Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 2

Málsnúmer 2608001F

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1285. fundur - 10.08.2026

Fundargerð 2. fundar umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs frá 6. ágúst 2026 lögð fram til afgreiðslu á 1285. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér. Formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 2 Ráðið þakkar sviðsstjóra yfirferðina.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 2 Ráðið leggur til við sveitarstjórn að verklagsreglur um verksamninga verði samþykktar. Ráðið vísar jafnframt ákvörðun um lágmarksupphæð, verka sem þessar verklagsreglur ná yfir, til sveitarstjórnar.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 2 Ráðið þakkar fyrir þá ítarlegu aðgerðaáætlunarvinnu sem unnin hefur verið í framhaldi af úttekt KPMG á sviðinu og felur sviðsstjóra að fylgja málinu eftir og upplýsa ráðið reglulega um framgang áætlunarinnar.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 2 Ráðið leggur til að farið verði í verkið og felur sviðsstjóra að gera verðkönnun og athuga hvort verkið falli innan fjárhagsáætlunar eða hvort gera þurfi viðauka.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 2 Sviðsstjóra falið að senda út verðfyrirspurn um alla vetrarþjónustu á Hvammstanga, mokstur gatna og gangstétta auk hálkuvarna. Bókun fundar Afgreiðsla umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð - 2 Tekið til umræðu. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram miðað við umræður á fundinum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?