Skipulagsráð

388. fundur 11. ágúst 2026 kl. 14:00 - 15:13 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Fríða Marý Halldórsdóttir formaður
  • Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir aðalmaður
  • Nína Axelsdóttir aðalmaður
  • Guðni Þór Skúlason aðalmaður
  • Tómas Bergsteinn Arnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bogi Kristinsson Magnussen skipulags- og byggingafulltrúi
  • Linda Sóley Guðmundsdóttir Fulltrúi á skipulags- og byggingadeild
Fundargerð ritaði: Linda Sóley Guðmundsdóttir
Dagskrá

1.Ormsárgil - merkjalýsing

Málsnúmer 2607038Vakta málsnúmer

Breytt afmörkun fasteignar Ormsárgils F2297193, L207193.

Merkjalýsing gerð vegna stækkunar, stærð fyrir breytingar 1.787.m2 og verður 6.605.m2.
Skipulagsráð hefur tekið fyrir erindi um stækkun og breytta afmörkun lóðarinnar Ormsárgils, L207379, í landi Mela. Samkvæmt framlagðri merkjalýsingu og afstöðumynd, dags. 10. júní 2026, verður stærð lóðarinnar 6.605 m² og er stækkunin tekin úr landi Mela 3, L142219.

Skipulagsráð samþykkir erindið og leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki stækkun og breytta afmörkun lóðarinnar í samræmi við framlögð gögn. Skipulagsfulltrúa verði falið að annast áframhaldandi afgreiðslu málsins

2.Deiliskipulag austan Norðurbrautar

Málsnúmer 2508064Vakta málsnúmer

Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felur í sér að koma fyrir útivistarstíg á grænu almenningsvæði á milli Lindarvegar og Kirkjuvegar. Málið var grenndarkynnt eigendum og íbúum lóða við Lindarveg 6, 8, 10, 12 og við Kirkjuveg 2, 4, 6 og 8. Athugasemdir bárustu frá eigendum frá Lindarvegi 8.
Skipulagsráð hefur tekið til umfjöllunar framkomna athugasemd við grenndarkynnta breytingu á deiliskipulagi vegna fyrirhugaðs göngustígs vestan við lóðir í hverfinu.

Ráðið tekur athugasemdina til greina, meðal annars hvað varðar áhrif fyrirhugaðrar legu göngustígsins á lóð nr. 8 og þær forsendur sem lóðarhafi hefur hafið framkvæmdir og frágang lóðarinnar samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Jafnframt telur ráðið að ekki hafi verið sýnt nægilega fram á að fyrirhuguð lega stígsins sé hagkvæmasti eða heppilegasti kosturinn, sérstaklega með hliðsjón af mögulegri legu nær lóð nr. 6, sem kann að hafa minni áhrif á aðliggjandi lóðir.

Með vísan til framkominnar athugasemdar og framangreindra sjónarmiða telur skipulagsráð að forsendur séu ekki til þess að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna eins og hún hefur verið kynnt. Skipulagsráð leggur því til við sveitarstjórn að framlagðri deiliskipulagsbreytingu verði hafnað.

3.Gauksmýri - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2607032Vakta málsnúmer

Land og skógur óskar eftir framkvæmdaleyfi í samstarfi við hluteigandi landeigendur vegna endurheimtar votlendis á Gauksmýri L144465. Framkvæmdin felur meðal annars í sér að fylla eða stífla 2.480 metra af skurðum, grafa nýjan skurð, reisa stíflu við Gauksmýratjörn og færa göngustíg. Markmiðið er að endurheimta mýrlendi, bæta vatnsbúskap og búsvæði lífvera og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Verkið verður unnið utan fuglavarpstíma.
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að leita og afla eftirfarandi umsagna áður en málið verður tekið til endanlegrar afgreiðslu. Einnig er farið fram á leiðréttingu þar sem stærðir eru ekki í samræmi í gögnum.

Umsagnar Náttúruverndarstofnunar, Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs Húnaþings vestra, Umhverfis- og orkustofnunar, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, Fiskistofu, Minjastofnunar Íslands og umsagnar Vegagerðarinnar, .

Málið verður tekið að nýju til afgreiðslu þegar framangreindar umsagnir liggja fyrir. Ráðið vísar bókuninni til sveitarstjórnar til staðfestingar.


4.Upplýsingar um framkvæmdir og sjálfbær umsvif í vatnaáætlun 2028-2033

Málsnúmer 2607023Vakta málsnúmer

Umhverfis- og orkustofnun óskar því eftir upplýsingum um áætlanir um verkefni sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033 sem munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki og sækja þurfi um heimild til breytinga á vatnshloti skv. 18 gr. laga um stjórn vatnamála.
Skipulagsráð tekur erindið til kynningar. Ráðið felur skipulagsfulltrúa að hafa leiðbeiningar um áhrifamat fyrir vatnshlot til hliðsjónar við meðferð skipulags- og framkvæmdamála og kalla eftir viðeigandi mati frá framkvæmdaraðila þegar fyrirhuguð framkvæmd eða starfsemi kann að hafa áhrif á vatn.

5.Umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2607006Vakta málsnúmer

Umsókn um framkvæmdaleyfi í Víðigerði þar sem er verið að bæta við hleðslustöðvum og laga núverandi plan.
Skipulagsráðið samþykkir að heimila afmarkaðar malbikunarframkvæmdir á núverandi aksturs- og athafnasvæði, enda teljist þær til viðhalds og endurbóta á núverandi yfirborði og feli ekki í sér breytingu á landnotkun, meginfyrirkomulagi svæðisins eða tengingum við þjóðveg.

Fyrirliggjandi gögn gera jafnframt ráð fyrir umfangsmeiri uppbyggingu á svæðinu, m.a. fjölgun hraðhleðslustæða og hleðslustöðva, raforkumannvirkjum og breytingum á aksturs- og umferðarfyrirkomulagi

Að mati ráðsins er sú heildaruppbygging þess eðlis að rétt sé að móta heildstæðar skipulagsforsendur fyrir svæðið með deiliskipulagi.

Ráðið fer því fram á að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið í samræmi við 37. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en ráðist verður í frekari uppbyggingu samkvæmt fyrirliggjandi framkvæmdaráformum. Ráðið telur með hliðsjón af umfangi fyrirhugaðrar uppbyggingar.

Skal deiliskipulagsgerð og frekari útfærsla sem snertir tengingar við þjóðveg og umferðaröryggi unnin í samráði við Vegagerðina, og umsagnar hennar aflað áður en endanleg afstaða er tekin til þeirra þátta framkvæmdarinnar.

Heimild samkvæmt þessari bókun tekur eingöngu til framangreindra malbikunarframkvæmda sem teljast til viðhalds. Heimildin felur ekki í sér samþykki fyrir öðrum þáttum fyrirhugaðrar uppbyggingar né framkvæmdaleyfi vegna þeirra. Að öðru leyti er afgreiðslu framkvæmdaráforma frestað þar til deiliskipulag hefur verið unnið og nauðsynlegt samráð við Vegagerðina farið fram.

6.Umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2607007Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við Víðigerði, 531 Hvammstanga.

Umsóknin tekur fyrst og fremst til malbikunar á núverandi aksturs- og athafnasvæði, lagningar göngustígs meðfram húsum á svæðinu og úrbóta á frárennsli með viðbót niðurfalla. Með umsókninni fylgja uppdrættir sem sýna fyrirhugað fyrirkomulag og heildarfrágang svæðisins, þar á meðal akstursleiðir, göngusvæði, yfirborðsfrágang og fráveitu. Á uppdráttum kemur fram að hæðarlega svæðisins verði að mestu óbreytt frá núverandi ástandi og að bætt verði við niðurföllum þar sem vatnshalli er í átt að þjóðvegi
Skipulagsráðið samþykkir að heimila afmarkaðar malbikunarframkvæmdir á núverandi aksturs- og athafnasvæði, enda teljist þær til viðhalds og endurbóta á núverandi yfirborði og feli ekki í sér breytingu á landnotkun, meginfyrirkomulagi svæðisins eða tengingum við þjóðveg.

Fyrirliggjandi gögn gera jafnframt ráð fyrir umfangsmeiri uppbyggingu á svæðinu, m.a. fjölgun bílastæða og breytingum á aksturs- og umferðarfyrirkomulagi

Að mati ráðsins er sú heildaruppbygging þess eðlis að rétt sé að móta heildstæðar skipulagsforsendur fyrir svæðið með deiliskipulagi.

Ráðið fer því fram á að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið í samræmi við 37. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en ráðist verður í frekari uppbyggingu samkvæmt fyrirliggjandi framkvæmdaráformum. Ráðið telur með hliðsjón af umfangi fyrirhugaðrar uppbyggingar.

Skal deiliskipulagsgerð og frekari útfærsla sem snertir tengingar við þjóðveg og umferðaröryggi unnin í samráði við Vegagerðina, og umsagnar hennar aflað áður en endanleg afstaða er tekin til þeirra þátta framkvæmdarinnar.

Heimild samkvæmt þessari bókun tekur eingöngu til framangreindra malbikunarframkvæmda sem teljast til viðhalds. Heimildin felur ekki í sér samþykki fyrir öðrum þáttum fyrirhugaðrar uppbyggingar né framkvæmdaleyfi vegna þeirra. Að öðru leyti er afgreiðslu framkvæmdaráforma frestað þar til deiliskipulag hefur verið unnið og nauðsynlegt samráð við Vegagerðina farið fram.

Fundi slitið - kl. 15:13.

Var efnið á síðunni hjálplegt?