Mál til umsagnar - Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks - Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málsnúmer 2603061

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1273. fundur - 23.03.2026

Umsögn um áform um lagasetningu vegna flýtingar uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks.

Uppbygging raforkuinnviða er eitt brýnasta hagsmunamál landsbyggðarinnar og landsins alls til að auka og tryggja verðmætasköpum í landinu. Byggðarráð Húnaþings vestra tekur undir markmið áformaskjalsins um mikilvægi þess að einfalda stjórnsýslu og regluverk í tengslum við þá uppbyggingu. Ráðið leggur hins vegar ríka áherslu á að í öllum tilfellum verði að virða friðhelgi eignarréttar sem tryggður er í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Ótækt er að landeigendur einir verði látnir gjalda fyrir þá uppbyggingu sem nauðsynleg er með óviðunandi bótum fyrir land sem undir þessa mikilvægu innviði er tekið. Jafnframt er mikilvægt að samtal við landeigendur í aðdragana uppbyggingarverkefna sé virkt og að tillit sé tekið til athugasemda þeirra og óska. Að síðustu vill ráðið leggja áherslu á að skipulagsvald er á höndum sveitarfélaga og það verður að virða í hvívetna.

Byggðarráð gerir athugasemd við að ekki var send sérstök tilkynning um málið til sveitafélaga og samtaka landeigenda þar sem framangreind hljóta að vera einn stærsti hagsmunaaðilinn í tengslum við áformin.
Var efnið á síðunni hjálplegt?