Félagsmálaráð

275. fundur 25. nóvember 2026 kl. 13:00 - 15:55 í Félagsheimilinu Hvammstanga
Nefndarmenn
  • Sigurbjörg Jóhannesdóttir aðalmaður
  • Patrekur Óli Gústafsson aðalmaður
  • Matthías Rúnarsson formaður
  • Ragnheiður Rún Sveinbjörnsdóttir aðalmaður
  • Dagný Sigurlaug Ragnarsdóttir varaformaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson embættismaður
  • Henrike Wappler embættismaður
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
Dagskrá
Formaður kannaði lögmæti fundarins og spurði hvort athugasemdir væru gerðar við boðun hans og fylgigögn. Engar athugasemdir komu fram. Formaður lagði einnig til að liður 6 yrði fyrsta mál á dagskrá og var það samþykkt samhljóða.

1.Úthlutun íbúðar 107 í Nestúni

Málsnúmer 2611003Vakta málsnúmer



Félagsmálaráð samþykkir að úthluta Marinó Björnssyni og Kanda Prathai íbúð 107. Engar aðrar umóknir liggja fyrir og því felur félagsmálaráð sviðsstjóra að auglýsa íbúð 109 til umsóknar. Einnig er sviðsstjóra falið að halda fund með íbúum hússins til að kalla eftir hugmyndum þeirra um nýtingu og skipulag sameiginlegra rýma.

2.Útboð á akstri aldraðra og fatlaðra 2027

Málsnúmer 2611028Vakta málsnúmer

Sviðsstjóra falið að kanna hvort samþætta eigi aksturinn við aðra þjónustuþætti sveitarfélagsins og leggja fram tillögu til umræðu á næsta fundi.

3.Fjárhagsáætlun 2027

Málsnúmer 2602081Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fór yfir helstu kostnaðarþætti fjárhagsáætlunar 2027 vegna stuðnings og liðveislu. Sviðsstjóra falið að yfirfara reglur um stuðningsþjónustu og gera tillögu að viðbrögðum til að samræma mat á stuðningsþjónustu.

4.Innra eftirlit félagsþjónustu fjölskyldusviðs Húnaþings vestra

Málsnúmer 2611034Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð samþykkir drög að verklagi vegna innra eftirlits og felur sviðsstjóra að vinna verklagið áfram.

5.Gjaldskrá Félagsheimilisins Hvammstanga

Málsnúmer 2611048Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð felur sviðsstjóra að gera tillögu að nýrri gjaldskrá til frekari umræðu.
Ingimar Ingimarsson mætti til fundar kl. 13:03

6.Félagsheimilið Hvammstanga - Innanhúshönnun

Málsnúmer 2602015Vakta málsnúmer

Ingimar fór yfir stöðu framkvæmda í félagsheimilinu. Einnig var kynnt gólfefna- og loftaskipulag.
Ingimar vék af fundi kl. 13:15

7.Fagráð - málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 2505058Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

8.Fundargerðir fagráðs BMN

Málsnúmer 2606063Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

9.Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2026

Fundi slitið - kl. 15:55.

Var efnið á síðunni hjálplegt?