Fyrirkomulag gæsaveiða í Húnaþingi vestra haustið 2026

Málsnúmer 2607066

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð - 225. fundur - 05.08.2026

Sigríður Ólafsdóttir vék af fundi kl. 13:12. Ingveldur Linda varaformaður tók við stjórn fundarins.
Lögð fram tillaga um að fyrirkomulag gæsaveiða haustið 2026 verði óbreytt frá fyrra ári.
Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að fyrirkomulag gæsaveiða 2026 verði með eftirfarandi hætti:

Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfis- og orkustofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til gæsaveiða í eignarlöndum sveitarfélagins. Í boði er að kaupa leyfi á þremur svæðum;
a. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði austan Víðidalsár ásamt jörðinni Öxnártungu.
b. Víðidalstunguheiði vestan Víðidalsár ásamt jörðunum Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Króki.
c. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.

Hvert veiðileyfi gildir þann dag sem tilgreindur er á viðkomandi leyfi og er útgefið innan þess gæsaveiðitíma sem umhverfisráðuneytið gefur út vegna ársins 2026. Leyfið veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.

Leyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000 á dag.

Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði er takmarkaður við 4 byssur á hverju svæði á dag. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

Með vísan til 7. gr. fjallskilasamþykktar Húnaþings vestra er óheimilt að nýta hunda og flygildi (dróna) til veiða fyrr en fyrstu göngum á viðkomandi afrétti er lokið.

Í samræmi við 17. tölul. 1.mgr. 9. gr laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 64/1994 er notkun á vélknúnum ökutækjum utan vega eða vegslóða bönnuð. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Veiðileyfið veitir því ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?