Byggðarráð

1273. fundur 23. mars 2026 kl. 14:00 - 15:53 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá

1.Fundarboð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2603026Vakta málsnúmer

Lagt fram fundarboð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga sem fram fór þann 20. mars 2026.
Unnur Valborg Hilmardsóttir sveitarstjóri var fulltrúi Húnaþings vestra á fundinum.

2.Úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025-2026

Málsnúmer 2512068Vakta málsnúmer

Lagt fram svar innviðaráðuneytis við erindi sveitarstjórnar frá 12. febrúar 2026.
Í svari ráðuneytisins kemur fram að sérreglur Húnaþings vestra vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025-2026 hafi verið samþykktar.

3.Aðalfundur Veiðifélags Arnarvatnsheiðar og Tvídægru

Málsnúmer 2603042Vakta málsnúmer

Lagt fram boð á aðalfund Veiðifélags Arnarvatnsheiðar og Tvídægru sem fram fer 3. apríl nk.
Unnur Valborg Hilmarsdóttur verður fulltrúi Húnaþings vestra á fundinum, en Elín Lilja Gunnarsdóttir til vara.

4.Aðalfundur Veiðifélags Miðfirðinga

Málsnúmer 2603055Vakta málsnúmer

Lagt fram fundarboð á aðalfund Veiðifélags Miðfirðinga sem fram fer 28. mars nk.
Magnús Magnússon verður fulltrúi Húnaþings vestra á fundinum, en Elín Lilja Gunnarsdóttir til vara.

5.Reykjatangi - tjón á húseign

Málsnúmer 2601035Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs vegna húss í eigu sveitarfélagsins á Reykjatanga.
Í minnisblaðinu er lagt til að í kjölfar tjóns sem varð vegna hitaveituleka verði húsið selt í því ástandi sem það er í. Byggðarráð samþykkir að húseignin F2132834 á Reykjatanga verði seld í því ástandi sem hún er. Byggðarráð felur sveitarstjóra að auglýsa eftir tilboðum í húseignina og leggja fyrir byggðarráð til afgreiðslu.

6.Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2603069Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs lögðu fram tillögu að viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2026 vegna stofnframlaga íbúða við Norðurbraut 15. Um er að ræða síðari hluta stofnframlagsgreiðslu sem þegar var samþykkt og viðbót vegna tveggja viðbótaríbúða sem til greina kemur að Brák festi kaup á ef mikil eftirspurn verður eftir íbúðum í húsinu.



Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Stofnframlag Brák íbúðafélag vegna Norðurbrautar 15, greiðsla 2/2
kr. 12.026.613
Stofnframlag Brák íbúðarfélag vegna Norðurbrautar 15, viðbót

kr. 9.600.000

Hækkun eignfærðrar fjárfestingar




kr. 21.626.613


Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og er því ekki lagt fram málaflokkayfirlit.

7.Umsókn um stofnframlag vegna íbúðaruppbyggingar að Norðurbraut 15

Málsnúmer 2408018Vakta málsnúmer

Staðfesting sveitarfélags á stofnframlagi vegna íbúðauppbyggingar að Norðurbraut 15. Um er að ræða framlag vegna hugsanlegra kaupa Brákar á tveimur íbúðum til viðbótar ef eftirspurn eftir íbúðum í húsinu verður mikil. Stofnvirði er áætlað 80 millj. og stofnframlag Húnaþings vestra 12% eða 9,6 millj.
Byggðarráð staðfestir stofnframlag Húnaþings vestra vegna íbúðauppbyggingar að Norðurbraut 15 í samræmi við framangreint og viðauka þann sem lagður var fram undir 6. dagskrárlið.

8.Gjaldskrá Hvammstangahafnar - aðstöðugjöld lausafjármuna

Málsnúmer 2603028Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs vegna aðstöðugjalda lausafjármuna við Hvammstangahöfn.
Byggðarráð samþykkir framlagðar tillögur með áorðnum breytingum og felur sveitarstjóra að uppfæra gjaldskrá hafnarinnar og leggja fyrir ráðið.

9.Mál til umsagnar - Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks - Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málsnúmer 2603061Vakta málsnúmer

Umsögn um áform um lagasetningu vegna flýtingar uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks.

Uppbygging raforkuinnviða er eitt brýnasta hagsmunamál landsbyggðarinnar og landsins alls til að auka og tryggja verðmætasköpum í landinu. Byggðarráð Húnaþings vestra tekur undir markmið áformaskjalsins um mikilvægi þess að einfalda stjórnsýslu og regluverk í tengslum við þá uppbyggingu. Ráðið leggur hins vegar ríka áherslu á að í öllum tilfellum verði að virða friðhelgi eignarréttar sem tryggður er í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Ótækt er að landeigendur einir verði látnir gjalda fyrir þá uppbyggingu sem nauðsynleg er með óviðunandi bótum fyrir land sem undir þessa mikilvægu innviði er tekið. Jafnframt er mikilvægt að samtal við landeigendur í aðdragana uppbyggingarverkefna sé virkt og að tillit sé tekið til athugasemda þeirra og óska. Að síðustu vill ráðið leggja áherslu á að skipulagsvald er á höndum sveitarfélaga og það verður að virða í hvívetna.

Byggðarráð gerir athugasemd við að ekki var send sérstök tilkynning um málið til sveitafélaga og samtaka landeigenda þar sem framangreind hljóta að vera einn stærsti hagsmunaaðilinn í tengslum við áformin.

10.Mál til umsagnar - Sveitarstjórnarlög, 505. mál - Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis

Málsnúmer 2603030Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Alþingi um 505. mál - Sveitarstjórnarlög.

Byggðarráð veitti umsögn um málið þegar það var kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda í október 2025 og einnig þegar það var kynnt sem áform í maí 2025. Ráðið fagnar því að tekið hefur verið tillit til margra þeirra ábendinga sem komu fram í umsögnum þess á fyrri stigum. Sérstaklega er ástæða til að fagna því að fallið er frá frumkvæði ráðherra að sameiningum sveitarfélaga, breytingum á lámarksíbúafjölda og skylduaðild að landshlutasamtökum.

Almennt fagnar byggðarráð Húnaþings vestra reglulegri endurskoðun á lagaumhverfi og stjórnsýslu sveitarfélaga með það fyrir augum að efla stjórnsýslu og skýra lagaumhverfi. Ráðið vill þó gera eftirtaldar athugasemdir við einstaka liði frumvarpsins:

15. grein - skylda til að halda fundi
Byggðarráð ítrekar umsögn sína á fyrri stigum þar sem segir:
Í ákvæðinu er sett inn skylda til að fundir sveitarstjórnar séu haldnir innan staðarmarka sveitarfélags nema ef óviðráðanlegar ástæður gera fundahald innan sveitarfélagsins ómögulegt. Byggðarráð telur það tímaskekkju að bundið sé í lög að fundi verði að halda innan staðarmarka sveitarfélags. Komið geta upp aðstæður sem kalla á fundahöld utan svæðis sem ekki teljast til óviðráðanlegra aðstæðna. T.d. ef meirihluti sveitarstjórnar er staddur utan sveitarfélags af einhverjum ástæðum. Á tímum þegar tækni leyfir fundahöld hvar sem er ætti að vera óþarfi að binda fundi við staðsetningu innan sveitarfélags.

30. grein - aðgangur að gögnum og þagnarskylda
Byggðarráð ítrekar umsögn sína á fyrri stigum þar sem segir:
Ekki eru gerðar athugasemdir við þær breytingar sem gerðar eru á greininni. Hins vegar vill byggðarráð benda á að í skýringum kemur fram að þrátt fyrir að felld sé á brott málsgrein um eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitarfélagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélags og rekstur geti kjörnir fulltrúar sem fyrr óskað eftir að kynna sér starfsstöðvar sveitarfélagsins í samráði við stjórnendur. Að mati ráðsins væri eðlilegt að það ákvæði væri inni í lagagreinininni eins og það er orðað í skýringum. Með því væri skýrt að kjörnir fulltrúar skuli hafa samráð við stjórnendur um slíkar heimsóknir.

72. og 74. grein - fjárhagsleg viðmið og mat á langtímaáhrifum
Mikilvægt er að sveitarstjórnarlög veiti greinargóðar leiðbeiningar um hvenær leggja þarf sérstakt mat á áhrifum fyrirhugaðra skuldbindinga á sveitarfélag til lengri tíma. Byggðarráð dregur í efa að þau viðmið sem tilgreind eru í frumvarpinu séu raunhæf. Aðstæður sveitarfélaga eru afar mismunandi og fjárhagslegar skuldbindingar umfram uppgefin viðmið geta verið nauðsynlegar á einhverjum tíma og geta leitt til aukinna tekna sveitarfélagsins. Ráðið leggur því til að þessi hluti frumvarpsins verði endurskoðaður. Byggðarráð fagnar því að fallið er frá þeim áformum að viðmið um heildarskuldir og skuldbindingar A-hluta í reikningsskilum séu ekki hærri en sem nemur 110% heldur verði það viðmið 130%.

110. grein - Samningur um að sveitarfélag taki að sér verkefni fyrir önnur sveitarfélög
Byggðarráð ítrekar umsögn sína á fyrri stigum þar sem segir:
Í meginatriðum fagnar byggðarráð þeim breytingum sem lagðar eru til á lagagreininni og telur þær vel til þess fallnar að skýra samstarf sveitarfélaga. Hins vegar gerir ráðið athugasemd við kaflann um kostnaðarskiptingu þar sem sveitarfélaginu sem annast verkefni annars sveitarfélags er heimilað að leggja álag á raunkostnað. Eðlilegt er að viðkomandi sveitarfélag innheimti kostnað sem af umsýslu hlýst en að heimila innheimtu álags án skýringa í lagagreininni er að mati byggðarráðs of opið. Í skýringu með greininni er ágætlega farið yfir það sem við er átt og væri að mati ráðsins eðlilegt að sú skýring kæmi fram í lagagreininni til að koma í veg fyrir ólíka túlkun ákvæðisins. Einnig væri eðlilegt að sett væri hámark á þann kostnað sem innheimta má í þessum tilfellum.

Að síðustu vill byggðarráð benda á að í frumvarpsdrögunum er nokkuð um tilvísanavillur og hvetur til að þær verði lagfærðar og málið birt að nýju til samráðs að því loknu. Einnig vill ráðið gera athugasemd við skamman athugasemdafrest um eins viðamikið og mikilvægt mál og raun ber vitni. Að því sögðu er beðist afsökunar á því að umsögn er send þremur dögum eftir að kynntur umsagnarfrestur rann út.

Til annarra atriða en þeirra sem hér koma fram vísar byggðarráð til umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

11.Áskorun frá Siglingasambandi Íslands

Málsnúmer 2603027Vakta málsnúmer

Áskorun til sveitarstjórna frá Siglingasambandi Íslands lögð fram til kynningar.

12.Ársreikningur Jarðasjóðs V-Húnavatnssýslu 2025

Málsnúmer 2603051Vakta málsnúmer

Ársreikningur Jarðasjóðs V-Húnavatnssýslu lagður fram til kynningar.

13.Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands 2026

Málsnúmer 2601077Vakta málsnúmer

Fundargerð 480. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar.

14.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2602001Vakta málsnúmer

Fundargerðir 994. og 995. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:53.

Var efnið á síðunni hjálplegt?