Landbúnaðarráð

225. fundur 05. ágúst 2026 kl. 13:00 - 13:54 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólafsdóttir formaður
  • Ingveldur Linda Gestsdóttir varaformaður
  • Magnús Ásgeir Elíasson aðalmaður
  • Ármann Pétursson aðalmaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá

1.Úthlutun til styrkvega 2026

Málsnúmer 2607005Vakta málsnúmer

Lögð fram tilkynning Vegagerðarinnar um úthlutun styrks til viðhalds styrkvega.
Úthlutun ársins er kr. 4.000.000. Fjallskiladeildir hafa verið upplýstar um úthlutunina.

2.Úthlutun fjármuna til heiðaskála 2026

Málsnúmer 2607048Vakta málsnúmer

Til úthlutunar eru kr. 800.000.
Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að dreifa fjármunum sem til úthlutunar eru jafnt á milli skála sem eru í umsjón fjallskiladeilda.

3.Úthlutun fjármuna til viðhalds rétta 2026

Málsnúmer 2607049Vakta málsnúmer

Til úthlutunar eru kr. 700.000.
Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að dreifa fjármunum til fjallskiladeilda í jöfnu hlutfalli við fjölda rétta í hverri deild.

Sigríður Ólafsdóttir vék af fundi kl. 13:12. Ingveldur Linda varaformaður tók við stjórn fundarins.

4.Fyrirkomulag gæsaveiða í Húnaþingi vestra haustið 2026

Málsnúmer 2607066Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um að fyrirkomulag gæsaveiða haustið 2026 verði óbreytt frá fyrra ári.
Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að fyrirkomulag gæsaveiða 2026 verði með eftirfarandi hætti:

Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfis- og orkustofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til gæsaveiða í eignarlöndum sveitarfélagins. Í boði er að kaupa leyfi á þremur svæðum;
a. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði austan Víðidalsár ásamt jörðinni Öxnártungu.
b. Víðidalstunguheiði vestan Víðidalsár ásamt jörðunum Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Króki.
c. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.

Hvert veiðileyfi gildir þann dag sem tilgreindur er á viðkomandi leyfi og er útgefið innan þess gæsaveiðitíma sem umhverfisráðuneytið gefur út vegna ársins 2026. Leyfið veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.

Leyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000 á dag.

Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði er takmarkaður við 4 byssur á hverju svæði á dag. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

Með vísan til 7. gr. fjallskilasamþykktar Húnaþings vestra er óheimilt að nýta hunda og flygildi (dróna) til veiða fyrr en fyrstu göngum á viðkomandi afrétti er lokið.

Í samræmi við 17. tölul. 1.mgr. 9. gr laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 64/1994 er notkun á vélknúnum ökutækjum utan vega eða vegslóða bönnuð. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Veiðileyfið veitir því ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.

5.Fyrirkomulag rjúpnaveiða í Húnaþingi vestra haustið 2026

Málsnúmer 2607067Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um að fyrirkomulag rjúpnaveiða haustið 2026 verði óbreytt frá fyrra ári.
Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að fyrirkomulag rjúpnaveiða 2026 verði með eftirfarandi hætti:

Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfis- og orkustofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagins. Í boði verða tvenns konar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði, en þau eru;
a) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði ásamt jörðunum Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og eignarhlut Húnaþings vestra í Öxnártungu (svæði 1).
b) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru (svæði 2).

Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið gefur út vegna ársins 2026 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.

Veiðileyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 15.000 á dag.

Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði 1 er takmarkaður við 4 byssur á dag, en 5 byssur á svæði 2. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

Í samræmi við 17. tölul. 1.mgr. 9. gr laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 64/1994 er notkun á vélknúnum ökutækjum utan vega eða vegslóða bönnuð. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Veiðileyfið veitir því ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er ákveðið og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.
Sigríður kom til fundar að nýju kl. 13:22 og tók við stjórn fundarins.

6.Girðing í Víðidalsfjalli (Miðhóp og Þingeyrarselsland)

Málsnúmer 2604078Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá 224. fundar. Lagt fram minnisblað sveitarstjóra og formanns vegna málsins.
Um er að ræða fyrirspurn Húnabyggðar um áhuga Húnaþings vestra á endurnýjun girðingar á Víðidalsfjalli.

Landbúnaðarráð telur að sveitarfélaginu beri ekki skylda til þess að taka þátt í kostnaði við umrædda girðingu þar sem um einkalönd er að ræða Húnaþings vestra megin en ekki afrétt. Því hvíli engin almenn skylda á sveitarfélaginu til að taka þátt í kostnaði við viðgerðir eða lagfæringar á girðingunni á Víðidalsfjalli á merkjum Miðhóps og Þingeyrarselslands á grundvelli girðingalaga nr. 135/2001.

7.Veiðieftirlit vegna gæsa- og rjúpnaveiða haustið 2026

Málsnúmer 2607068Vakta málsnúmer

Drög að samningi vegna veiðieftirlits lögð fram til samþykktar.
Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að fela Júlíusi Guðna Antonssyni veiðieftirlit árið 2026 og samþykkir jafnframt framlagðan samning.

Fundi slitið - kl. 13:54.

Var efnið á síðunni hjálplegt?