Byggðarráð

1288. fundur 04. september 2026 kl. 14:00 - 14:57 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson varamaður
Starfsmenn
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Ingimar Ingimarsson sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs kom til fundar við byggðarráð kl. 14:01 og vék aftur af fundi kl. 14:21.

1.Viðauki 10 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2609006Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna nýbyggingar gangstéttar á milli Kirkjuvegar og Lindarvegar
„Efnahagur

Eignasjóður
Eignasjóður, gangstéttar kr. 1.700.000

Hitaveita
Hitaveita, veitukerfi kr. -1.700.000


Mismunur kr. 0

Lagt er til að gerður verði viðauki vegna nýbyggingar gangstéttar á milli Kirkjuvegar og Lindarvegar. Með viðauka sem samþykktur var af byggðarráði á 1287. fundi var gert ráð fyrir að samþykkja tilboð í framkvæmdina upp á 10,5 milljónir. Nú hefur verið fallið frá því tilboði.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

2.Viðauki 11 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2609007Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna framkvæmda við gangstéttir á Höfðabraut og Veigastíg
„Rekstur
09 Skipulags- og samgöngumál
Viðhald gangstétta (0911) kr. 4.100.000

61 Fráveita
Fráveitukerfi (6111) kr. -4.100.000

Mismunur kr. 0

Lagt er til að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun 2026 vegna framkvæmda við gangstéttir Höfðabraut - Veigastíg. Með viðauka sem samþykktur var af byggðarráði á 1287. fundi var gert ráð fyrir að samþykkja tilboð í framkvæmdina upp á 26,5 milljónir. Nú hefur verið fallið frá því tilboði.

Um er að ræða tilfærslu fjárheimilda og hefur viðaukinn því ekki áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum. Málaflokkayfirlit var lagt fram samhliða framlagningu viðaukans.

3.Gangstéttaframkvæmdir - Höfðabraut suður og Veigastígur

Málsnúmer 2608059Vakta málsnúmer

Mál áður á dagskrá 1287. fundar byggðarráðs. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs varðandi stöðu verðfyrirspurnar í verkið „Húnaþing vestra, gangstéttar Hvammstanga 2026. Frágangur á gangstétt Höfðabraut suður og Veigastígur“. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir ósk lægstbjóðanda, FK verks ehf., um að falla frá tilboði sínu vegna mistaka við útreikning virðisaukaskatts og framkomnu nýju tilboði félagsins.
Byggðarráð fellir úr gildi fyrri samþykkt sína um að ganga til samninga við FK verk ehf.

Með vísan til meginreglna um jafnræði, gagnsæi og banns við breytingum á grundvallarþáttum tilboða eftir opnun þeirra, sbr. lög nr. 120/2016 um opinber innkaup, er óheimilt að taka við nýju eða hækkuðu tilboði frá bjóðanda eftir að tilboðsfrestur er liðinn og niðurstöður opnunar liggja fyrir. Nýju tilboði FK verks ehf. er því vísað frá.
Þar sem upphaflegt tilboð lægstbjóðanda er fallið niður og í ljósi brýnna hagsmuna sveitarfélagsins af því að ljúka steypuframkvæmdum fyrir veturinn samþykkir byggðarráð að ganga til samninga við næstbjóðanda, Vogaklett ehf., á grundvelli framlagðs tilboðs að fjárhæð kr. 30.614.675 með vsk. (108% af kostnaðaráætlun).
Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi í samræmi við verklagsreglur sveitarfélagsins, með lokafresti 15. október nk. og tafabótum kr. 50.000 á dag.
________________________________________

4.Gangstéttaframkvæmd - Kirkjuvegur-Lindarvegur

Málsnúmer 2608058Vakta málsnúmer

Mál áður á dagskrá 1287. fundar byggðarráðs. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs varðandi stöðu verðfyrirspurnar í verkið „Húnaþing vestra, gangstéttar Hvammstanga 2026. Gangstéttaframkvæmd - Kirkjuvegur - Lindavegur“. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir ósk lægstbjóðanda, FK verks ehf., um að falla frá tilboði sínu vegna mistaka við útreikning virðisaukaskatts og framkomnu nýju tilboði félagsins.
Byggðarráð fellir úr gildi fyrri samþykkt sína um að ganga til samninga við FK verk ehf.
Með vísan til meginreglna um jafnræði, gagnsæi og banns við breytingum á grundvallarþáttum tilboða eftir opnun þeirra, sbr. lög nr. 120/2016 um opinber innkaup, er óheimilt að taka við nýju eða hækkuðu tilboði frá bjóðanda eftir að tilboðsfrestur er liðinn og niðurstöður opnunar liggja fyrir. Nýju tilboði FK verks ehf. er því vísað frá.
Þar sem upphaflegt tilboð lægstbjóðanda er fallið niður og í ljósi brýnna hagsmuna sveitarfélagsins af því að ljúka steypuframkvæmdum fyrir veturinn samþykkir byggðarráð að ganga til samninga við næstbjóðanda, Vogaklett ehf., á grundvelli framlagðs tilboðs að fjárhæð kr. 12.105.175 með vsk. (103% af kostnaðaráætlun).
Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi í samræmi við verklagsreglur sveitarfélagsins, með lokafresti 15. október nk. og tafabótum kr. 50.000 á dag.
Ingimar Ingimarsson vék af fundi kl. 14:21.

5.Áhrif laga nr. 55/1992 á byggingar á svæðum sem reistar eru á svæðum sem eru næm fyrir náttúruhamförum

Málsnúmer 2608081Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands þar sem minnt er á bréf sem sent var til sveitarfélaga 10. september 2025 um áhrif 16. gr. laga nr. 55/1992 vegna bygginga sem reistar eru á svæðum með fyrirfram þekktri hættu á náttúruhamförum.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að koma erindinu á framfæri við viðeigandi starfsmenn sveitarfélagsins.

6.Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026-2030

Málsnúmer 2609008Vakta málsnúmer

Drög að stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026-2030 lögð fram til kynningar

7.Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga

Málsnúmer 2609009Vakta málsnúmer

Fundarboð á Landsfund um jafnréttismál sveitarfélaga sem haldinn verður á Akureyri þann 17. september nk. lagt fram til kynningar.

8.Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2027

Málsnúmer 2608080Vakta málsnúmer

Fundargerð 142. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:57.

Var efnið á síðunni hjálplegt?