Byggðarráð

1287. fundur 31. ágúst 2026 kl. 14:00 - 15:28 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Örn Arnarson formaður
  • Nína Axelsdóttir varaformaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá

1.Tilnefning í stjórn Hæðarinnar á Höfðabraut ehf.

Málsnúmer 2608053Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um tilnefningu Húnaþings vestra í stjórn Hæðarinnar á Höfðabraut ehf.
Með vísan til þess að eignarhlutur sveitarfélagsins í félaginu er óverulegur (9,21%) og í samræmi við þá stefnu og venju sveitarfélagsins síðastliðin ár að draga úr og hætta beinni þátttöku í rekstri og stjórn einkahlutafélaga á almennum markaði, samþykkir byggðarráð að tilnefna ekki fulltrúa í stjórn félagsins.

Það er mat byggðarráðs að bein stjórnarseta í félaginu samræmist ekki kjarnahlutverki sveitarfélagsins, sbr. 7. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

2.Aðalfundarboð Hæðarinnar á Höfðabraut ehf.

Málsnúmer 2608054Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar aðalfundarboð Hæðarinnar á Höfðabraut ehf. er haldinn verður þann 2. september nk.
Samþykkt að Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs verði fulltrúi Húnaþings vestra á aðalfundi Hæðarinnar á Höfðabraut ehf.

3.Viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2608060Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna breytinga á reglugerð nr. 1212/2015, sbr. reglugerð nr. 145/2026.
„Rekstur

01 Málefni fatlaðs fólks (nýr málaflokkur) kr. 60.058.170
02 Félagsþjónusta kr. -60.058.170
03 Heilbrigðismál (felldur niður) kr. -1.697.973
09 Skipulags- og samgöngumál (áður skipu.&byggingam.) kr. 125.386.260
10 (áður umferðar- og samgöngumál, nú felldur niður) kr. -125.386.260
11 Umhverfis- og atvinnumál (hét áður umhverfismál) kr. 29.666.501
13 (áður atvinnumál, nú felldur niður) kr. -29.666.501
21 Sameiginlegur kostnaður (heilbrigðismál) nú hér undir kr. 1.697.973

Mismunur

kr. 0



Lagt er til að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun 2026 vegna breytinga á reglugerð nr. 1212/2015, sbr. reglugerð nr. 145/2026. Viðaukinn felur í sér tilfærslu fjárheimilda milli liða til samræmis við breytt ákvæði reglugerðarinnar.
Um er að ræða tilfærslu fjárheimilda og hefur viðaukinn því ekki áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum. Málaflokkayfirlit var lagt fram samhliða framlagningu viðaukans.

4.Viðauki 8 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2608061Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna framkvæmda við gangstéttir á Höfðabraut og Veigastíg.
„Rekstur
09 Skipulags- og samgöngumál





Viðhald gangstétta (0911)




kr. 24.200.000
Viðhald gatna (0909)





kr. -18.000.000
61 Fráveita








Fráveitukerfi (6111)





kr. -6.200.000
Mismunur

kr. 0






Lagt er til að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun 2026 vegna framkvæmda við gangstéttir á Höfðabraut og Veigastíg.

Viðaukinn felur í sér tilfærslu fjárheimilda innan fjárhagsáætlunar, annars vegar innan málaflokks 09 skipulags- og samgöngumála og hins vegar frá málaflokki 61 fráveitu.

Um er að ræða tilfærslu fjárheimilda og hefur viðaukinn því ekki áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum. Málaflokkayfirlit var lagt fram samhliða framlagningu viðaukans.

5.Viðauki 9 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2608062Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna nýbyggingar gangstéttar á milli Kirkjuvegar og Lindarvegar.
„Efnahagur

Eignasjóður
Eignasjóður, gangstéttar




kr. 6.500.000

Hitaveita
Hitaveita, veitukerfi





kr. -6.500.000
Mismunur

kr. 0







Lagt er til að gerður verði viðauki vegna nýbyggingar gangstéttar á milli Kirkjuvegar og Lindarvegar. Í fjárhagsáætlun 2026 er gert ráð fyrir kr. 4 milljónum til framkvæmdarinnar en samkvæmt niðurstöðu verðfyrirspurnar er framkvæmdakostnaður kr. 10,5 milljónir.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

6.Gangstéttaframkvæmdir - Höfðabraut suður og Veigastígur

Málsnúmer 2608059Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða verðfyrirspurnar í verkið „Húnaþing vestra, gangstéttar Hvammstanga 2026. Frágangur á gangstétt suður og Veigastígur.“
Lögð fram niðurstaða verðfyrirspurnar. Tvö tilboð bárust.

Byggðarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, FK Verk, og felur sveitarstjóra að annast samningsgerðina.

Byggðarráð leggur áherslu á að við samningsgerðina verði farið eftir nýsamþykktum verlagsreglum vegna framkvæmda hjá Húnaþingi vestra, þar sem fram komi m.a. að lok framkvæmdatímans sé 15. október nk. og tafabætur séu kr. 50.000 á dag í samræmi við verðfyrirspurnina.

7.Gangstéttaframkvæmd - Kirkjuvegur-Lindarvegur

Málsnúmer 2608058Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða verðfyrirspurnar í verkið „Húnaþing vestra, gangstéttar Hvammstanga 2026. Ný gangstétt milli Lindarvegar og Kirkjuvegar.“
Lögð fram niðurstaða verðfyrirspurnar. Tvö tilboð bárust.

Byggðarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, FK Verk, og felur sveitarstjóra að annast samningsgerðina.

Byggðarráð leggur áherslu á að við samningsgerðina verði farið eftir nýsamþykktum verklagsreglum vegna framkvæmda hjá Húnaþingi vestra, þar sem fram komi m.a. að lok framkvæmdatímans sé 15. október nk. og tafabætur séu kr. 50.000 á dag í samræmi við verðfyrirspurnina.

8.Beiðni SSNV um tilnefningu ungmennaráðs í úthlutunarnefnd Skúnaskralls, barnamenningarhátíðar á Norðurlandi vestra

Málsnúmer 2608063Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um tilnefningu fulltrúa ungmennaráðs Húnaþings vestra í úthlutunarnefnd Skúnaskralls, barnamenningarhátíðar á Norðurlandi vestra.
Byggðarráð samþykkir að formaður ungmennaráðs, Heiða Bára Pétursdóttir, verði fulltrúi ungmennaráðs í úthlutunarnefnd Skúnaskralls. Til vara verði Birta Ögn Alfreðsdóttir, varaformaður.

9.Félagsmálaráð - 272

Málsnúmer 2608007FVakta málsnúmer

Fundargerð 272. fundar félagsmálaráðs lögð fram til afgreiðslu á 1287. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér. Örn Arnarson formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

10.Fræðsluráð - 264

Málsnúmer 2608006FVakta málsnúmer

Fundargerð 264. fundar fræðsluráðs lögð fram til afgreiðslu á 1287. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér. Örn Arnarson formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Fræðsluráð - 264 Sigþrúður Guðmundsdóttir kynnti forvarnaáætlun Norðurlands vestra (ForNor)
  • Fræðsluráð - 264 Fræðsluráð samþykkir óverulega breytingu á skóladagatali leikskóla.
  • Fræðsluráð - 264 Lagt fram til kynningar.
  • Fræðsluráð - 264 Fræðsluráð samþykkir drög að útboði og tillögum um hönnun á lóð og húsnæði leikskóla og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Viktor Ingi Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:
    Ég tel rétt að bóka sérstaklega að þær tillögur sem nú liggja fyrir undir þessum dagskrárlið eru ekki að öllu leyti þær tillögur sem starfshópur um húsnæðisþörf og þróun útisvæðis Leikskólans Ásgarðs skilaði frá sér.

    Starfshópurinn starfaði á tímabilinu 19. nóvember 2025 til 1. mars 2026 og skilaði af sér tillögum til byggðarráðs sem fór yfir þær og vísaði til fjárhagsáætlunargerðar nýrrar sveitarstjórnar á 1274. fundi sínum þann 31. mars 2026. Þær viðbætur sem gerðar hafa verið eftir að starfshópurinn lauk störfum snúa að því að skoða byggingu nýs leikskóla frá grunni.
    Ég sat í starfshópnum og kannast ekki við að starfshópurinn hafi gert það að tillögu sinni að skoða byggingu nýs leikskóla frá grunni, það atriði sem nú hefur bæst við. Ég tel því óeðlilegt að núverandi tillögur séu kynntar sem vinna starfshópsins eða eignaðar honum sem heild.

    Formaður þakkaði ábendinguna, en telur jafnframt að rétt sé að vísa málinu áfram svo það tefjist hvorki né stoppi í stjórnkerfinu.

    Lögð fram eftirfarandi tillaga:
    „Byggðarráð samþykkir að vísa drögum að útboði og tillögum um hönnun á lóð og húsnæði leikskóla til yfirferðar umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs.“
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með tveimur atkvæðum, en Viktor Ingi Jónsson sat hjá og vísaði í bókun sína.
  • Fræðsluráð - 264 Lagt fram til kynningar. Einnig var ákveðið að færa reglulega fundi fræðsluráðs. Þeir verða þriðja fimmtudag í mánuð kl. 10:00.
  • Fræðsluráð - 264

Fundi slitið - kl. 15:28.

Var efnið á síðunni hjálplegt?