Gangstéttaframkvæmdir - Höfðabraut suður og Veigastígur

Málsnúmer 2608059

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1287. fundur - 31.08.2026

Lögð fram niðurstaða verðfyrirspurnar í verkið „Húnaþing vestra, gangstéttar Hvammstanga 2026. Frágangur á gangstétt suður og Veigastígur.“
Lögð fram niðurstaða verðfyrirspurnar. Tvö tilboð bárust.

Byggðarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, FK Verk, og felur sveitarstjóra að annast samningsgerðina.

Byggðarráð leggur áherslu á að við samningsgerðina verði farið eftir nýsamþykktum verlagsreglum vegna framkvæmda hjá Húnaþingi vestra, þar sem fram komi m.a. að lok framkvæmdatímans sé 15. október nk. og tafabætur séu kr. 50.000 á dag í samræmi við verðfyrirspurnina.

Byggðarráð - 1288. fundur - 04.09.2026

Mál áður á dagskrá 1287. fundar byggðarráðs. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs varðandi stöðu verðfyrirspurnar í verkið „Húnaþing vestra, gangstéttar Hvammstanga 2026. Frágangur á gangstétt Höfðabraut suður og Veigastígur“. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir ósk lægstbjóðanda, FK verks ehf., um að falla frá tilboði sínu vegna mistaka við útreikning virðisaukaskatts og framkomnu nýju tilboði félagsins.
Byggðarráð fellir úr gildi fyrri samþykkt sína um að ganga til samninga við FK verk ehf.

Með vísan til meginreglna um jafnræði, gagnsæi og banns við breytingum á grundvallarþáttum tilboða eftir opnun þeirra, sbr. lög nr. 120/2016 um opinber innkaup, er óheimilt að taka við nýju eða hækkuðu tilboði frá bjóðanda eftir að tilboðsfrestur er liðinn og niðurstöður opnunar liggja fyrir. Nýju tilboði FK verks ehf. er því vísað frá.
Þar sem upphaflegt tilboð lægstbjóðanda er fallið niður og í ljósi brýnna hagsmuna sveitarfélagsins af því að ljúka steypuframkvæmdum fyrir veturinn samþykkir byggðarráð að ganga til samninga við næstbjóðanda, Vogaklett ehf., á grundvelli framlagðs tilboðs að fjárhæð kr. 30.614.675 með vsk. (108% af kostnaðaráætlun).
Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi í samræmi við verklagsreglur sveitarfélagsins, með lokafresti 15. október nk. og tafabótum kr. 50.000 á dag.
________________________________________
Var efnið á síðunni hjálplegt?