Landbúnaðarráð - 224

Málsnúmer 2604004F

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1282. fundur - 13.07.2026

Fundargerð 224. fundar landbúnaðarráðs frá 1. júlí 2026 lögð fram til afgreiðslu á 1282. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér.
Formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 224
  • Landbúnaðarráð - 224 Landbúnaðarráð samþykkir samhljóða að fundir ráðsins verði alla jafna haldnir fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 13 í fundasal Ráðhússins.
  • Landbúnaðarráð - 224 Í erindinu kemur fram að um sé að ræða u.þ.b. 2,5 km girðingu og að mestu þurfi að skipta um net. Sveitarstjóra er falið að kanna skyldur sveitarfélagsins hvað málið varðar.
  • Landbúnaðarráð - 224 Landbúnaðarráð samþykkir beiðnina samhljóða í samræmi við fyrirliggjandi reglur um fjallagrasanytjar í löndum Húnaþings vestra. Ráðið leggur áherslu á að tínsla hefjist ekki fyrr en að vegir hafi opnað og jafnframt að þeir sem tínsluna annast gangi vel um svæðið. Sveitarstjóra er falið að kalla eftir korti af svæðinu sem áætlað er að tínsla fari fram á. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • .5 2602085 Styrkvegir 2026
    Landbúnaðarráð - 224 Ekki hefur borist tilkynning frá Vegagerðinni vegna úthlutunar styrkvegafjár á árinu 2026. Landbúnaðarráð harmar seinagang við úthlutunina. Nú er farið að líða á þann tíma sem er til framkvæmda og afleitt að töf verði á þeim vegna þessa. Framlag til styrkvega samkvæmt fjárhagsáætlun sveitarfélagsins er kr. 2.500.000 Eftirfarandi tillaga um skiptingu framlags sveitarfélagsins var samþykkt samhljóða:
    a) Til afréttavega á Víðidalstunguheiði kr. 833.333.
    b) Til afréttavega í Miðfirði kr. 733.333.
    c) Til afréttavega í Hrútafirði austur kr. 483.333.
    d) Til vegar ofan Hvammstanga upp á Vatnsnesfjall kr. 283.333.
    e) Brandagilsháls kr. 166.667.

    Fjallskilastjórnir sjá um framkvæmdir við styrkvegi á sínum svæðum, að veginum yfir Brandagilsháls undanskildum sem verður á ábyrgð sveitarstjóra.

    Landbúnaðarráð samþykkir samræmt gjald vegna vinnu við styrkvegina í sveitarfélaginu, þar sem gjald fyrir dráttarvél með vagni og manni verði að hámarki kr. 19.500 pr.klst. með vsk.

    Vinnu við styrkvegina skal vera lokið fyrir fyrstu göngur og lokafrestur til að skila inn reikningum vegna vinnunnar er 15. október nk. Fjallskilastjórnir skulu jafnframt skila greinargerð um framkvæmdir ársins til sveitarstjóra.

    Þegar framlag Vegagerðarinnar árið 2026 verður ljóst, verður því úhlutað í sama hlutfalli og framlagi sveitarfélagsins. Fjallskilastjórnir verða upplýstar um niðurstöðuna eins fljótt og auðið er.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 224
  • Landbúnaðarráð - 224 Lagt fram til kynningar. Landbúnaðarráð þakkar greinargóðar upplýsingar.
  • Landbúnaðarráð - 224
  • Landbúnaðarráð - 224
  • Landbúnaðarráð - 224 Nemur endurgreiðsluhlutfall Húnaþings vestra 20% af áætluðum kostnaði við veiðarnar. Á árinu 2026 að hámarki kr. 2.200.000.
Var efnið á síðunni hjálplegt?