-
Fræðsluráð - 264
Sigþrúður Guðmundsdóttir kynnti forvarnaáætlun Norðurlands vestra (ForNor)
-
Fræðsluráð - 264
Fræðsluráð samþykkir óverulega breytingu á skóladagatali leikskóla.
-
Fræðsluráð - 264
Lagt fram til kynningar.
-
Fræðsluráð - 264
Fræðsluráð samþykkir drög að útboði og tillögum um hönnun á lóð og húsnæði leikskóla og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Bókun fundar
Viktor Ingi Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:
Ég tel rétt að bóka sérstaklega að þær tillögur sem nú liggja fyrir undir þessum dagskrárlið eru ekki að öllu leyti þær tillögur sem starfshópur um húsnæðisþörf og þróun útisvæðis Leikskólans Ásgarðs skilaði frá sér.
Starfshópurinn starfaði á tímabilinu 19. nóvember 2025 til 1. mars 2026 og skilaði af sér tillögum til byggðarráðs sem fór yfir þær og vísaði til fjárhagsáætlunargerðar nýrrar sveitarstjórnar á 1274. fundi sínum þann 31. mars 2026. Þær viðbætur sem gerðar hafa verið eftir að starfshópurinn lauk störfum snúa að því að skoða byggingu nýs leikskóla frá grunni.
Ég sat í starfshópnum og kannast ekki við að starfshópurinn hafi gert það að tillögu sinni að skoða byggingu nýs leikskóla frá grunni, það atriði sem nú hefur bæst við. Ég tel því óeðlilegt að núverandi tillögur séu kynntar sem vinna starfshópsins eða eignaðar honum sem heild.
Formaður þakkaði ábendinguna, en telur jafnframt að rétt sé að vísa málinu áfram svo það tefjist hvorki né stoppi í stjórnkerfinu.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Byggðarráð samþykkir að vísa drögum að útboði og tillögum um hönnun á lóð og húsnæði leikskóla til yfirferðar umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með tveimur atkvæðum, en Viktor Ingi Jónsson sat hjá og vísaði í bókun sína.
-
Fræðsluráð - 264
Lagt fram til kynningar. Einnig var ákveðið að færa reglulega fundi fræðsluráðs. Þeir verða þriðja fimmtudag í mánuð kl. 10:00.
-
Fræðsluráð - 264