Skipulags- og umhverfisráð

385. fundur 31. mars 2026 kl. 15:00 - 17:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Ingimar Sigurðsson formaður
  • Birkir Snær Gunnlaugsson varaformaður
  • Fríða Marý Halldórsdóttir aðalmaður
  • Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir aðalmaður
  • Guðmundur Brynjar Guðmundsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bogi Kristinsson Magnussen skipulags- og byggingafulltrúi
  • Linda Sóley Guðmundsdóttir Fulltrúi á skipulags- og byggingadeild
Fundargerð ritaði: Linda Sóley Guðmundsdóttir
Dagskrá

1.Breyting á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 - Víðihlíð

Málsnúmer 2506015Vakta málsnúmer

Málið var áður tekið fyrir á fundi skipulags- og umhverfisráðs 16. júní 2025 vegna breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026. Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 26. mars 2026 þar sem fram kemur að stofnunin fellst á að um óverulega breytingu á aðalskipulagi sé að ræða, að teknu tilliti til tiltekinna lagfæringa á skipulagsgögnum. Breytingin felur í sér að 23.585 m² svæði við þjóðveg 1, nálægt félagsheimilinu Víðihlíð, verði skilgreint sem svæði fyrir ferðaþjónustu.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi breyting á Aðalskipulagi Húnaþings vestra vegna Víðihlíðar verði samþykkt í samræmi við framkomnar ábendingar Skipulagsstofnunar. Lögð er fram uppfærð greinargerð, skipulagsuppdráttur og skipulagsgögn, þar með talið að setja fram skýra umfjöllun um nýtt svæði og skipulagsákvæði þess.

2.Deiliskipulagstillaga-Víðihlíð

Málsnúmer 2506014Vakta málsnúmer

Málið var áður á dagskrá skipulags- og umhverfisráð 09.09.2025.

Tillaga að deiliskipulagi fyrir svæði við þjóðveg 1, austan við félagsheimilið í Víðihlíð. Markmið deiliskipulagsins er að skapa ramma um nýja ferðaþjónustuuppbyggingu á svæðinu. Fyrirhugað er að reisa 15 kúluhús á afmörkuðu svæði, sem nýtt verða til gistingar. Auk þess er gert ráð fyrir uppsetningu heitra potta og aðstöðu fyrir þjónustu við gesti, s.s. móttöku, salernisaðstöðu og bílastæði. Tillagan hefur verið auglýst sbr. skipulagslögum nr, 123/ 2010 er
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi fyrir svæði við þjóðveg 1 austan við félagsheimilið í Víðihlíð.
Deiliskipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Húnaþings vestra, að teknu tilliti til samþykktrar óverulegrar breytingar á aðalskipulagi.

Skipulags- og umhverfisráðs leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi deiliskipulag verði samþykkt.

3.Stóra-Borg, Merkjalýsing

Málsnúmer 2603060Vakta málsnúmer

Lögð var fram merkjalýsing dags. 07.01.2026 vegna afmörkunar landamerkja milli jarðanna Stóru-Borgar syðri, Stóru-Borgar ytri 1 og Litlu-Borgar. Í merkjalýsingunni kemur fram að um sé að ræða staðfestingu og afmörkun landamerkja gagnvart Litlu-Borg ásamt uppdrætti sem sýnir legu merkja og afmörkun svæðisins.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu Stóru-Borgar í samræmi við meðfylgjandi gögn og felur skipulagsfulltrúa að annast áframhaldandi frágang og senda viðeigandi skráningar.

4.Merkjalýsing, Reykir Hrútafirði

Málsnúmer 2603090Vakta málsnúmer

Merkjalýsing fyrir jörðina Reyki í Hrútafirði. Um er að ræða afmörkun og staðfestingu landamerkja, einkum á mörkum Reykja F2132796 gagnvart Eyjanesi F2132716, Sæbergi F2132878 og Sveðjustöðum F2133667. Í gögnum kemur fram að aðalskipulag Húnaþings vestra 2014-2026 sé í gildi á svæðinu, en ekki sé í gildi deiliskipulag fyrir það. Meðfyljandi er uppdráttur og hnitaskrá sem sýna legu markanna og afmörkun viðkomandi jarða
Tillaga að bókun.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu á Reykjum í Hrútafirði í samræmi við meðfylgjandi gögn og felur skipulagsfulltrúa að annast áframhaldandi frágang og senda viðeigandi skráningar.

5.Umsókn um skráningar breytingu á fasteign

Málsnúmer 2603073Vakta málsnúmer

Lögð er fram umsókn eigenda að lóðinni Litla Ból L217401 um breytingu á skráningu fasteignar F2317572 úr sumarhúsi í íbúðarhús
Lögð var fram umsókn eigenda að Litla Bóli L217401 um breytingu á skráningu fasteignarinnar F2317572 úr sumarhúsi í íbúðarhús. Fyrir liggur að húsið uppfyllir skilyrði sem gerð eru til íbúðarhúss. Skipulags- og umhverfisráð leggur því til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt og að heimiluð verði breyting á skráningu fasteignarinnar úr sumarhúsi í íbúðarhús.

6.Svalbarð 2, umsagnarbeiðni - Gistileyfi

Málsnúmer 2603079Vakta málsnúmer

Erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, dags. 24. mars 2026, þar sem óskað er umsagnar skipulags- og umhverfisráðs vegna umsóknar Hamdisvykur ehf., kt. 710315-0270, um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II - H (frístundahús) að Svalbarði 2, 531 Hvammstanga
Lögð fram umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Norðurlandi vestra vegna umsóknar Hamdisvykur ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II - H að Svalbarði 2, 531 Hvammstanga. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að veita jákvæða umsögn vegna umsóknarinnar.

7.Umsagnarbeiðni um breytingu á aðalskipulagi Húnabyggðar

Málsnúmer 2603093Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037 og er óskað eftir umsögn Skipulags- og umhverfisráðs um málið. Með tillögunni er sett fram sameiginleg stefna fyrir Húnabyggð um landnotkun, byggðaþróun, samgöngur, veitur og umhverfismál til næstu tólf ára
Skipulags- og umhverfisráð Húnaþings vestra hefur farið yfir tillögu að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037 og telur að mörk sveitarfélaganna samræmist hvorki gildandi Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 né skipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022.
Ráðið leggur til við sveitarstjórn að koma þessum athugasemdum á framfæri.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?