Landbúnaðarráð - 225

Málsnúmer 2607006F

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1285. fundur - 10.08.2026

Fundargerð 225. fundar landbúnaðaráðs frá 5. ágúst 2026 lögð fram til afgreiðslu á 1285. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér. Formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 225 Úthlutun ársins er kr. 4.000.000. Fjallskiladeildir hafa verið upplýstar um úthlutunina.
  • Landbúnaðarráð - 225 Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að dreifa fjármunum sem til úthlutunar eru jafnt á milli skála sem eru í umsjón fjallskiladeilda. Bókun fundar Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 225 Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að dreifa fjármunum til fjallskiladeilda í jöfnu hlutfalli við fjölda rétta í hverri deild.

    Bókun fundar Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 225 Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að fyrirkomulag gæsaveiða 2026 verði með eftirfarandi hætti:

    Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfis- og orkustofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til gæsaveiða í eignarlöndum sveitarfélagins. Í boði er að kaupa leyfi á þremur svæðum;
    a. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði austan Víðidalsár ásamt jörðinni Öxnártungu.
    b. Víðidalstunguheiði vestan Víðidalsár ásamt jörðunum Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Króki.
    c. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.

    Hvert veiðileyfi gildir þann dag sem tilgreindur er á viðkomandi leyfi og er útgefið innan þess gæsaveiðitíma sem umhverfisráðuneytið gefur út vegna ársins 2026. Leyfið veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.

    Leyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000 á dag.

    Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði er takmarkaður við 4 byssur á hverju svæði á dag. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

    Með vísan til 7. gr. fjallskilasamþykktar Húnaþings vestra er óheimilt að nýta hunda og flygildi (dróna) til veiða fyrr en fyrstu göngum á viðkomandi afrétti er lokið.

    Í samræmi við 17. tölul. 1.mgr. 9. gr laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 64/1994 er notkun á vélknúnum ökutækjum utan vega eða vegslóða bönnuð. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Veiðileyfið veitir því ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.

    Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.
    Bókun fundar Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 225 Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að fyrirkomulag rjúpnaveiða 2026 verði með eftirfarandi hætti:

    Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfis- og orkustofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagins. Í boði verða tvenns konar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði, en þau eru;
    a) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði ásamt jörðunum Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og eignarhlut Húnaþings vestra í Öxnártungu (svæði 1).
    b) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru (svæði 2).

    Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið gefur út vegna ársins 2026 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.

    Veiðileyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 15.000 á dag.

    Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði 1 er takmarkaður við 4 byssur á dag, en 5 byssur á svæði 2. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

    Í samræmi við 17. tölul. 1.mgr. 9. gr laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 64/1994 er notkun á vélknúnum ökutækjum utan vega eða vegslóða bönnuð. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Veiðileyfið veitir því ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.

    Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er ákveðið og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.
    Bókun fundar Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 225 Um er að ræða fyrirspurn Húnabyggðar um áhuga Húnaþings vestra á endurnýjun girðingar á Víðidalsfjalli.

    Landbúnaðarráð telur að sveitarfélaginu beri ekki skylda til þess að taka þátt í kostnaði við umrædda girðingu þar sem um einkalönd er að ræða Húnaþings vestra megin en ekki afrétt. Því hvíli engin almenn skylda á sveitarfélaginu til að taka þátt í kostnaði við viðgerðir eða lagfæringar á girðingunni á Víðidalsfjalli á merkjum Miðhóps og Þingeyrarselslands á grundvelli girðingalaga nr. 135/2001.
    Bókun fundar Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 225 Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að fela Júlíusi Guðna Antonssyni veiðieftirlit árið 2026 og samþykkir jafnframt framlagðan samning. Bókun fundar Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?