Stóra-Borg, Merkjalýsing

Málsnúmer 2603060

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisráð - 385. fundur - 31.03.2026

Lögð var fram merkjalýsing dags. 07.01.2026 vegna afmörkunar landamerkja milli jarðanna Stóru-Borgar syðri, Stóru-Borgar ytri 1 og Litlu-Borgar. Í merkjalýsingunni kemur fram að um sé að ræða staðfestingu og afmörkun landamerkja gagnvart Litlu-Borg ásamt uppdrætti sem sýnir legu merkja og afmörkun svæðisins.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu Stóru-Borgar í samræmi við meðfylgjandi gögn og felur skipulagsfulltrúa að annast áframhaldandi frágang og senda viðeigandi skráningar.
Var efnið á síðunni hjálplegt?