Landbúnaðarráð

224. fundur 01. júlí 2026 kl. 13:00 - 13:52 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólafsdóttir formaður
  • Ingveldur Linda Gestsdóttir varaformaður
  • Magnús Ásgeir Elíasson aðalmaður
  • Ármann Pétursson aðalmaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá

1.Erindisbréf nefnda og ráða

Málsnúmer 2605065Vakta málsnúmer

Erindisbréf landbúnaðarráðs lagt fyrir ráðið. Einnig lagðar fram siðareglur sveitarstjórnar sem jafnframt eiga við um störf nefnda og ráða.

2.Ákvörðun um fundartíma landbúnaðarráðs

Málsnúmer 2606087Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að fundir ráðsins verði alla jafna haldnir fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 13 í fundasal Ráðhússins.

3.Girðing í Víðidalsfjalli (Miðhóp og Þingeyrarselsland)

Málsnúmer 2604078Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Húnabyggð, dags. 29. apríl 2026, varðandi viðgerð á girðingu í Víðidalsfjalli.
Í erindinu kemur fram að um sé að ræða u.þ.b. 2,5 km girðingu og að mestu þurfi að skipta um net. Sveitarstjóra er falið að kanna skyldur sveitarfélagsins hvað málið varðar.

4.Beiðni um leyfi til tínslu fjallagrasa

Málsnúmer 2606051Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Liljönu Milenkoska fyrir hönd Nadezhda Milenkoska og Vasil Shopcheski, dags. 17. júní 2026, þar sem óskað er leyfis fyrir tínslu fjallagrasa á Arnarvatnsheiði og Holtavörðuheiði í sumar.
Landbúnaðarráð samþykkir beiðnina samhljóða í samræmi við fyrirliggjandi reglur um fjallagrasanytjar í löndum Húnaþings vestra. Ráðið leggur áherslu á að tínsla hefjist ekki fyrr en að vegir hafi opnað og jafnframt að þeir sem tínsluna annast gangi vel um svæðið. Sveitarstjóra er falið að kalla eftir korti af svæðinu sem áætlað er að tínsla fari fram á.

5.Styrkvegir 2026

Málsnúmer 2602085Vakta málsnúmer

Úthlutun fjármagns til viðhalds styrkvega 2026.
Ekki hefur borist tilkynning frá Vegagerðinni vegna úthlutunar styrkvegafjár á árinu 2026. Landbúnaðarráð harmar seinagang við úthlutunina. Nú er farið að líða á þann tíma sem er til framkvæmda og afleitt að töf verði á þeim vegna þessa. Framlag til styrkvega samkvæmt fjárhagsáætlun sveitarfélagsins er kr. 2.500.000 Eftirfarandi tillaga um skiptingu framlags sveitarfélagsins var samþykkt samhljóða:
a) Til afréttavega á Víðidalstunguheiði kr. 833.333.
b) Til afréttavega í Miðfirði kr. 733.333.
c) Til afréttavega í Hrútafirði austur kr. 483.333.
d) Til vegar ofan Hvammstanga upp á Vatnsnesfjall kr. 283.333.
e) Brandagilsháls kr. 166.667.

Fjallskilastjórnir sjá um framkvæmdir við styrkvegi á sínum svæðum, að veginum yfir Brandagilsháls undanskildum sem verður á ábyrgð sveitarstjóra.

Landbúnaðarráð samþykkir samræmt gjald vegna vinnu við styrkvegina í sveitarfélaginu, þar sem gjald fyrir dráttarvél með vagni og manni verði að hámarki kr. 19.500 pr.klst. með vsk.

Vinnu við styrkvegina skal vera lokið fyrir fyrstu göngur og lokafrestur til að skila inn reikningum vegna vinnunnar er 15. október nk. Fjallskilastjórnir skulu jafnframt skila greinargerð um framkvæmdir ársins til sveitarstjóra.

Þegar framlag Vegagerðarinnar árið 2026 verður ljóst, verður því úhlutað í sama hlutfalli og framlagi sveitarfélagsins. Fjallskilastjórnir verða upplýstar um niðurstöðuna eins fljótt og auðið er.

6.Ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár

Málsnúmer 2606074Vakta málsnúmer

Erindi frá atvinnuvegaráðuneytinu, dags. 24. júní 2026, með ábendingum til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár, lagt fram til kynningar.

7.Reglugerð um flutning sauð- og geitfjár yfir varnarlínur, nr. 253/2026.

Málsnúmer 2604040Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Matvælastofnun, dags. 14. apríl 2026, þar sem vakin er athygli á nýrri reglugerð um flutning sauð- og geitfjár yfir varnarlínur.
Lagt fram til kynningar. Landbúnaðarráð þakkar greinargóðar upplýsingar.

8.Fundargerð fjallskilastjórnar Miðfirðinga

Málsnúmer 2606057Vakta málsnúmer

Fundargerð fundar fjallskilastjórnar Miðfirðinga sem fram fór þann 16. júní 2026 lögð fram til kynningar.

9.Fundargerð fjallskilastjórnar Víðdælinga

Málsnúmer 2606058Vakta málsnúmer

Fundargerð fundar fjallskilastjórnar Víðdælinga sem fram fór þann 19. júní 2026 lögð fram til kynningar.

10.Samningur um refaveiðar 2026-2028

Málsnúmer 2606086Vakta málsnúmer

Samningur við Náttúruverndarstofnun vegna endurgreiðslu kostnaðar við refaveiðar árin 2026-2028 lagður fram til kynningar.
Nemur endurgreiðsluhlutfall Húnaþings vestra 20% af áætluðum kostnaði við veiðarnar. Á árinu 2026 að hámarki kr. 2.200.000.

Fundi slitið - kl. 13:52.

Var efnið á síðunni hjálplegt?