarandi í vinnuhópinn í samræmi við erindisbréf:
Ingimar Sigurðsson, formaður skipulags- og umhverfisráðs.
Sigríður Ólafsdóttir, formaður landbúnaðarráðs.
Magnús Eðvaldsson, kjörinn fulltrúi.

6.Þjónustustefna Húnaþings vestra

Málsnúmer 2403070Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að þjónustustefnu Húnaþings vestra.
Byggðarráð samþykkir að framlögð drög verði sett í opið samráð á heimasíðu sveitarfélagsins.

7.Sala á íbúð að Hlíðarvegi 25

Málsnúmer 2509015Vakta málsnúmer

Staðfesting á heimild til sölu á íbúð í eigu sveitarfélagsins að Hlíðarvegi 25, fastanúmer F2214009 í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar á 371. fundi sem fram fór þann 14. september 2023.
Byggðarráð veitir Unni Valborgu Hilmarsdóttur sveitarstjóra, kt. 160673-3119, fullt og ótakmarkað umboð til að ganga frá sölu á íbúð að Hlíðarvegi 25, neðri hæð suður, fastanúmer 221-4009. Umboðið nær til þess að undirrita kaupsamning, uppgjör, afsal, skuldabréf og öll önnur nauðsynleg skjöl vegna sölu framangreindrar eignar.

8.Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2025

Málsnúmer 2501012Vakta málsnúmer

Fundargerð 126. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lögð fram til kynningar.

9.Fundargerð fjallskiladeildar Vatnsnesinga 18. ágúst 2025

Málsnúmer 2508042Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð fjallskiladeildar Vatnsnesinga frá 18. ágúst 2025.

10.Fundargerð fjallskilastjórnar Bæjarhrepps 13. ágúst 2025

Málsnúmer 2508037Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð fjallskilastjórnar Bæjarhrepps frá 13. ágúst 2025.

11.Fundargerð fjallskilanefndar Þverárhrepps hins forna 26. ágúst 2025

Málsnúmer 2508060Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð fjallskiladeildar Þverárhrepps frá 26. ágúst 2025.

12.Fundargerð fjallskilastjórnar Víðdælinga 6. ágúst 2025

Málsnúmer 2508069Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð fjallskilastjórnar Víðdælinga frá 6. ágúst 2025.

13.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

Málsnúmer 2501002Vakta málsnúmer

Fundargerð 983. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

14.Fundargerð 474. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands

Málsnúmer 2509023Vakta málsnúmer

Fundargerð 474. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:22.

Var efnið á síðunni hjálplegt?