Skipulags- og umhverfisráð

383. fundur 03. febrúar 2026 kl. 15:00 - 17:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Ingimar Sigurðsson formaður
  • Birkir Snær Gunnlaugsson varaformaður
  • Fríða Marý Halldórsdóttir aðalmaður
  • Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir aðalmaður
  • Guðmundur Brynjar Guðmundsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bogi Kristinsson Magnussen skipulags- og byggingafulltrúi
  • Linda Sóley Guðmundsdóttir Fulltrúi á skipulags- og byggingadeild
Fundargerð ritaði: Linda Sóley Guðmundsdóttir
Dagskrá

1.Deiliskipulag austan Norðurbrautar

Málsnúmer 2508064Vakta málsnúmer

Tillaga um óverulega breytingu á deilskipulagi austan Norðurbrautar. Um er að ræða nýjan göngustíg milli Lindarvegar og Kirkjuvegar, málið hefur verið kynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan var grenndarkynnt fyrir eigendum og íbúum aðliggjandi lóða, nánar tiltekið Lindarvegi 6, 8, 10 og 12, auk Kirkjuvegar 2, 4, 6 og 8.
Breyting á deiliskipulaginun hefur verið kynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og grenndarkynnt fyrir eigendum og íbúum aðliggjandi lóða (Lindarvegur 6, 8, 10 og 12 og Kirkjuvegur 2, 4, 6 og 8).
Athugasemd barst á auglýstum tíma frá eigendum Lindarvegar 8 þar sem m.a. er bent á að upphaflegt deiliskipulag hafi ekki gert ráð fyrir göngustíg á svæðinu og að fyrirhuguð lega hafi áhrif á ráðstafanir á lóðinni; jafnframt er lagt til að stígurinn verði endurskoðaður og færður nær lóð nr. 6, þar sem það geti verið styttra, einfaldara og minna íþyngjandi fyrir grenndina.

Afgreiðslu málsins er frestað. Umhverfisfulltrúa er falið að ræða við málsaðila vegna framkominna athugasemda og kanna mögulegar útfærslur/leiðréttingar á legu göngustígs og leggja málið fram að nýju að loknum viðræðum við viðkomandi aðila.

2.DSK-Glæsivellir

Málsnúmer 2509036Vakta málsnúmer

Deiliskipulagstillaga fyrir Glæsivelli í Húnaþingi vestra, landnr. 236629. Deiliskipulagssvæðið nær til alls lands Glæsivalla, er um 1,6 ha að stærð og er staðsett austan við Vatnsnesveg (711). Í tillögunni er gert ráð fyrir tveimur byggingarreitum fyrir frístundahús.

Deiliskipulagið hefur fengið meðferð og auglýst í samræmi við ákvæði 41. gr. skipulagslaga nr. 123/201.
Deiliskipulagstillaga fyrir Glæsivelli í Húnaþingi vestra, landnr. 236629, hefur verið auglýst í samræmi við ákvæði 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust á auglýstum tíma. Skipulags- og umhverfisráð leggur því til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagið.

3.Borðeyri-framkvæmdaleyfi vegna sjóvarnar

Málsnúmer 2601046Vakta málsnúmer

Umsókn Vegagerðarinnar um fyrirhugaðar sjóvarnir á Borðeyri við Hrútafjörð. Lögð voru fram hönnunargögn/uppdrættir Vegagerðarinnar, þ.e. teikningaskrá og uppdrættir.
Skipulags- og umhverfisráð, með vísan til framlagðra gagna Vegagerðarinnar og framkominnar afgreiðslu Skipulagsstofnunar um að ekki sé þörf á ákvörðun um matsskyldu, leggur til við sveitarstjórn að heimila útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir sjóvörnum á Borðeyri.


Skipulagsfulltrúa er falið að senda kynningarbréf til aðliggjandi lóðarhafa um fyrirhugaða framkvæmd til kynningar.

4.Umsókn um byggingarleyfi/byggingarheimild

Málsnúmer 2512007Vakta málsnúmer

Málið var áður á dagskrá Skipulags- og umhverfisráðs þann 7. janúar 2026

Niðurstöður grenndarkynningar vegna fráviks frá skilmálum/byggingarreit.

Eigendur aðliggjandi fasteigna gerðu engar athugasemdir vegna málsins.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingar á deiliskipulagi austan Norðurbrautar á byggingarreit við Lindarveg 6 (L226132).

5.Sæberg-Ósk um umsögn vegna beiðni um undanþágu frá skipulagsreglugerð - Sæberg, Húnaþingi vestra

Málsnúmer 2502050Vakta málsnúmer

Tekið var fyrir mál FRN25030178, sem varðar beiðni um undanþágu frá skilyrði gr. 5.3.2.14 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 um fjarlægð bygginga frá sjó á jörðinni Sæbergi við Hrútafjörð. Lagt var fram bréf félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dags. 3. júlí sl., þar sem synjað var fyrri beiðni um undanþágu.



Í framhaldi hefur umsækjandi, að beiðni skipulagsyfirvalda sveitarfélagsins, óskað eftir að málið verði tekið upp að nýju og að undanþága verði veitt fyrir eitt af umræddum húsum, nánar tiltekið syðra íbúðarhúsið, sem er lengra komið í framkvæmdum. Í erindinu kemur fram að uppsteypu hússins er lokið og þak komið á, og því sé ekki um að ræða tillögu að nýjum byggingaframkvæmdum. Jafnframt er áréttað að það sé afstaða skipulagsyfirvalda að vel fari á byggingu hússins á þeim stað sem því hefur verið valinn, og þess vegna sé undanþágu óskað í annað sinn.
Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við veitingu undanþágu frá skilyrði gr. 5.3.2.14 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 um fjarlægð bygginga frá sjó, í máli FRN25030178, enda er bakki við sjó á umræddum stað það hár, miðað við stórstraumsflæði að ekki er talið að stórstraumsflóð eða sjávargangur nái að hinu umrædda mannvirki. Ráðið leggur til við Sveitarstjórn að samþykkja bókun ráðsins og afgreiða til ráðuneytisins umsögn í samræmi við ofangreint.

Ráðið telur brýnt að árétta að samkvæmt gögnum málsins er um að ræða óleyfisframkvæmd, þar sem engin leyfi hafa verið gefin út af hálfu sveitarfélagsins fyrir umræddu mannvirki. Jafnframt hefur byggingarfulltrúi ítrekað stöðvað framkvæmdir, en að framkvæmdum hafi engu að síður verið haldið áfram þrátt fyrir fyrirmæli um stöðvun. Ráðið telur þetta ámælisvert og áréttar að leyfisveitingar og að farið sé að fyrirmælum séu grundvallarforsenda mannvirkjagerðar í sveitarfélaginu. Ráðið beinir því til landeiganda að hlíta fyrirmælum byggingarfulltrúa og að málinu verði fylgt eftir með viðeigandi hætti innan stjórnsýslu sveitarfélagsins.

6.Gottorp merkjalýsing

Málsnúmer 2601105Vakta málsnúmer

Merkjalýsing fyrir jörðina Gottorp (F2134715) í Vesturhópi, Húnaþingi vestra. Merkjalýsingin um landamerki jarðarinnar gagnvart aðliggjandi jörðum og byggir á fyrirliggjandi heimildum, uppdrætti og hnitsettum hornmörkum.
Lögð er fram merkjalýsing fyrir jörðina Gottorp (F2134715) í Húnaþingi vestra, að flatarmáli 297,54 ha, þar sem landamerkjum jarðarinnar er lýst gagnvart aðliggjandi jörðum (m.a. Stóru-Borg, Vatnsenda og Ásbjarnarnesi) og þau afmörkuð m.a. með hnitsettum hornmörkum og uppdrætti.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir framlagða merkjalýsingu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði samþykkt.

7.Efri-Foss, Neðri-Foss merkjalýsing

Málsnúmer 2601106Vakta málsnúmer

Erindi tekið fyrir um merkjalýsingu vegna landskipta þ.e. stofnun lóðar, sem gert er ráð fyrir að beri heitið Mið-Foss, úr sameiginlegu landi jarðanna Efri-Foss (L144021) og Neðri-Foss (L144032). Fram kemur að engin mannvirki séu á hinu stofnaða svæði. Merkjalýsingin er dagsett 3. nóvember 2025 og var unnin samkvæmt gögnum frá Káraborg ehf.
Lögð er fram merkjalýsing vegna landskipta, þ.e. stofnun lóðar að stærð 18.000 m², sem fær heitið Mið-Foss, úr sameiginlegu landi jarðanna Efri-Foss (L144021) og Neðri-Foss (L144032). Fram kemur að engin mannvirki séu á hinu stofnaða svæði. Merkjalýsingin er dagsett 3. nóvember 2025 og unnin samkvæmt gögnum frá Káraborg ehf.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir framlagða merkjalýsingu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði samþykkt.

8.Hulduhvammur í Leiti, fyrirspurn um lagningu á reiðveg

Málsnúmer 2512079Vakta málsnúmer

Fyrirspurn Ingibjargar H Jakobsdóttur, eins eiganda Hulduhvamms í Leiti L233893, varðandi reiðveg á lóðinni, dags. 18.des 2025
Lagt var fram minnisblað sem Skúli Húnn tók saman að beiðni skipulagsfulltrúa, sem skýrir afgreiðslu þessa máls á sínum tíma. Umhverfis- og skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að senda minnisblað til málsaðila.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?