Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð

3. fundur 10. september 2026 kl. 09:00 - 10:38 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Þorleifur Karl Eggertsson varaformaður
  • Kolbrún Stella Indriðadóttir aðalmaður
  • Guðmundur Brynjar Guðmundsson aðalmaður
  • Ína Björk Ársælsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Ingimar Ingimarsson
Dagskrá

1.Staða verkefna Umhverfis,- veitu- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2606084Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fór yfir stöðu framkvæmda á sviðinu.
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður ekki hafin vinna við endurgerð stofnlagna við Hvammstangabraut. Ráðið leggur til að þeir fjármunir sem eftir standa verði nýttir til þess að flýta öðrum framkvæmdum. Sérstaklega verði horft til byggingar útigufu við sundlaug, endurgerð plans vestan við sundlaug, endurnýjun yfirborðsefnis á sparkvelli og framkvæmdir innanhúss í aðstöðuhúsi.

2.Drög að starfsáætlun umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs

Málsnúmer 2609024Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fór yfir helstu verkefni sem fara á starfsáætlun sviðsins næstu fjögur árin.
Ráðið þakkar greinargóða yfirferð.

3.Vatnsöflun í sveitarfélaginu í samstarfi við ÍSOR

Málsnúmer 2602023Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fór yfir vatnsöflunarskýrslu Ísor.
Ráðið þakkar yfirferðina. Sviðsstjóri upplýsti að haft hafi verið samband við borfyrirtæki til að vinna málið áfram.

4.Meðhöndlun úrgangs í Húnaþingi vestra

Málsnúmer 2609025Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri kynnti stöðu mála og næstu skref er varða meðhöndlun úrgangs í Húnaþingi vestra.
Ráðið þakkar kynninguna.

5.Kynning á starfsemi Samtaka orkusveitarfélaga

Málsnúmer 2607028Vakta málsnúmer

Erindi frá Samtökum orkusveitarfélaga með kynningu á starfsemi samtakanna og stöðu skattlagningar orkufyrirtækja.
Ráðið þakkar kynninguna.

Fundi slitið - kl. 10:38.

Var efnið á síðunni hjálplegt?