Byggðarráð

1260. fundur 27. október 2025 kl. 14:00 - 14:53 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Dagskrá
Helga Birna Jónsdóttir ráðgjafi frá Intellecta kom til fundar kl. 14:01.

1.Ráðning sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs

Málsnúmer 2510052Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að ráðningu sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs Húnaþings vestra að undangengnu ráðningarferli sem unnið var í samstarfi við Intellecta.
Starf sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs Húnaþings vestra var auglýst laust til umsóknar með umsóknarfresti til 1. október sl. Alls bárust 8 umsóknir. Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Eftirtalin sóttu um:
Anne Herzog,
Atli Arason,
Egill Gestsson,
Einar Torfi Einarsson,
Frank Bowers,
Guðni Þór Skúlason,
Ingimar Ingimarsson.
Helga Birna fór yfir ráðningarferlið, matskvarða, forsendur mats og mat á þeim umsóknum sem bárust. Byggðarráð hefur kynnt sér öll gögn málsins. Byggðarráð samþykkir að ráða Ingimar Ingimarsson í starf sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs Húnaþings vestra.
Sveitarstjóra er falið að ganga frá og undirrita ráðningarsamning við Ingimar.
Þorgils Magnússon lætur af störfum 1. desember nk. Byggðarráð þakkar Þorgils vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óskar honum velfarnaðar í komandi verkefnum.
Helga Birna vék af fundi kl. 14:10.

2.Aðgengisfulltrúi Húnaþings vestra

Málsnúmer 2510045Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að skipan aðgengisfulltrúa í samræmi við samkomulag stjórnvalda og ÖBÍ um bætt aðgengi fyrir fatlað fólk í opinberum byggingum, almenningssamgöngum, útivistarsvæðum og almenningsgörðum.
Byggðarráð skipar Heiðu Jack verkefnisstjóra umhverfismála sem aðgengisfulltrúa Húnaþings vestra.

3.Starfshópur um húsnæðisþörf og þróun útisvæðis Leikskólans Ásgarðs

Málsnúmer 2510027Vakta málsnúmer

Skipan fulltrúa í starfshópinn. Áður á dagskrá 1259. fundar.
Í samræmi við erindisbréf starfshópsins skipar byggðarráð eftirtalin í hópinn:
Elín Lilja Gunnarsdóttir, formaður fræðsluráðs, formaður,
Viktor Ingi Jónsson, sveitarstjórnarfulltrúi,
Rannvá Björk Þorleifsdóttir, formaður foreldrafélags Leikskólans Ásgarðs.

4.Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2025

Málsnúmer 2501012Vakta málsnúmer

Fundargerð 130. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:53.

Var efnið á síðunni hjálplegt?