Landbúnaðarráð

226. fundur 04. nóvember 2026 kl. 13:00 - 13:59 að Höfðabraut 6
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólafsdóttir formaður
  • Ingveldur Linda Gestsdóttir varaformaður
  • Magnús Ásgeir Elíasson aðalmaður
  • Ármann Pétursson aðalmaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
Dagskrá
Formaður kannaði lögmæti fundarins og spurði hvort athugasemdir væru gerðar við boðun hans og fylgigögn. Engar athugasemdir komu fram

1.Formenn fjallskiladeilda koma til fundar

Málsnúmer 2610031Vakta málsnúmer

Til umræðu voru fjallskil í sveitarfélaginu, fyrirkomulag og framkvæmd þeirra, vegaframkvæmdir og girðingarvinna sl. árs, skipting fjármuna o.fl. Landbúnaðarráð þakkar formönnum fjallskiladeilda komuna á fundinn.

2.Uppgjör minka og refaveiði 2026

Málsnúmer 2610030Vakta málsnúmer

Uppgjör minka og refaveiði 2026 lagt fram til kynningar.
Heildarkostnaður vegna refa- og minkaveiði á þessu tímabili er alls kr. 11.884.170. Unnin grendýr voru 119, yrðlingar 252 og hlaupadýr 78. Veiddir minkar voru 27.

Landbúnaðarráð leggur áherslu á að reynt verði til þrautar að ráða minkaveiðimenn til veiða innan sveitarfélagsins.
Elín Lilja vék af fundi kl. 13:44.

3.Vetrarveiði á ref veturinn 2026-2027

Málsnúmer 2610029Vakta málsnúmer

Vetrarveiði á ref veturinn 2026-2027 var auglýst með umsóknarfresti til 1. nóvember.
Eftirfarandi umsóknir bárust.

Elmar Baldursson, vegna veiða á Vatnsnesi.
Sigfús Heiðar Árdal, vegna veiða í Víðidal.
Bjarni Kristmundsson, vegna veiða í austanverðum Hrútafirði.
Hannes Guðmundur Hilmarsson, vegna veiða í vestanverðum Hrútafirði.
Halldór Birkir Sturluson, vegna veiða í vestanverðum Hrútafirði.
Björn Már Björnsson, vegna veiða í Miðfirði.
Þorbergur Guðmundsson, vegna veiða í Miðfirði.
Björn Viðar Unnsteinsson, vegna veiða í Vesturhópi.

Landbúnaðarráð felur sveitarstjóra að gera samninga við eftirtalda vegna vetrarveiða á ref veturinn 2025-2026 með fyrirvara um fjárveitingu til veiðanna:

Elmar Baldursson, vegna veiða á Vatnsnesi.
Sigfús Heiðar Árdal, vegna veiða í Víðidal.
Bjarni Kristmundsson, vegna veiða í austanverðum Hrútafirði.
Hannes Guðmundur Hilmarsson, vegna veiða í vestanverðum Hrútafirði.
Þorbergur Guðmundsson, vegna veiða í Miðfirði.
Björn Viðar Unnsteinsson, vegna veiða í Vesturhópi.

Landbúnaðarráð þakkar áhuga á þessu þarfa verkefni, enda sýna veiðitölur undanfarinna ára að ekki er vanþörf á að vargeyðingu sé sinnt.

Landbúnaðarráð óskar eftir að fá kr. 1.500.000 í fjárveitingu á árinu 2027 til vetrarveiða á ref.
Elín Lilja kom aftur til fundar kl. 13:47.

4.Fundargerð fjallskiladeildar Vatnsnesinga 30. júlí 2026

Málsnúmer 2608003Vakta málsnúmer

Fundargerð fundar fjallskiladeildar Vatnsnesinga frá 30. júlí 2026 lögð fram til kynningar.

5.Fundargerð fjallskilastjórnar Miðfirðinga 5. ágúst 2026

Málsnúmer 2608008Vakta málsnúmer

Fundargerð fjallskilastjórnar Miðfirðinga frá 5. ágúst 2026 lögð fram til kynningar.

6.Fundargerð fjallskilastjórnar Víðdælinga 6. ágúst 2026

Málsnúmer 2608009Vakta málsnúmer

Fundargerð fjallskilastjórnar Víðdælinga frá 6. ágúst 2026 lögð fram til kynningar.

7.Fundargerð fjallskilastjórnar Hrútfirðinga að austan 15. júní og 19. júní 2026

Málsnúmer 2608014Vakta málsnúmer

Fundargerðir fjallskiladeildar Hrútfirðinga að austan, frá 15. og 19. júní 2026 lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:59.

Var efnið á síðunni hjálplegt?