Vetrarveiði á ref veturinn 2026-2027

Málsnúmer 2610029

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð - 226. fundur - 04.11.2026

Elín Lilja vék af fundi kl. 13:44.
Vetrarveiði á ref veturinn 2026-2027 var auglýst með umsóknarfresti til 1. nóvember.
Eftirfarandi umsóknir bárust.

Elmar Baldursson, vegna veiða á Vatnsnesi.
Sigfús Heiðar Árdal, vegna veiða í Víðidal.
Bjarni Kristmundsson, vegna veiða í austanverðum Hrútafirði.
Hannes Guðmundur Hilmarsson, vegna veiða í vestanverðum Hrútafirði.
Halldór Birkir Sturluson, vegna veiða í vestanverðum Hrútafirði.
Björn Már Björnsson, vegna veiða í Miðfirði.
Þorbergur Guðmundsson, vegna veiða í Miðfirði.
Björn Viðar Unnsteinsson, vegna veiða í Vesturhópi.

Landbúnaðarráð felur sveitarstjóra að gera samninga við eftirtalda vegna vetrarveiða á ref veturinn 2025-2026 með fyrirvara um fjárveitingu til veiðanna:

Elmar Baldursson, vegna veiða á Vatnsnesi.
Sigfús Heiðar Árdal, vegna veiða í Víðidal.
Bjarni Kristmundsson, vegna veiða í austanverðum Hrútafirði.
Hannes Guðmundur Hilmarsson, vegna veiða í vestanverðum Hrútafirði.
Þorbergur Guðmundsson, vegna veiða í Miðfirði.
Björn Viðar Unnsteinsson, vegna veiða í Vesturhópi.

Landbúnaðarráð þakkar áhuga á þessu þarfa verkefni, enda sýna veiðitölur undanfarinna ára að ekki er vanþörf á að vargeyðingu sé sinnt.

Landbúnaðarráð óskar eftir að fá kr. 1.500.000 í fjárveitingu á árinu 2027 til vetrarveiða á ref.
Elín Lilja kom aftur til fundar kl. 13:47.
Var efnið á síðunni hjálplegt?