Fyrirkomulag rjúpnaveiða í Húnaþingi vestra haustið 2026

Málsnúmer 2607067

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð - 225. fundur - 05.08.2026

Lögð fram tillaga um að fyrirkomulag rjúpnaveiða haustið 2026 verði óbreytt frá fyrra ári.
Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að fyrirkomulag rjúpnaveiða 2026 verði með eftirfarandi hætti:

Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfis- og orkustofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagins. Í boði verða tvenns konar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði, en þau eru;
a) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði ásamt jörðunum Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og eignarhlut Húnaþings vestra í Öxnártungu (svæði 1).
b) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru (svæði 2).

Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið gefur út vegna ársins 2026 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.

Veiðileyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 15.000 á dag.

Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði 1 er takmarkaður við 4 byssur á dag, en 5 byssur á svæði 2. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

Í samræmi við 17. tölul. 1.mgr. 9. gr laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 64/1994 er notkun á vélknúnum ökutækjum utan vega eða vegslóða bönnuð. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Veiðileyfið veitir því ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er ákveðið og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.
Sigríður kom til fundar að nýju kl. 13:22 og tók við stjórn fundarins.
Var efnið á síðunni hjálplegt?