Girðing í Víðidalsfjalli (Miðhóp og Þingeyrarselsland)

Málsnúmer 2604078

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð - 224. fundur - 01.07.2026

Lagt fram erindi frá Húnabyggð, dags. 29. apríl 2026, varðandi viðgerð á girðingu í Víðidalsfjalli.
Í erindinu kemur fram að um sé að ræða u.þ.b. 2,5 km girðingu og að mestu þurfi að skipta um net. Sveitarstjóra er falið að kanna skyldur sveitarfélagsins hvað málið varðar.

Landbúnaðarráð - 225. fundur - 05.08.2026

Áður á dagskrá 224. fundar. Lagt fram minnisblað sveitarstjóra og formanns vegna málsins.
Um er að ræða fyrirspurn Húnabyggðar um áhuga Húnaþings vestra á endurnýjun girðingar á Víðidalsfjalli.

Landbúnaðarráð telur að sveitarfélaginu beri ekki skylda til þess að taka þátt í kostnaði við umrædda girðingu þar sem um einkalönd er að ræða Húnaþings vestra megin en ekki afrétt. Því hvíli engin almenn skylda á sveitarfélaginu til að taka þátt í kostnaði við viðgerðir eða lagfæringar á girðingunni á Víðidalsfjalli á merkjum Miðhóps og Þingeyrarselslands á grundvelli girðingalaga nr. 135/2001.
Var efnið á síðunni hjálplegt?