Sveitarstjórn

406. fundur 10. september 2026 kl. 15:00 - 15:54 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Sigurður Líndal Þórisson oddviti
  • Örn Arnarson varaoddviti
  • Eygló Hrund Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
  • Nína Axelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Ólafsdóttir aðalmaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá

1.Byggðarráð - 1288

Málsnúmer 2608009FVakta málsnúmer

Fundargerð 1288. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 406. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Örn Arnarson formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1288 „Efnahagur

    Eignasjóður
    Eignasjóður, gangstéttar kr. 1.700.000

    Hitaveita
    Hitaveita, veitukerfi kr. -1.700.000


    Mismunur kr. 0

    Lagt er til að gerður verði viðauki vegna nýbyggingar gangstéttar á milli Kirkjuvegar og Lindarvegar. Með viðauka sem samþykktur var af byggðarráði á 1287. fundi var gert ráð fyrir að samþykkja tilboð í framkvæmdina upp á 10,5 milljónir. Nú hefur verið fallið frá því tilboði.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1288 „Rekstur
    09 Skipulags- og samgöngumál
    Viðhald gangstétta (0911) kr. 4.100.000

    61 Fráveita
    Fráveitukerfi (6111) kr. -4.100.000

    Mismunur kr. 0

    Lagt er til að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun 2026 vegna framkvæmda við gangstéttir Höfðabraut - Veigastíg. Með viðauka sem samþykktur var af byggðarráði á 1287. fundi var gert ráð fyrir að samþykkja tilboð í framkvæmdina upp á 26,5 milljónir. Nú hefur verið fallið frá því tilboði.

    Um er að ræða tilfærslu fjárheimilda og hefur viðaukinn því ekki áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum. Málaflokkayfirlit var lagt fram samhliða framlagningu viðaukans.
  • Byggðarráð - 1288 Byggðarráð fellir úr gildi fyrri samþykkt sína um að ganga til samninga við FK verk ehf.

    Með vísan til meginreglna um jafnræði, gagnsæi og banns við breytingum á grundvallarþáttum tilboða eftir opnun þeirra, sbr. lög nr. 120/2016 um opinber innkaup, er óheimilt að taka við nýju eða hækkuðu tilboði frá bjóðanda eftir að tilboðsfrestur er liðinn og niðurstöður opnunar liggja fyrir. Nýju tilboði FK verks ehf. er því vísað frá.
    Þar sem upphaflegt tilboð lægstbjóðanda er fallið niður og í ljósi brýnna hagsmuna sveitarfélagsins af því að ljúka steypuframkvæmdum fyrir veturinn samþykkir byggðarráð að ganga til samninga við næstbjóðanda, Vogaklett ehf., á grundvelli framlagðs tilboðs að fjárhæð kr. 30.614.675 með vsk. (108% af kostnaðaráætlun).
    Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi í samræmi við verklagsreglur sveitarfélagsins, með lokafresti 15. október nk. og tafabótum kr. 50.000 á dag.
    ________________________________________
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1288 Byggðarráð fellir úr gildi fyrri samþykkt sína um að ganga til samninga við FK verk ehf.
    Með vísan til meginreglna um jafnræði, gagnsæi og banns við breytingum á grundvallarþáttum tilboða eftir opnun þeirra, sbr. lög nr. 120/2016 um opinber innkaup, er óheimilt að taka við nýju eða hækkuðu tilboði frá bjóðanda eftir að tilboðsfrestur er liðinn og niðurstöður opnunar liggja fyrir. Nýju tilboði FK verks ehf. er því vísað frá.
    Þar sem upphaflegt tilboð lægstbjóðanda er fallið niður og í ljósi brýnna hagsmuna sveitarfélagsins af því að ljúka steypuframkvæmdum fyrir veturinn samþykkir byggðarráð að ganga til samninga við næstbjóðanda, Vogaklett ehf., á grundvelli framlagðs tilboðs að fjárhæð kr. 12.105.175 með vsk. (103% af kostnaðaráætlun).
    Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi í samræmi við verklagsreglur sveitarfélagsins, með lokafresti 15. október nk. og tafabótum kr. 50.000 á dag.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1288 Byggðarráð felur sveitarstjóra að koma erindinu á framfæri við viðeigandi starfsmenn sveitarfélagsins.
  • Byggðarráð - 1288
  • Byggðarráð - 1288
  • Byggðarráð - 1288

2.Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 3

Málsnúmer 2609005FVakta málsnúmer

Fundargerð 3. fundar umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs lögð fram til afgreiðslu á 406. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Sigurður Líndal Þórisson oddviti kynnti fundargerð.
Fulltrúar N-listans lögðu fram eftirfarandi bókun:

„Fulltrúar N-listans gera athugasemd við að fundur umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs skuli fara fram kl. 9 að morgni sama dags og sveitarstjórnarfundur hefst kl. 15.
Með þessu berast fundargerð og fundargögn sveitarstjórn með mjög skömmum fyrirvara, sem takmarkar verulega þann tíma sem kjörnir fulltrúar hafa til að kynna sér málin, kalla eftir upplýsingum og leggja mat á þau áður en þau koma til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Að mati fulltrúa N-listans er þetta ekki ásættanlegt verklag og samræmist illa vönduðum stjórnsýsluháttum. Mikilvægt er að sveitarstjórn hafi raunhæft svigrúm til að kynna sér og ræða þau mál sem hún á að taka afstöðu til.
Fulltrúar N-listans leggja því áherslu á að fundir nefnda og ráða séu undantekningarlaust skipulagðir með þeim hætti að sveitarstjórn fái nægan fyrirvara og eðlilegan tíma til undirbúnings áður en mál koma til afgreiðslu.“

Oddviti lagði fram eftirfarandi bókun:
„Þessi fundartilhögun kom til vegna sérstakra aðstæðna og ekki stendur til að þetta verði til eftirbreytni.“

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

3.Viðauki 10 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2609006Vakta málsnúmer

Viðauki 10 við fjárhagsáætlun 2026 vegna nýbyggingar gangstéttar á milli Kirkjuvegar og Lindarvegar.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Efnahagur

Eignasjóður
Eignasjóður, gangstéttar kr. 1.700.000

Hitaveita
Hitaveita, veitukerfi kr. -1.700.000


Mismunur kr. 0

Lagt er til að gerður verði viðauki vegna nýbyggingar gangstéttar á milli Kirkjuvegar og Lindarvegar. Með viðauka sem samþykktur var af byggðarráði á 1287. fundi var gert ráð fyrir að samþykkja tilboð í framkvæmdina upp á 10,5 milljónir. Nú hefur verið fallið frá því tilboði.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Viðauki 11 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2609007Vakta málsnúmer

Viðauki 11 við fjárhagsáætlun 2026 vegna framkvæmda við gangstéttir á Höfðabraut og Veigastíg.
„Rekstur
09 Skipulags- og samgöngumál
Viðhald gangstétta (0911) kr. 4.100.000

61 Fráveita
Fráveitukerfi (6111) kr. -4.100.000

Mismunur kr. 0

Lagt er til að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun 2026 vegna framkvæmda við gangstéttir Höfðabraut - Veigastíg. Með viðauka sem samþykktur var af byggðarráði á 1287. fundi var gert ráð fyrir að samþykkja tilboð í framkvæmdina upp á 26,5 milljónir. Nú hefur verið fallið frá því tilboði.

Um er að ræða tilfærslu fjárheimilda og hefur viðaukinn því ekki áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. Málaflokkayfirlit var lagt fram samhliða framlagningu viðaukans.

5.Beiðni faghóps 3 í rammaáætlun um álit sveitarstjórnar á vindorkhugmyndum í 6. áfanga rammaáætlunar

Málsnúmer 2609018Vakta málsnúmer

Um er að ræða vindorkukostina í Alviðru, Garpsdal og á Sólheimum.
1. Almenn afstaða til vindorkunýtingar að óbreyttum ramma
Sveitarstjórn Húnaþings vestra vísar til fyrri umsagna sveitarfélagsins um vindorkumál. Í umsögn byggðarráðs frá 29. apríl 2024 um tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku á Íslandi, 899. mál, var fjallað um grein tillögunnar númer 1.6 , þar sem kveðið var á um að stefnt skyldi að því að sú verðmætasköpun sem hagnýting vindorku hefur í för með sér skilaði sér til samfélagsins. Byggðarráð taldi ástæðu til að sterkar væri að orði kveðið og fór fram á að í stað þess að stefnt yrði að þessu yrði tryggt að nærsamfélagið nyti ábata af rekstri vindmylla. Í umsögn frá 3. febrúar 2025 um tillögu að flokkun tíu vindorkuverkefna, mál nr. S-7/2025 í samráðsgátt stjórnvalda, taldi byggðarráð ógerning að taka afstöðu til einstakra virkjunarkosta nema laga- og regluramminn væri skýr af hálfu hins opinbera og sveitarfélög gætu aðlagað skipulagsáætlanir sínar að þeim ramma.

Sú afstaða stendur óbreytt. Meðan ábati af vindorkuvinnslu skilar sér ekki með tryggum og fyrirsjáanlegum hætti til þeirra byggða sem bera álagið af henni, telur sveitarstjórn að félagslegt leyfi fyrir uppbyggingu vindorkuvera sé ekki fyrir hendi. Í óbreyttri stöðu eru verðmæti fönguð á einu svæði og hagnýtt á öðru, á meðan sjónræn áhrif, rask og önnur neikvæð áhrif sitja eftir hjá því samfélagi sem næst býr. Sveitarstjórn telur það fyrirkomulag hvorki sanngjarnt né til þess fallið að skapa sátt um málaflokkinn.

Sveitarstjórn bendir á að þó úrbætur séu sagðar í farvegi hafa þær ekki komið til framkvæmda. Í umsögn byggðarráðs 5. júní 2025 um áform um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, mál nr. S-89/2025 í samráðsgátt stjórnvalda, var fagnað áformum um að fella úr gildi undanþágu rafveitna frá fasteignamati, enda réttlætismál sem sveitarfélögin hafi barist fyrir um árabil. Jafnframt var fagnað því að gjöldin sem innheimt yrðu gætu dreifst á milli fleiri en eins sveitarfélags og að hluti teknanna rynni til sveitarfélaga í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Byggðarráð hvatti til þess að ráðist yrði í lagabreytinguna eins fljótt og kostur væri. Rúmu ári síðar er hún enn ekki komin til framkvæmda. Drög að frumvarpi um rýmiseignir, mál nr. S-51/2026 í samráðsgátt stjórnvalda, útfærir þau áform og skilgreinir 30 km áhrifasvæði vindorkuvera. Sú skilgreining er einmitt forsenda þess að Húnaþing vestra er umsagnaraðili um þær þrjár virkjunarhugmyndir sem hér um ræðir. Faghópur 3 bendir sjálfur á í erindi sínu að óvissa ríki um útfærslu og umfang þeirra breytinga. Sveitarstjórn telur að meðan sú óvissa varir sé ekki unnt að leggja raunhæft mat á efnahagslegan ávinning nærsamfélagsins, sem er þriðja viðfang faghópsins, og að niðurstöður um það viðfang verði að skoðast með þeim fyrirvara.

2. Haförn
Sveitarstjórn telur að best hefði farið á því að lagarammi um vindorkuver hefði þegar í upphafi verið settur með þeim hætti að vindorkuver væru óheimil með lögum á varp- og vetrarstöðvum hafarnar. Í f-lið 5. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, eins og þeim var breytt með lögum sem samþykkt voru 19. júní 2026, er einungis mælt fyrir um að verkefnisstjórn skuli líta til þess hvort virkjunarhugmynd hafi áhrif á alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði, farleiðir fugla og búsvæði. Sveitarstjórn telur það veikari vernd en tilefni er til.

Haförn er sjaldgæfasti ránfugl landsins og á lista yfir tegundir í hættu. Stofninn telur um 75 varppör, eða um 200 til 250 fugla. Tegundin var alfriðuð árið 1913 en var þrátt fyrir það nærri útdauð um 1960, þegar aðeins um 20 pör lifðu. Höfuðstöðvar stofnsins hafa ávallt verið á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, en meirihluti hans verpir við Breiðafjörð. Þótt margt hafi áunnist í vernd hafarna er stofninn enn afar viðkvæmur og sveitarstjórn telur fulla ástæðu til að hafa djúpstæðar áhyggjur af honum verði vindorkuver reist í stórum stíl á útbreiðslusvæði hans. Bæði Garpsdalur og Sólheimar liggja innan þess svæðis.

Sveitarstjórn minnir á að í umsögn byggðarráðs 3. febrúar 2025 var sérstaklega bent á farleiðir hafarna yfir virkjunarkostinn Hrútavirkjun, sem er innan Húnaþings vestra, og talið brýnt að sá þáttur yrði skoðaður betur áður en ákvörðun yrði tekin um framhald verkefnisins. Sveitarstjórn gerir sömu kröfu um kosti í nágrannasveitarfélögum og gerð var um kost í eigin landi. Þá liggur fyrir að það sem einkum mælti gegn því að Garpsdalur yrði færður í orkunýtingarflokk að mati verkefnisstjórnar 5. áfanga voru ný gögn um farleiðir hafarna.

Sveitarstjórn telur að varúðarreglan eigi að ráða. Óvissu um áhrif á arnarstofninn ber að eyða áður en virkjunarhugmynd er færð úr biðflokki, og fullnægjandi og óyggjandi rannsóknargögn þurfa að liggja fyrir áður en sú ákvörðun er tekin.

3. Skipulagsréttur nágrannasveitarfélaga og sjónræn áhrif
Sveitarstjórn Húnaþings vestra virðir skipulagsrétt nágrannasveitarfélaga sinna og lítur á skipulagsvaldið sem hornstein sjálfstjórnarréttar sveitarfélaga. Í umsögn þessari felst engin krafa um að gengið verði á þann rétt.

Því er þó ekki að leyna að íbúar og ferðamenn í Húnaþingi vestra verða fyrir sjónáreiti af vindorkuverum sem reist eru við sveitarfélagamörkin. Þegar mannvirki eru staðsett við mörkin fellur sjónrænt álag í ríkari mæli á íbúa handan þeirra en á þá sem búa í því sveitarfélagi sem tekur ákvörðunina og nýtur hugsanlegra tekna af starfseminni, ef einhverjar verða. Sveitarstjórn telur að taka eigi mið af þessu við staðarval og útfærslu og að umsagnir nágrannasveitarfélaga, sbr. a-lið 5. gr. laganna, þurfi að hafa raunverulegt vægi við matið en ekki einungis formlegt.

4. Hvatning til verkefnisstjórnar
Að öllu ofansögðu hvetur sveitarstjórn Húnaþings vestra verkefnisstjórn rammaáætlunar til dáða. Full þörf er á að koma góðum og faglegum ramma utan um vindorkunýtingu áður en umfang hennar vex frekar. Sveitarstjórn ítrekar jafnframt athugasemd byggðarráðs frá 3. febrúar 2025 um að einkaaðilar geti óskað eftir mati á virkjunarkosti innan sveitarfélags án nokkurs samtals við sveitarfélagið sem fer með skipulagsvaldið eða við íbúa í nærumhverfinu. Slíkt vinnulag dregur úr trausti heimamanna og vinnur beinlínis gegn fyrsta viðfangi faghópsins, samheldni samfélags.

5. Athugasemdir við einstakar virkjunarhugmyndir
Alviðra, Borgarbyggð (R4331A, um 98 MW).
Alviðra er sá kostanna þriggja sem fjærst liggur byggð í Húnaþingi vestra og bein sjónræn áhrif á byggðakjarna sveitarfélagsins verða að öllum líkindum takmörkuð. Sveitarstjórn hefur því ekki forsendur til að leggja sjálfstætt mat á sjónræn áhrif kostsins. Sveitarstjórn bendir á að fram hefur komið skýr og skjalfest andstaða íbúa í nærumhverfi fyrirhugaðs virkjunarsvæðis á Grjóthálsi og telur að sú afstaða eigi að vega þungt við mat samkvæmt a-lið 5. gr. laganna. Almenn afstaða sveitarstjórnar samkvæmt liðum 1, 3 og 4 hér að framan á við um kostinn. Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við Alviðru á þeim grundvelli sem frá greinir í lið 2 hér að framan.

Garpsdalur, Reykhólahreppi (R4328A, um 88 MW).
Meginathugasemd sveitarstjórnar við Garpsdal lýtur að haferni, sbr. lið 2 hér að framan. Verkefnisstjórn 5. áfanga lagði til biðflokk fyrir kostinn og vísaði þar einkum til nýrra gagna sem sýndu að hafernir flygju í einhverjum tilvikum nálægt og mögulega yfir fyrirhugað virkjunarsvæði. Sveitarstjórn telur að þeirri óvissu verði að eyða með fullnægjandi rannsóknum áður en kosturinn er færður úr biðflokki, og að tímarammi verkefnisstjórnar megi ekki ráða því hvenær sú niðurstaða fæst.

Sólheimar, Dalabyggð (R4318A, um 209 MW).
Sólheimar eru langstærsti kosturinn af þeim þremur og sá sem næst liggur mörkum Húnaþings vestra. Athugasemdir sveitarstjórnar við hann eru því veigamestar. Sjónræn áhrif versins munu ná inn í Húnaþing vestra, meðal annars á Laxárdalsheiði og við sunnanverðan Hrútafjörð, og inn í Línakradal, og hafa þar með áhrif á upplifun íbúa og ferðamanna á leiðum um sveitarfélagið. Sveitarstjórn óskar sérstaklega eftir því að við mat faghópsins verði gerð grein fyrir sjónrænum áhrifum kostsins handan sveitarfélagamarka, ekki einungis innan Dalabyggðar.

Sveitarstjórn óskar jafnframt eftir að metin verði uppsöfnuð áhrif Sólheima ásamt öðrum vindorkuáformum á sama svæði, meðal annars Hróðnýjarstöðum, og með tilliti til þeirra flutningsmannvirkja sem slík uppbygging kallar á. Loks eiga athugasemdir sveitarstjórnar um haförn samkvæmt lið 2 við um Sólheima með sama hætti og um Garpsdal.

6. Niðurstaða
Sveitarstjórn Húnaþings vestra telur að ekki séu forsendur til að færa neina þessara þriggja virkjunarhugmynda úr biðflokki að svo stöddu. Þar ræður annars vegar að lagaramminn um skiptingu ábata af vindorkuvinnslu milli ríkis, framkvæmdaraðila og nærsamfélags er enn í mótun og forsendur mats á efnahagslegum ávinningi nærsamfélags því óljósar, og hins vegar það að óvissu um áhrif á haförn hefur ekki verið eytt. Sveitarstjórn hvetur til þess að þeirri vinnu verði lokið og að hún verði unnin í nánu samráði við sveitarfélögin sem fara með skipulagsvaldið.

6.Breyttur fundartími sveitarstjórnar í október

Málsnúmer 2609030Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breyttum fundartíma sveitarstjórnar í október þar sem reglulegan fund sveitarstjórnar ber upp á sama tíma og fjármálaráðstefnu sveitarfélaga.
„Sveitarstjórn samþykkir að hefðbundinn sveitarstjórnarfundur októbermánaðar frestist um viku og verði fimmtudaginn 15. október nk. kl. 15:00.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 15:54.

Var efnið á síðunni hjálplegt?